Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1964, Blaðsíða 13

Frjáls verslun - 01.04.1964, Blaðsíða 13
sem sé nótina, sem kostar svona upp undir eina milljón hver, og á hverjum bát þurfa að vera fyrir hendi 3—4 nætur. Við þekkjum það af reynslunni að útgerðarfyrirtæki sé fyrir beztu að hafa eigin viðgerðarmönnum á að skipa, því að sífellt þarf að vera að dytta að einhverju. — Þær eru orðnar miklar breytingarnar síð- an þér hófuð útgerð 17 ára gamall og þangað til nú, þegar þér hafið fimm um sjötugt? — Já, ekki er því að neita. Fyrsti báturinn, sem ég eignaðist, var sexæringur, og sá fyrsti með vél aðeins átta tonn, nefndist Höfrungur. Nýjasti báturinn okkar heitir líka Höfrungur, hinn þriðji er 276 tonn og að flestu leyti öðru feikiólíkur nafna sínum hinum fyrsta, sem ekki er nema von, því að nýiasti Höfrungurinn okk- ar að einu leyti einstætt fiskiskip í allri veröld- inni. Hann er sem sé eini báturinn í heiminum, . sem búinn er þrem skrúfum, einni að framan, annarri á stýrinu og hinni þriðju á venjulegum stað. Það hefur sannarlega margt breytzt og ekki nema eðlilegt. áður var stutt á miðin að sækja, fiskurinn lá undan landi rétt fyrir utan land- steina. Nú er svo komið, að bátarnir geta þurft að fara alla leið austur fyrir Vestmannaeyjar til að kasta á síld. Það er margt, sem orsakað hefur breytta tækni. Þegar ég var 15 ára á skozka togaranum forðum daga, og fékk hvorki meira né minna en 50 krónur á mánuði, fyrir að hausa allan fiskinn um borð, þótti það að vísu hátt kaup, en það hefur víst ekki verið of mikið fyrir alla orkuna, sem í þetta fór. Þá varð maður að beygja sig eftir hverjum einasta fiski og örþreyttur eftir hverja hrotu. Nú orðið renn- ur fiskurinn á færibandi til þeirra sem gera að honum í nýtízku aðgerðarstöð okkar. — Þér hafið komið með ýmsar nýjungar í fisk- veiðum og fiskiðnaði, hefur það allt borið þann árangur, sem þér væntuð? — Flest, en ekki allt. Við höfum gert ýmsar tilraunir, ég og Sturlaugur sonur minn, sem ver- ið hefur meðstjórnandi fyrirtækisins um mörg ár. Eg var árum saman að „agitera“ fyrir Faxa- síldinni, og þar kom að því, að farið var að sinna henni sem vert var. Við höfum verið lang- hæstu saltendur á Faxasíld hin síðustu ár, og hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna urðum við þriðju í röðinni. Um tíma áttum við tólf báta, og voru skipverjar þá 132, en nú höfum við selt 5 af tré- bátunum og eigum í dag aðeins sjö, á þeim eru 77 menn. En hjá fyrirtækinu hafa unnið 100— 500 manns eftir því sem verkefni hafa gefizt hverju sinni. Við fluttum inn fyrstu kraftblökk- ina til fslands alla leið frá Seattle vestur á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna. Það var 1956, og við leigðum sérstaka flugvél frá Braathen til að flytja fyrstu stóru síldarnótina hingað alla leið, og þó komst nótin ekki öll með í einni ferð. En Kraftblökkin er verkfæri, sem borgar sig. Aftur á móti eyddum við einni milljón í tilraun- ir, sem ekkert fékkst út úr. Það var að vinna gúanín, lakklitaða silfrið úr síldarhreistrinu (sem nú er notað í bílalökk) í þeim tilgangi að húða með perlur í festar. Við réðum hingað tvo Þjóðverja, sem þóttust vera sérfræðingar, ekki vantaði það. Þeir voru nú ekki burðugri en svo, Skrifstofu- og verzlunarhús Haralds Böðvarssonar. FRJÁLS VERZLUN 13

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.