Frjáls verslun - 01.04.1964, Side 17
AF ERLENDUM VETTVANGI______________
TEKST GOLDWATER ÁÐ SIGRA!
Ákvörðun Landsþings Repúblikana í San
Fransisco að útnefna Barry Goldwater, öldunga-
deildarmann frá Arizona, forsetaefni flokksins
við forsetakosningar þær, sem fram fara í Banda-
ríkjunum þ. 3. nóv. nk. hefur að vonum vakið
mikla athygli og umræður um heim allan.
Yfirleitt hefur útnefningu Goldwaters verið
mjög illa tekið og virðist svo sem margir telji
heimsendi á næstu grösum, nái Goldwater kjöri
sem forseti Bandaríkjanna.
Margt bendir til þess að útnefning Goldwat-
ers muni hafa víðtækari áhrif og meiri þýðingu
en þá, að hægri menn hafi með henni náð völd-
um í Repúblikanaflokknum að þessu sinni.
Þess sjást ýmis merki, að þungar undiröld-
ur séu að verki undir tiltölulega friðsælu yfir-
borði bandarísks stjórnmálalífs og vænta megi
ýmissa tíðinda þaðan á næstunni.
Fylgi það, sem George Wallace, ríkisstjóri í
Alabama hlaut í prófkosningum demókrata í vet-
ur og vor sýnir, að jafnvel 1 Norðurríkjunum er
kynþáttavandamálið erfiðara viðfangs, en talið
hefur verið, sem og nú er komið á daginn með
þeim óeirðum sem orðið hafa í New York borg.
En þótt kynþáttamálin séu þýðingarmikill
þáttur í þessu sambandi er ekki ólíklegt að ýmis
önnur öfl séu einnig að verki.
Okkur hættir stundum til að gleyma því, að
það eru ekki nema rúmlega tuttugu ár síðan
Bandaríkjamenn sneru frá einangrunarstefnu
sinni og fóru að hafa meiriháttar afskipti af mál-
efnum þjóða um víða veröld. Á þessum árum
hafa þeir staðið í fylkingarbrjósti frjálsra þjóða
í baráttunni við heimsvaldastefnu kommúnista.
Þeir hafa borið þyngstu byrðarnar af herbúnaði
vestrænna ríkja á þessum tíma og þeir hafa aus-
ið fé á báða bóga til endurreisnar Vestur-Evrópu
eftir stríðið og síðar til þess að viðhalda áhrif-
um og aðstöðu vestrænna ríkja meðal hinna ný-
Barry Goldwater, öldungadeildarmaður
frjálsu þjóða Asíu og Afríku. Allt hefur þetta
kostað bandaríska skattgreiðendur mikið fé og
oftar en hitt virðist árangurinn minni en efni
hafa staðið til.
Það þyrfti því engan að undra þótt bandarísk-
ir kjósendur væru nú þeirrar skoðunar að breyta
ætti til og reyna aðra og harðari pólitík, þá póli-
tík, sem Goldwater býður upp á og lofar að fram-
fylgja, verði hann kjörinn næsti forseti Banda-
ríkjanna.
í þessu virðist mér liggja mikilvægi útnefn-
ingar Goldwaters, hún er merki þess að þeirri
skoðun vaxi nú fylgi í Bandaríkjunum að þau
hafi verið gjöful og undanlátssöm undanfarin
ár og því sé nú ekki úr vegi að reyna aðra og
nýja stefnu í samskiptum við aðrar þjóðir.
FRJÁLS VERZI.UN
17