Frjáls verslun - 01.08.1963, Qupperneq 11
■
ACHTUNG! M
Sie verlnssen jet/t j
WEST-BERLIN i
„Sérhver frjáls maðnr er borgari Berlínar“
Sá sem staddur var í Berlín miðvikudaginn
26. júní 1963, daginn sem John F. Kennedy for-
seti Bandaríkja Norður-Ameríku heimsótti borg-
ina, gleymir aldrei þeirri stóru stund, er tvær
milljónir Berlínarbúa þyrptust út á götur, upp
á húsþök og út í glugga, til þess að fagna fremsta
leiðtoga hins frjálsa heims.
Móttökurnar, sem forsetinn fékk voru slík-
ar, að þeim verður ekki með orðum lýst og
fékk engum dulizt, að hrifning Berlínarbúa var
sönn og einlæg, hún kom beint frá hjartanu.
Svipmyndirnar líða fram í hugann — for-
setinn ávarpar gífurlegan mannfjölda á Ráð-
hústorginu í Berlín og er hann endar ræðu sína
með orðunum „Sérhver frjáls maður er borg-
ari Berlínar, Ich bin ein Berliner“, ætlar allt
um koll að keyra — forsetinn þögull og alvar-
legur á svip við Smánarmúrinn hjá Branden-
borgarhliðinu, þar sem leppar Ulbrichts hafa
sett upp rauðar dulur daginn áður, til þess að
varna honum sýn yfir í Austur-Berlín og Aust-
ur-Berlínarbúum að sjá hann — forsetinn 1
Freie Universitet í Berlín, þar sem hann flytur
sköruglega og þróttmikla ræðu og segir, að sú
stund muni nær en margan gruni að hinar kúg-
uðu þjóðir Austur-Evrópu öðlist frelsi á ný —
forsetinn í Kongresshalle í Berlín, þar sem leið-
togar verkalýðshreyfingarinnar afhenda honum
FRJÁLSVERZLUN
11