Frjáls verslun - 01.08.1963, Side 5
Nokkru seinna bættust við íslenzk eimskip og
bílar og mikil vélvæðing. Samfara þessu færð-
ist nýtt líf í bókmenntir og fræði, komu ný
fræðslulög og söfn, og ný myndlist og tónlist.
Milli efnahagslífs og andlegs lífs liggja marg-
ir þræðir. Það er ekki mitt verkefni hér að reyna
að rekja neina verzlunar og menningarsögu,
heldur blátt áfram að segja frá uppruna heild-
verzlunarinnar, eins og ég hef gert.
Rétt eftir aldamótin var gefið hér út mynda-
spjald, sem átti að sýna framfarir íslands frá
1885 til 1902. Magn útfluttrar vöru hafði aukizt
úr 5% í 10x/2 millj. kr., gufuskipaferðum milli
Danmerkur og íslands fjölgaði úr 20 í 70 ferðir
á ári og tekjur landssjóðs vaxið úr 960 þús. kr.
í rúmar 2 milljónir. Þrjátíu árum áður hafði
Einar í Nesi skrifað sínar frægu framfarahug-
leiðingar. Þrátt fyrir þetta framfaratal — sem
Benedikt Gröndal skáld dró oft dár að — var
það mála sannast, sem Indriði Einarsson sagði,
að sparnaðurinn var aldarandans einasti guð.
Það hafði ekki einlægt verið eintómt erlent of-
ríki, sem olli íslenzku verzlunarólagi, heldur
líka íslenzkt framtaksleysi og trúleysi. íslend-
ingar sátu við borð sömu verzlunarpólitíkur og
áþekks harðræðis og ýmsir aðrir.
Það var sem sagt ný stórútgerð og ný heild-
verzlun, sem helzt breytti þessu öllu. Mönnum
óx nýtt áræði og ímyndunarafl, fengu nýjan
skilning á möguleikum lands síns og nýja út-
sýn til umheimsins.
Því skyldi samt ekki gleymt, að fyrir hið eig-
inlega upphaf íslenzkrar heildverzlunar uppúr
aldamótum höfðu verið gerðar ýmsar skemmti-
legar tilraunir. Auglýsingar stækkuðu og juk-
ust. Þorlákur O. Johnson hafði ensk verzlunar-
sambönd og kom með nýja, fríska verzlunar-
hætti. Björn Kristjánsson hafði þýzka umboðs-
sölu í Reykjavík um 1896, kaupfélögin höfðu
sambönd við enska heildsala og einnig Ásgeir
Sigurðsson og Kristján Jónasarson. Seinna kom
t. d. Andrés Guðmundsson og ýmsir fóru sölu-
ferðir um landið, Páll Stefánsson, Chr. B. Eyj-
ólfsson o. fl. og nokkrir íslendingar ráku heild-
sölu erlendis og verzluðu hér, s. s. Jakob Gunn-
laugsson og Guðm. Scheving Thorsteinsson. Ás-
geirsverzlun var umfangsmikið verzlunar- og
útgerðarfyrirtæki í Kaupmannahöfn og á Vest-
fjörðum. Sumir öfiugustu gömlu kaupmennirn-
ir á nítjándu öld höfðu að vissu leyti verið sínir
eigin heildsalar og áttu sjálfir skip í förum til
útlanda, allt suður á Spán. Það var stórt í ýms-
um þessum körlum og stíll yfir þeim. Þeir gátu
verið harðir fjáraflamenn, en líka örlátir og
mildir. Þegar danskt gjaldeyrishrun kom að
þeim óvörum, kveiktu þeir í pípum sínum með
bankaseðlunum, en gullið, sem þeir fengu fyrir
Spánarfiskinn, reiddu þeir undir sér í tösku.
Einn þeirra lét sig hafa það að gefa hálfa tunnu
silfurs í viðreisnarsjóð, einn verzlaði hér á 5
höfnum og réð 30 skipum og annar lét eftir sig
7 jarðir, alls 100 þús. ríkisdali, einn var sagn-
fræðingur, veiðimaður og siglingamaður og
hafði í skrifstofu sinni stórt bókasafn og 8 byss-
ur og mörg sverð.
Upphaf íslenzkrar heildverzlunar féll saman
við mikið og frjósamt menningartímabil, eins
og ég sagði. Um sumt hefði samband þar mátt
vera meira en var. Samt lögðu kaupmenn ýmis-
legt af mörkum, einn hélt hér uppi merkilegri
menningarlegri félagsstarfsemi, annar reisti hér
leikhús, einn kom upp stærsta einkabóka-
safni samtíma síns og fleiri áttu stór blaða- og
bókasöfn. Það varð líka fljótt á orði, að heild-
salar væru tekjuháir og studdu hagfræðingar
það. Sú skoðun kom þó einnig fram á þessum
árum, m. a. hjá einu höfuðskáldi þjóðarinnar,
að „afarfjölmenn stétt í landi voru (er) alls-
endis óþörf, en það er kaupmannastéttin“.
Kaupmenn hafa samt í ýmsu formi fram-
kvæmda sinna komið mikið við íslenzka sögu
frá upphafi og „til kaupmennsku veljast oft
hinir beztu menn“ segir Konungsskuggsjá. í
sögu þeirra sjálfra og í íslenzkri hagsögu hófst
nýr þáttur með upphafi íslenzku heildverzl-
unarinnar.
Efir aldalanga verzlunarerfiðleika og erlend
yfirráð eða beina kúgun, flutti íslenzk heild-
verzlun miðstöð viðskiptalífsins alveg inn í land-
ið, gerði verzlunina þjóðlega, arðvænlega fyrir
íslenzkt þjóðarbú, fjölbreytta fyrir einstakling-
ana svo að hún stuðlaði mikið að bættum lífs-
kjörum í samvinnu við aðra kaupmenn. Hún
opnaði ný innflutningssambönd og nýja mark-
aði fyrir útflutninginn. Upphaf íslenzkrar
heildverzlunar var einn heizti hyrningarsteinn
nýs efnahags- og framkvæmdalífs í landinu.
&
FRJÁLS VERZLUN
5