Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1964, Qupperneq 19

Frjáls verslun - 01.04.1964, Qupperneq 19
Fiugfélag Isiands almenningshlutafélag! Á aðalfundi Flugfélags íslands, sem haldinn var að Hótel Sögu 3. júní sl. var samþykkt samhljóða tillaga frá Eyjólfi Konráð Jónssyni, ritstjóra, þess efnis, að fundurinn fæli stjórn félagsins að athuga möguleika á útgáfu jöfn- unarhlutabréfa, en bjóða síðan út nýtt hluta- fé meðal almennings. í samræmi við þetta mun nú fara fram at- hugun á því á þessu ári, hvort fært þykir að bjóða út nýtt hlutafé meðal almennings. Ef af því verður mun Flugfélag íslands verða fyrsta almenningshlutafélagið á íslandi og jafnframt gjörbreytast allur rekstursgrundvöllur þess. Hér fer á eftir frásögn af aðalfundi Flugfé- lagsins. Fundarstjóri var Guðmundur Vilhjálmsson og fundarritari Jakob Frímannsson. Eftir að fundur hafði verið settur, flutti forstjóri Flug- félagsins, Örn Johnson skýrslu um starfsemi fé- lagsins á liðnu ári. Flugið: í skýrslu forstjórans kom fram að flugið, bæði innan lands og milli landa hafi árið 1963 verið rekið með svipuðu sniði og árið á undan. Nýr þáttur var tekinn upp, þar sem var flug til og frá Færeyjum, sem átti að hefjast í maí- mánuði, en vegna flugvallarframkvæmda í Fær- eyjum hófst það ekki fyrr en í júlí. Á áætlunarflugleiðum milli landa voru fluttir 28,937 arðbærir farþegar (25,750 árið á undan) og í leiguflugi 6,510. Auk þessara farþega voru fluttir 600 farþegar í Færeyjafluginu þann tíma sem það var starfrækt í fyrrasumar. Arðbærir vöruflutningar milli landa námu 332,5 lestum (286,5) og póstflutningar 90,6 lestum (72). í innanlandsflugi voru fluttir 62,056 arðbærir farþegar (61,554) og fluttar voru 937 lestir af vörum (1109) og 17,4 lestir af pósti (126,9). Alls voru flugvélar félagsins á lofti 9,819 klst. Samanlagður fjöldi arðbærra farþega í innan- lands- og millilandaflugi varð því árið 1963, 90.993 og auk þess í leiguflugi 6,510. Samtals 97.503. Þá ræddi Örn forstjóri afkomu félagsins. Þrátt fyrir aukinn tilkostnað á ýmsum sviðum skilaði félagið nú tekjuafgangi að upphæð 260 þús. og höfðu þá eignir verið afskrifaðar um yfir 12 millj. króna. Hagnaður af millilandaflugi varð 5,4 millj. kr. en tap á innanlandsflugi 5,2 millj. Miðað við fyrra ár, batnaði afkoma innanlandsflugs um 1,7 millj. kr. Heildarvelta félagsins á árinu varð rúmlega 153,8 millj. króna. Forstjóri ræddi ýmsa þætti starfsemi félags- ins, landkynningarstarf þess, en til þess ver fé- lagið miklu fé. Ein flugvél félagsins er staðsett í Grænlandi og annast þar ískönnunarflug. Nýr þáttur Græn- landsflugs var upp tekinn á árinu, skíðaflug til einangraðra staða á austurströnd landsins. Auk þessa efndi félagið til eins og fjögurra daga skemmtiferða til Grænlands. Starfsfólk félagsins var á árinu 350 manns. Á fundinum var samþykkt að greiða hluthöf- um 10% ársarð. Endurnýjun flugflotans: Örn Ó. Johnson skýrði frá því, að undanfarið hefðu farið fram athuganir á flugvélakaupum fyrir innanlandsflugið.. Hann upplýsti, að stjórn Flugfélags íslands hefði samþykkt að leita eftir kaupum á skrúfuþotu af gerðinni Fokker Friend- ship. Viðræður við fulltrúa verksmiðjunnar hefðu farið fram en ennþá væri of snemmt að segja um hvort af samningum yrði. (Síðan hef- ur F.f. gert samning um kaup slíkrar flugvélar og verður hún afhent vorið 1965.) Ljóst væri að með slíkri flugvél stórbatnaði aðstaða innanlandsflugsins, enda þótt hér væri um mikla fjárfestingu að ræða, eða um 40 millj. kr.. Þá ræddi forstjóri vandamál sem skapaðist við skefjalausa samkeppni á flugleiðum félags- ins innanlands og sem gætu leitt til minnkandi þjónustu við landsmenn ef ekki yrði tekið á þeim málum með festu. Óttar Möller forstjóri Eimskipafélags íslands kvaddi sér hljóðs og þakkaði Flugfélaginu störf þess frá öndverðu og góða þjónustu við lands- (Framh. á bls. 9) FRJÁLS VERZLUN 19

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.