Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1971, Síða 32

Frjáls verslun - 01.08.1971, Síða 32
Offsetprentun skapar skilyrði fyrir breytt útlit blaða. milljón frá hverju dagblaði. Félagið hefur aflað sér 20 millj- ón króna ríkisábyrgðar, en reiknað er með að kostnaður við vélakaup og uppsetningu muni nema tuttugu og þrem milljónum króna. Lán eru til fimm, tíu og fimmtán ára. Auk þessa hafa verið fest kaup á 600 fermetra húsnæði í Síðu- múla 14. Sérstakt hlutafélag verður myndað um húsnæðið. í þessu sambandi má geta þess að Reykjaprent h.f., útgefandi Vísis, hefur keypt hluta af sama húsi fyrir starfsemi ritstjórnar o. fl. Skrifstofustjóri Blaða- prents h.f. hefur verið ráðinn Ólafur Eyjólfsson, en aðalverk- stjóri í prentsmiðju Óðinn Rögn valdsson og aðstoðarverkstjóri Ólafur Ingi Jónsson. Fyrstu stjóm Blaðaprents h.f. skipa Jónas Kristjánsson, formaður, Ásgeir Jóhanness., Helgi Bergs og Eiður Bergmann. en vara- stjórn skipa Sveinn R. Eyjólfs- son, Sigurður Ingimundarson, Kristján Benediktsson og Ingi R. Helgason. Skrifstofustjórinn mun annast allan daglegan rekstur, en fyrst um sinn er stjórninni ætlað að vera mjög virk í stjórn fyrirtækisins. For- maður gegnir störfum eitt ár í senn. Tækin, sem keypt hafa verið eða pöntuð til hinnar nýju offsetprentsmiðju eru að- allega frá Bandaríkjunum, en ýmis smærri tæki eru norsk. Offsetprentvélin er af svo- nefndri Goss-Community-gerð frá Bandaríkjunum. Hún getur prentað 40 síður í einu. Setning verður svonefnd filmusetning. Setningarvélarnar eru ekki ó- svipaðar ritvélum. Þær fram- leiða strimla með götum, en tölva tekur við og les á striml- ana og breytir efni þeirra í filmu, sem síðan er framköll- uð. eins og venjuleg filma. Starfsmenn prentsmiðjunnar eru í kringum fjörutíu talsins og vinna þeir á vöktum og er sennilegt að unnið verði í prent- smiðjunni nær allan sólarhring- inn. Blaðaprent h.f. stendur í viðræðum við Hið íslenzka prentarafélag og Offsetprent- arafélag íslands um stéttar- lega stöðu og kjör starfsmanna. Þar sem prentsmiðjur dagblað- anna leggjast að mestu leyti niður verður reynt að nýta starfskrafta þeirra í hinni nýju prentsmiðju. í Noregi var reynslan sú, að vel tókst að nýta eldri starfskrafta til nýrra starfa við breyttar aðstæður. Þetta mál er nokkuð viðkvæmt fyrir alla aðila, þar sem unnt er að hagnýta stúlkur við filmusetninguna í stað setjara, sem eru dýrari starfskraftur. Verður reynt að finna viðun- andi lausn á þessu máli í við- ræðum aðila. Uppsetning tækja verður framkvæmd af sérfræðingum frá framleiðendum og eru þau flest komin til landsins. Hins vegar hefur uppsetning tafizt og líklegt að prentsmiðjan taki ekki til starfa fyrr en um það bil mánuði síðar en upphaflega hafði verið ráðgert. En um leið á sér stað bylting í íslenakri dagblaðaútgáfu. Það er ekki nóg með að tæknilegir möguleikar breytist og aukist, heldur er með þessu opnaður möguleiki fyrir enn víðtækara samstarf dagblaðanna fjögurra t.d. um sameiginlega blaðadreifingu og fleira. Þær hugmyndir eru þó enn á óformlegu umræðustigi. ÓBEINN HAGNAÐUR. Þessi samvinna mun ekki hafa í för með sér sparnað í prentun dagblaðanna a. m. k. fyrst um sinn, enda þótt hún hafi gjörbreytt möguleikum dagblaðanna, að vísu mismun- andi mikið. til að endurnýja prenttækjakost sinn á viðun- andi hátt. Fyrir eitt blaðið verð- ur prentunin dýrari en hingað til, en fyrir annað getur hún ef til vill skapað sparnað a.m.k. þegar til lengdar lætur. Þessi mismunur skapast af mismun- andi aðstæðum í núverandi prentsmiðjum dagblaðanna og því sem lagt er í prentunina. Það má því segja að hin nýja samvinna breyti ekki miklu um fjárhag blaðanna, sem hefur æ- tíð verið þröngur. En verri hefði hann getað orðið, ef þessi sam- vinna hefði ekki tekizt og hvert blað hefði orðið að endurnýja hjá sér upp á eigin spýtur. Þá hefði aðstaða þessara blaða til samkeppni við Morgunblaðið ef til vill versnað til muna, ef Morgunblaðinu hefði tekizt að fullkomna prentun sína, án þess að hin blöðin gætu stigið hlið- stæð skref. Samkeppnislegir yf- irburðir Morgunblaðsins eru 32 FV 8 1971

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.