Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1964, Page 24

Frjáls verslun - 01.04.1964, Page 24
 LESTRARVÉLIN Tommi hafði mikið dálæti á páfagaukum og átti nokkra heima í stofunni sinni. Dag nokk- urn kom hann auga á einn bráðlaglegan í fugla- búð, en við nánari eftirgrennslan gaf hann ekk- ert hljóð frá sér. Tommi sneri sér að kaupmann- inum og spurði: „K-ka-nn þ-þe-þessi f-fugl að t-t-tala?“ Kaupmaðurinn svaraði: „Herra minn, ef þessi páfagaukur væri ekki betur talandi en þér, mundi hann fljótlega verða höfðinu styttri.“ Mike við Pat: „Jemundur minn! Hvar í ósköp- unum fékkstu glóðarauga og blóðnasir?" Pat við Mike: „Tja, það var þessi ítali, Con- solino, sem byrjaði að slást við mig.“ Mike við Pat: „Og þú, sem ert af göfugri ætt, að þú skulir láta bölvaða blók eins og þennan ítala berja þig sundur og saman!“ Pat við Mike: „Segðu nú ekki fleira í þessum dúr að sinni, Mike. Tölum ekki illa um þá, sem ekki eru lengur í lifenda tölu. * Amerískt blað hefur nýlega lagt þessa spurn- ingu fyrir nokkra heimsfræga menn: — „Hvað dreymdi yður ungan um að verða, þegar þér yrðuð fullorðinn?“ — Og þessi svör bárust m. a.: Dr. Albert Sshweitzer: Mig langaði mest til að verða orgelsmiður. Richard Nixon, fyrv. forsetaefni Bandaríkj- anna: Ég ætlaði að verða íþróttafréttaritari. James Stewart kvikmyndaleikari: Ég lét mig dreyma um að verða töframaður. Aristoteles Onassis skipamilljónari: Ég var ákveðinn í að verða hraðritari. Hver þeirra ætli að hefði orðið hamingjusam- ari, ef bernskudraumarnir hefðu rætzt? * Þeir eru, því miður, allt of fáir, sem eru það skynsamir að geta komizt að raun um, hvað þeir eru heimskir og fáfróðir. 24 FRJ ALS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.