Frjáls verslun - 01.08.1971, Page 7
því að afla sér umboða fyrir
lleiri erlendar vörusýningar
til að geta bætt þjónustu sma
við íslenzk fyrirtæki, sem
áhuga hafa á þátttöku í vöru-
sýningum erlendis. íslenzkir
framleiðendur taka í sívaxandi
mæli þátt í vörusýningum er-
lendis, og það hefur átt rikan
þátt í aukningu útflutnings
síðustu ár, svo sem á ýmsum
iðnaðarvörum. Þátttaka í slík-
um syningum heiur longu vei'-
ið viðurkennd sem ein allra-
mikilvægasta leiðin til erlendra
markaða, en þó því aðeins, að
til hennar sé á allan hátt vand-
að. Kaupstefnan — Reykjavík
h.f. hefur nú fengið mikla
reynslu við forgöngu vörusyn-
inga og umboðsmennsku. Auk
þess sem sú starfsemi verður
aukin, hyggjast forráðamenn
fyrirtækisins í framUöinni
veita verktakaþjónustu á sýn-
ingarsvæðum, það er taka að
sér að skipuleggja sýningar á
vegum annarra aðila. Annar
nýr þáttur í starfseminni á að
verða ráðstefnuþjónusta við
þau fyrirtæki, sem hafa áhuga
á að halda ráðstefnur á íslandi.
Auk þess er ráðgerð nokkur
útgáfustarfsemi í þessu sam-
bandi.
Við hittum að máli Ragnar
Kjartansson framkvæmdastjóra
fyrirtækisins, sem jafnframt
er framkvæmdastjóri vörusýn-
ingarinnar, og spurðum hann,
hvernig skipulagning slíkrar
sýningar færi fram og hvernig
fyrirtæki sem þetta stæði und-
ir sér.
ÞARF AÐ TAKA ÁKVÖRÐUN
TVEIMUR ÁRUM ÁÐUR
Ragnar sagði, að gera yrði
ráð fyrir, að ákvörðun um
slíka sýningu yrði að taka sem
næst tveimur árum áður en
hún væri tímasett. Þá þegar
yrði að hefja kynningarstarf-
semi fyrir sýninguna. Fjöl-
mörg fyrirtæki, einkum hin
erlendu, gerðu áætlanir langt
fram í tímann. Þess vegna yrði
að kynna þeim sýninguna
löngu áður en hún væri hald-
in.
Kynningarstarfsemin fyrir
Alþjóðlegu vörusýninguna hef-
ur verið mjög ýtarleg. Öllum
íslenzkum fyrirtækjum, sem
líkleg þóttu til þátttöku í sýn-
ingunni, voru sendar upplýs-
ingar um hana, alls á annað
þúsund fyrirtækjum. Jafnframt
Sýningarstjórnin, Gísli B. Björnsson, Haukur Björnsson og Ragn-
ar Kjartansson.
Ein ai sýningum Kaupstefnunnar frá Austur-Evrópu.
Heimilið — veröld innan veggja — var fyrsta verk Kaupstefn-
unnar eftir endurskipulagninguna. Hér sjást m. a. Þórir jonsson
forstjóri, og júlíus P. Guðjónsson stórkaupmaður ásamt jap-
önskum fulltrúa frá SONY, er rœðir við Gunnar J. Friðriksson
iðnrekanda.
FV 8 1971 — FYLGIRIT
5