Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1963, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.08.1963, Blaðsíða 10
stræti og hús Nathans & Olsen. Þessar gömlu myndir eru ekki aðeins fögur listaverk, heldur og líka sögulegar heimildir fyrir höfuðborgina okkar. Ég er ákaflega þakklát forstjórum þeirra fyr- irtækja og stofnana sem kortin keyptu, og hafa með því óbeint átt stóran hlut 1 björgun hinna gömlu listaverka. Jólakort safnsins þetta ár er gert eftir mál- verki Ásgríms úr Borgarfirði, og frá þeim stað sem hann tók miklu ástfóstri við. Sú ákvörðun var tekin að gefa út aðeins eitt litkort á ári hverju, og vanda sem bezt til prentunar þess, frekar en prenta fleiri, og þá kannski ver úr garði gerð. Að innramma myndir — En hvernig er það t. d. með innrömmun mynda, — er ekki slíkt verk mikið vandaverk, sérstaklega innrömmun vatnslitamynda? — Að ramma inn listaverk svo vel fari er vandaverk. Til þess þarf kunnáttu og skilning á verðmæti listaverka, ef svo mætti til orða taka. Og svo auðvitað gott efni til slíkra hluta. Ekki sízt er vandi að ramma inn vatnslitamynd- ir. Þær eru mjög vandmeðfarnar. Má segja að vatnslitamyndirnar séu á sífelldri hreyfingu, — þær þurfa jafnt hitastig. Ef breyting á hita- stigi verður snögg má búast við að myndirnar verði hrukkóttar. Ég hefi kynnzt smávegis hinni réttu meðferð og innrömmun vatnslitamynda. Fyrst og fremst fræddi Ásgrímur frændi minn mig um þessa hluti. Einnig Jón Þorleifsson list- málari, sem var mjög lesinn um allt það sem við kom málverkum. Jón gat ætíð leyst úr spurn- ingum um slíkt þegar til hans var leitað. Og síðast en ekki sízt Poul Lunöe hjá Statens Mus- eum. Það sem ég þekki og veit um í sambandi við innrömmun vatnslitamynda er í fáum orð- um þetta: Þær eiga aldrei að liggja fast við gler- ið. Utan um þær á að setja umgiörð úr sýru- lausum þykkum karton. Á bakhlið á líka að láta sýrulausan karton. Mislitur pappi, brúnleitur eða gráleitur, sem yfirleitt er notaður hér á bak- hlið mynda, getur með tímanum eyðilagt lista- verkið. Skömmu áður en Ásgrímur andaðist kom vin- ur hans Jón Þorleifsson til hans á sjúkrahúsið með 50 ára gamla vatnslitamynd. sem Ásgrími hafði láðzt að signera, en átti nú að gerast. Þeg- ar myndin var tekin úr rammanum blasti við ófögur sjón. Á baki myndarinnar var þykkur brúnn pappi, og hafði liturinn úr honum éfið sig inn í vatnslitapappírinn. Var myndin öll brúnflekkótt á bakhlið, og sumsstaðar var litur- inn kominn í gegn. Slíkur pappi er búinn til úr trjávið, en hinn næmi gljúpi vatnslitapappír er búinn til úr bómullarefni. En afleitast af öllu, og hrein eyðilegging á listaverki, er að líma myndirnar fastar á pappa- spjöld, eins og gert var við nokkrar myndi; Ás- gríms. Þær á aðeins að festa lauslega á könt- um. Utaf þessari vankunnáttu í sambandi við innrömmun á þessum myndum varð í rauninni stórmál þótt hljótt færi. Þurfti að senda þær til útlanda og hreinsa af þeim límið. En annars ræði ég ekki frekar það mál hér. Að lokum vil ég segja þetta: Hefja þarf innflutning á hinu vandaðasta efni, sem völ er á til innrömmunar, — hvítum sýru- lausum karton, úrval af römmum o. fl. sem með þarf til þess að dýrmæt listaverk okkar megi varðveitast um aldur og ævi í varanlegri, ör- uggri og fagurri umgjörð. Nokkrar af vatnslita- myndum Ásgrímssafns hafa verið sendar til Statens Museum, og fengið þar hina réttu inn- römmun. Mér hefur oft dottið í hug, hvort ekki væri tilvinnandi fyrir ungan listelskan mann, að læra hina réttu innrömmun listaverka erlendis, og setja síðan upp verkstæði hér, og hafa þar hið fullkomnasta efni. Stofnkostnaður við slíkt fyr- irtæki yrði að sjálfsögðu töluverður, en ekki trúi ég öðru, en að hann borgaði sig fljótlega. „Flýttu þér pú! Sólin er alveg að síga í hafið." 10 FR.TÁ US VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.