Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1963, Side 21

Frjáls verslun - 01.01.1963, Side 21
hafa sérstakt ráðuneyti vísinda, skiptir sér ekkert af daglegri starfsemi stofnana, en fylgist vel með og hefur ])á vitanlega öll þau áhrif, scm því sýnist i gegnum þann fjárstyrk, scm veittur er. Hins vegar rekur ráðuneytið eigin rannsóknastofnanir, einkum á þeim sviðum, sem ríkisvaldið verður sjálft að ann- ast framkvæmdir á, eins og t. d. á sviði vegagerð- ar o. fl. Um undirstöðurannsóknir gildir nokkuð öðru máli. Verkefni þcirra eru ekki eins nátengd þörfum atvinnuveganna í dag, og þurfa þær því að geta starfað sjálfstætt og án of mikilla áhrifa þaðan. Slíkar rannsóknastofnanir eru vel og eðlilega stað- settar innan vébanda háskólanna. Noklcux undirstöðuatriði Það er sjálfsagt að þakka það, sem vel hefur verið gert á undanförnum árum og áunnizt hefur á sviði vísinda og rannsókna. Skilningur á þörf vís- indanna fyrir efnahagslíf landsins fer stöðugt. vax- andi, bæði meðal ráðamanna og þjóðarinnar allrar. En ekki má þar við sitja. Um heim allan er stöð- ugt krafizt aukinnar framleiðni, nvrrar tækni og vísinda. Vísindastarfsemi okkar verður að tengjast atvinnulífi landsins og hagþróun þess miklu meir en verið hefur. Eg tel vafalaust, að það frumvarp, sem nú liggur fyrir Alþingi, sé ágætt spor i þá átt, þó það megi eflaust bæta að fenginni reynslu kom- andi ára. En að ýmsu öðru ber að gæta. Auka verð- ur fjármagn lil rannsóknastarfseminnar og ekki eingöngu frá ríkisvaldinu, heldur einnig frá atvinnu- vegunum sjálfum, enda ætti slíkt að verða auð- veldara þegar atvinnuvegirnir fá vaxandi áhrif inn- an vísindastarfseminnar og tengsl þar á milli eflast. Ótalinn er þó sá þáttur, sem ég hvgg að mikil- vægastur muni reynast i sjálfstæðisbaráttu þessarar þjóðar um langa framtíð. Vissulega verðum við að nýta náttúruauðæfi okkar, bæði til lands og sjávar, til hins ýtrasta, en það mun duga skammt, ef ekki eru nýttir mannkostir þjóðarinnar sjálfrar. A þessu hefur orðið nokkur brestur á undanförnum árum. Tugir Iækna og mjög margir verkfræðingar vinna nú erlendis, og hafa þar ráðið lögmálin um fram- boð og eftirspurn, því vinna þessara manna er gjaldgeng hvar sem er. Aðrar þjóðir hafa gert sér grein f.vrir nauðsyn og þörf þjóðfélagsins fyrir slíka einstaklinga, ef til vill nokkru fyrr en við höfum gerl hér heima. Eftirspurnin hefur því aukizt og launin hækkað. Þó að vísinda- og tæknimenntaðir menn verði að stilla kröfum sínum í hóf, er ekki að efa, að hér þarf að verða á mikil brevting og vonandi er þess ekki langt að bíða. Jafnframt ætti nú þegar að hefjast handa og endurskoða allt skólakerfi ])essa lands; gefa verður unglingum þegar í barnaskólum kost á að kynn- ast undirstöðuatriðum raunvísindamenntunar; gjör- breyta verður iðnnámi og koma verður upp góðum tækniskóla, auk endurbættrar raunvisindamennt- unar við háskólann. Við íslendingar eignm ef til vill enn meira en aðrar þjóðir, að minnsta kosti í Vestur-Evrópu, í stöðugri sjálfstæðisbaráttu. Einkenni þeirrar baráttu hefur að vísu breytzt nokkuð. Um aldamótin var hún fyrst og fremst háð á sviði stjórnmála, en nú á sviði efnahagslífsins. Þetta á ekki sízt við í dag fyrir smáþjóðina, sem vill varðveita sitt unga sjálf- stæði á tímum, þegar jafnvel stórþjóðirnar sam- einast og vilja verða ennþá stærri. Eg óttast, að einna erfiðast muni okkur ])á reynast að fylgjast með á sviði tækni og vísinda, sem segja má að sé að verða allsráðandi í hinum tæknilega hraðvaxandi umheimi okkar. Því er okkur lífsnauðsyn að byggja upp góðan kjarna tækni- og vísindamanna, sem geta skilið og lagað að íslenzkum staðháttum þá tækniþróun, sem verður í kringum okkur, og að tryggja samstarf þeirra og stjórnmálamanna, at- vinnurekenda, hagfræðinga og annarra, sem miklu munu ráða um hagþróun ])cssa lands og þar með um sjálfstæði þess. Margir stjórnmálamenn eru eins og ungbörn — þeir halda, að þeir fái allt, cf þeir bara orga nógu hátt. (Lafði Astor.) ★ Sjálfslýsing? Til þess að verða vinsæll í hernum, verður maður að vera algert núll. (Montgomery marskálkur.) ★ Smábær er staður, þar sem maður með glóðar- auga þarf ekki að gefa ncina skýringu á því. Allir vita ástæðuna þegar. ■k Sá, sem drekkur vatn, þegar aðrir bergja á víni, hefir einhverju að leyna. (Beaudelaire.) FR.IÁLS VERZLUN 21

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.