Frjáls verslun - 01.08.1963, Qupperneq 22
Skipting kommúnistaflokkanna milli Rússa og Kínverja
Hlynntir Sovétríkjunum Hlynntir Kína Klofnir
Austur-Evrópa 7 1 (Albanía)
Vestur-Evrópu 15 3 (Svíþjóð, Belgía,
Ítalía)
Asía 3 (Neapel, Mongolía, 8 (Japan, Malaya, 4 (Burma, Laos,
Fillipseyjar) N- og S-Vietnam Ceylon, Indland)
Austurlönd nær 8 N- og S-Kórea, Indó-
Afríka 7 nesía, Cambodia)
Mið- og Suður-Ameríka 18 2 (Brasilía, Mexikó)
Önnur lönd 3 1 (Nýja Sjáland)
Samtals 61 10 9
leppríkjum þeirra í Austur-Evrópu, (í þessari
tölu eru meðtaldir 1.7 milljón júgóslavneskra
kommúnista).
Eftir eru þá um tvær milljónir flokksbund-
inna kommúnista í öðrum heimshlutum.
Telja má víst að Rússar njóti stuðnings flestra
skráðra kommúnista í Vestur-Evrópu en beir
eru um 1.8 milljónir og ennfremur er álitið að
góður hluti þeirra sem kommúnista styðja í
Mið- og Suður-Ameríku, en beir eru um 2.2
milljónir séu Rússum hlynntir í þessari deilu.
í öðrum löndum heims eru um 50.000 flokks-
bundnir kommúnistar og eru þeir að megninu
til taldir styðja Rússa, a. m. k. sem stendur.
Gefur ekki rétta mynd.
Af þessum tölum er auðvitað ljóst hvers vegna
Kínverjar vilja heldur hafa þennan hátt á þeg-
ar metin eru styrkleikahlutföll flokkanna. En
einnig þessi aðferð gefur ekki fullkomlega rétta
mynd.
í fyrsta lagi er ákaflega erfitt og stundum
gjörsamlega ómögulegt að vita hvað sá hópur
manna er stór í einum ákveðnum kommúnista-
flokki, sem er Kínverjum hlynntur, þótt flokk-
urinn að öðru leyti standi með Rússum. Þessi
tala er sífelldum breytingum háð og oft bland-
ast saman við þessi mál persónulegar deilur og
flokkadrættir. Þeir sem með þessum málum
fylgjast verða því að meta þetta eftir hinum
mismunandi greinum sem um þessi mál birtast
1 málgögnum kommúnistaflokkanna.
Önnur ástæða fyrir því hve erfitt er að meta
þessi styrkleikahlutföll er sú, að þeir flokkar
sem raunverulega fylgja Kínverjum að málum
reyna samt sem áður að sigla milli skers og báru
vegna þess að þeir gera sér grein fyrir því að
hernaðarleg og efnahagsleg aðstoð til þeirra
hlýtur fyrst og fremst að koma frá Rússum.
Þannig eru þessu t. d. háttað með flokkana í
Indónesíu, Norður-Kóreu og N-Vietnam.
Flokkaskipting eftir litarhætti.
Eitt ákaflega mikilsvert atriði í þessu sam-
bandi er sú staðreynd að flokkaskiptingin fer
í megindráttum eftir landfræðilegum línum.
Kínverjar eru nefnilega að reyna að egna hina
hörundslituðu kommúnista í Asíu og Afríku
gegn hvítu mönnunum í Kreml. Þetta veldur
forystu sovézka kommúnistaflokksins miklum
áhyggjum. í hinu Opna bréfi miðstjórnar sov-
ézka kommúnistaflokksins voru Kínverjar sak-
aðir um að reyna að afla sér fylgis meðal fólks-
ins í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku ,,á auð-
veldasta hugsanlegan hátt“. Þessi viðleitni Kín-
verja til þess að notfæra sér kynþáttavanda-
málin í þessu sambandi er sérstaklega auðveld
vegna þess að þessar hörundslituðu þjóðir búa
yfirleitt við slæm lífskjör alveg eins og Kínverj-
ar sjálfir.
Rússar eru mjög hörundssárir fyrir þessari
hlið mála og þetta er vestrænum þjóðum held-
ur ekkert fagnaðarefni, því að Sovétríkin vilja
umfram allt ekki láta það líta svo út að þau séu
að reyna að ná samkomulagi við Vesturveldin
af þessum sökum. Ekkert gæti orðið þeim til
jafn mikils tjóns innan hinnar alþjóðlegu komm-
únistahreyfingar. Rússar munu að sjálfsögðu
gera allt sem þeir geta til þess að bera kommún-
ismann á borð, sem framtíðina fyrir allar þjóð-
ir, af hvaða kynþætti sem þær eru.
Aðal yígvöllurinn í þessum efnum eru hin
1%
FHJÁLS VEBZPUN