Frjáls verslun - 01.08.1963, Blaðsíða 13
Annar fallegur staður 1 Vestur-Berlín er
Ernst-Reuter Platz, sem nefnt er eftir hinum
kunna borgarstjóra Vestur-Berlínar, Ernst
Reuter, sem leiddi borgarbúa farsællega gegn-
um erfiðleika eftirstríðsáranna og samgöngu-
bann Sovétríkjanna.
Að öðru leyti eru nýbyggingarnar hver ann-
arri fallegri, hvort sem um er að ræða verzl-
unarbyggingar eða íbúðarhús. Enda hafa marg-
ir frægustu arkitektar heims lagt hönd á plóg-
inn að gera borgina sem bezt úr garði.
Blómlegt og fjölskrúðugl menningarlíf
Menningarlíf stendur með miklum blóma í
A/'estur-Berlín og er það raunar ekki nýtt fyrir-
brigði. Fyrir valdatöku nazista gnæfði Berlín
hátt á sviði lista og mennta og sumir segja, að
á tónlistarsviðinu hafi hún jafnvel varpað
skugga á sjálfa Vínarborg og er þá mikið sagt.
í Berlín er mjög glæsilegt óperuhús, Deutsche
Oper. Það er nær ókleyft að afla sér miða á sýn-
ingar í Deutsche Oper, nema með mjög löng-
um fyrirvara, enda sækir þangað jafnan mikill
fjöldi fólks frá V-Þýzkalandi. Leikhús eru þar
einnig mörg og eitt glæstasta þeirra Schiller-
teater. Það sem kannski vekur einna mesta at-
hygli íslendinga, sem sækja leikhús í Berlín,
er hve tækni í sambandi við leiksýningar stend-
ur þar á háu stigi. Öll leikhús í Vestur-Berlín
eru mikið sótt, sem og aðrir listaviðburðir í
borginni.
í Vestur-Berlín er hið fræga Freie Universi-
tet. Þangað sækja stúdentar frá öllum hlutum
heims, ekki sízt frá þróunarlöndunum. Áður en
Smánarmúrinn var reistur stunduðu nám við
þennan skóla fjöldi stúdenta, sem búsettir voru
austan megin við mörkin. Sumir þeirra sluppu
yfir áður en Múrinn var fullbyggður, en meiri
hluti þeirra lokaðist inni. Stúdentarnir við Freie
Universitet skipulögðu þá víðtækar björgunar-
aðgerðir og tókst að koma töluverðum fjölda
þessara ólánsömu félaga sinna yfir (eða undir)
Múrinn eftir leiðum, sem enn eru ókunnar og
tóku prófessorar við háskólann fullan þátt í
þeim aðgerðum.
í Berlín er auk FU sérstakur Tækniháskóli.
Deutsche Oper
FRJÁns YEBznuN
13