Frjáls verslun - 01.08.1963, Blaðsíða 14
Kaiser-Wilhelms kirkjan
„Eins og í dauðs manns gröf“
Þetta er hin bjarta hlið Berlínar, ný borg með
fögrum byggingum og frjálsu fólki og blómlegu
menningarlífi. Það er erfitt að gera sér í hugar-
lund, þegar komið er til Berlínar með flugvél,
að þessi fagra borg sé umkringd gaddavír og
múrsteini á alla vegu og því síður verður mað-
ur þess var í hinu daglega lífi Berlínarbúans.
Ég hafði oft séð Smánarmúrinn á myndum
og kvikmyndum, áður en ég kom til Berlínar.
Slíkt gefur þó ekki rétta mynd af þessu mann-
virki. Múrinn, kaldur og ljótur, mannlaus hús
með uppmúraðar hurðir og glugga, gaddavír og
skriðdrekavarnir, hermenn og skotvopn. Þetta
er eins og að koma í annan heim — óraunveru-
legan heim.
Standandi frammi fyrir þessu síðasta afreki
kommúnismans, leiðist hugurinn að því, hvað
hafi gert þá sem þessu stjórna, að slíkum mönn-
um, illmönnum og morðingjum. Ótýndir glæpa-
menn af verstu tegund. Það eru hinir austur-
þýzku leppar Krúsjoffs og ekkert annað.
Meðfram öllum Múrnum eru fátækleg minn-
ismerki um þá austur-þýzku æskumenn, sem
af hugrekki og dirfsku hafa reynt að flýja á
14
FR.TÁLS VERZLUN