Frjáls verslun - 01.08.1963, Page 6
Mynd af sumarsýningunni í vinnustofu Ásgríms
Heimsókn i Ásgrimssain
Rcztt við safnvörðinn, Bjarnveigu Bjarnadóttur
Við brugðum okkur suður í Ásgrímssafn að Berg-
staðastræti 74 til að hitta að máli safnvörðinn, frú
Bjarnveigu Bjamadóttur, og leggja fyrir hana nokkr-
ar spumingar um uppbyggingu safnsins, kortaútgáfu
safnsins, sem mikla athygli hefur vakið, og gestagang-
inn í sumar. Frú Bjarnveig hefur frá byrjun annazt
vörzlu safnsins og látið sér einstaklega annt um, að
þessari ómetanlegu gjöf, sem frændi hennar, Ásgrím-
ur listmálari Jónsson, gaf þjóðinni eftir sinn dag, verði
fullur sómi sýndur. Fer hér á eftir spjall okkar.
Gjöf til þjóðarinnar
— Hefur þjóðin metið það að verðleikum að
Ásgrímur Jónssqn gaf henni hús sitt og heimili
ásamt hinum mikla fjölda listaverka?
— Þessari spurningu er vandsvarað til hlít-
ar. En benda má á það, að þegar ríkið hélt sýn-
ingu á listaverkagjöf hans í Listasafni ríkisins,
að Ásgrími látnum, var aðsókn að sýningunni
meiri en dæmi eru til hér. Skoðuðu sýninguna
milli 20 og 30 þúsund manns. Virðist það benda
til þess að sýningunni og gjöfinni hafi verið fagn-
að. í sambandi við sýningar í húsi Ásgríms vil
ég segja þetta: Mér hefir virzt að fólk hafi mikla
ánægju af að koma í hið litla hús Ásgríms Jóns-
sonar og skoða listaverkin, sem þar eru sýnd.
Ásgrímur bjó einn 1 húsi sínu, og honum var
kyrrðin og hið einfalda líf mikil nauðsyn. Heim-
6
FRJÁLS VERZLUN