Frjáls verslun - 01.08.1971, Qupperneq 11
Höfum nú sprengt af okkur
rammann, sem sýningahöllin
setur.
Viðtal við Gísla B. Björnsson, auglýsingateiknara, sem gerði
skipulag vörusýningarinnar.
„Það sést af tjaldskálunum,
að við höfum nú sprengt þann
ramma, sem sýningarhöllin set-
ur vörusýningum. Hún reynist
í þetta sinn of lítil.“
Þetta segir Gísli B. Björns-
son auglýsingateiknari, en tíu
manna auglýsingastofa hans,
Auglýsingastofan hf., hefur
teiknað skipulag sýningarsvæð-
isins, merki, plaköt, bæklinga
o. fl. og séð um skreytingu
á því. Auk þess, sem sýningar-
svæðið í höllinni er fullnotað,
eru utan hennar tvö tjöld, ann-
að rúmlega 1000 fermetrar og
hitt 314 fermetrar.
„Ég hef verið að einhverju
leyti viðloðandi þær sýningar,
sem hér hafa verið haldnar,“
segir Gísli, ,,en þetta er önnur
sýningin, þar sem við höfum
teiknað kerfið og annazt skreyt-
ingu. Hin fyrri var Heimilis-
sýningin í fyrra.“
FV: Hvernig finnst þér að-
staðan fyrir slíkar sýningar
vera hér í Laugardal?
G: Aðstaðan er mjög góð,
þótt ýmislegt mætti betur fara.
Auðvitað hefur það ýmsa van-
kanta, að þetta er íþróttahöll,
til dæmis í sambandi við frá-
gang, og veldur töluverðum
kostnaði. Aðstaðan mun vænt-
anlega batna innan skamms.
Það hefur staðið til, að reistir
yrðu skálar austan hallarinnar,
þar sem yrði aukin aðstaða til
æfinga fyrir íþróttamenn og þá
jafnframt fyrir sýningar. Bíla-
stæði eru enn ekki nægileg við
sjálfa sýningarhöllina. Ef hér
á að verða góð framtíðarað-
staða, þá þarf að gera þetta
betur úr garði.
Hins vegar finnst mér, að
þær sýningar, sem hér hafa
verið, hafi yfirleitt verið full-
komlega sambærilegar við það,
sem erlendis gerist. Mér fannst
til dæmis sýningin í fyrra fylli-
lega standa erlendum vörusýn-
ingum á sporði um útlit og
allan frágang. Þetta var einnig
álit erlendra kunnáttumanna,
sem hingað komu.
„RAUNVERULEG SÖLU-
MENNSKA OF LÍTIÐ
STUNDUГ
FV: Hvað finnst þér svo
helzt ábótavant við sýningarn-
ar hér?
G: Það vantar helzt, að sýn-
endur geri sér gi’ein fyrir því,
Gísli:
„Kaupendur íd aðstöðu til að
kynnast vörum og fd saman-
burð."
að það er ekki nóg, að þeir
leggi mikið í stofnkostnað við
að koma sinni deild upp. Þetta
eitt nægir ekki, heldur þarf
líka að vera vel starfað í deild-
unum, meðan sýningin stendur.
Fyrirtækin verða að hafa góða
sölumenn í sínum deildum og
gera ýmislegt til að laða fólk
þangað.
Fyrirtækin þurfa að hafa
starfsfólk, sem getur svarað
spurningum sýningargesta og
gefið réttar upplýsingar um
vörurnar. Erlendur sölustjóri,
sem kom hingað í fyrra, var
undrandi á því, hvað mörg fyr-
irtækin stunduðu lítið raun-
verulega sölumennsku á sýn-
ingunni. Þó sá hann margar
lofsverðar undantekningar frá
því.
FV: Ná þessar sýningar
markmiði sínu?
G: Já, mér sýnist það. Þær
veita fyrst og fremst gullið
tækifæri til að kynna nýjar
vörur. Þarna geta hugsanlegir
kaupendur fengið prýðilega að-
stöðu til að kynnast vörunum
og fá samanburð. Sýnendur á
fyrri vörusýningum láta nær
allir mjög vel yfir reynhlunni,
og margir segja frá mikilli
söluaukningu eftir þær.
Þarna kemur geysilegur
fjöldi fólks, og þau fyrirtæki,
sem ganga snyrtilega frá sín-
um deildum, skapa um leið þá
tilfinningu hjá fólki, að þeim
megi treysta. Fallega teiknuð
og snyrtileg deild vekur traust.
Hún hefur mikil áhrif.
Hér á landi eru mörg lítil
fyrirtæki á víð og dreif. Hvergi
geta þau haft jafn góða að-
stöðu til að ná til fjölda fólks
eins og á vörusýningu, þar sem
gestir eru 40-50 þúsund og ef
til vill fleiri.
50 ÞÚSUND ÞÆTTI GOTT í
DANMÖRKU
FV: Eiga alþjóðlegar vöru-
sýningar framtíð hér á landi?
G: Það tel ég tvímælalaust,
ef þær eru ekki haldnar of
þétt. Við höfum hugsað okkur
að hvíla næsta árið og hafa
FV 8 1971 — FYLGIRIT
9