Frjáls verslun - 01.08.1971, Page 22
um hlutum, þar sem iðnfram-
leiðsla hefur notið góðs af
geimrannsóknum Bandaríkj-
anna, því Artech Corporation
var að vinna að rannsóknum
á verndun matvæla fyrir geim-
fara, þegar I.W.I. fætídist.
FV: Þér hafið unnið mikið
við ýmsar ísienzkar nýjungar í
sjávarútvegi. Hvernig verða
slíkar nýjungar til?
ÁÓ: Þörfin er undirstaða.
Það eru framsýnir framleið-
endur, sem eru oft höfuðhvat-
inn að vélvæðingu, til dæmis
verkstjóri, framkvæmdastjóri
og aðrir, sem vinna við fram-
leiðsluna. Úr verkefninu vinna
síðan þeir aðilar, sem hafa
þekkingu á vélum og iðnaðin-
um. Við leggjum áherzlu á að
hvetja þá, sem við skiptum við,
til að leiðbeina okkur. Vélin
verður svo smáim saman til
með elju og þrautseigju kunn-
áttumanna.
FV: Nú eru íslenzkar nýj-
ungar kynntar erlendis í vax-
andi mæli. Er slíkt kynningar-
starf ekki all-kostnaðarsamt?
ÁÓ: Þátttaka í vörusýning-
um erlendis er mjög kostnaðar-
söm. Við höfum því lagt
áherzlu á, þegar við seljum vél-
ar erlendis, að fá leyfi fyrsta
kaupandans í hverju landi til
þess, að aðrir hugsanlegir kaup-
endur megi líta á vélarnar hjá
honum. Við höfum mikið gert
að því að senda fréttatilkynn-
ingar til erlendra blaða, og það
hefur reynzt mjög áhrifaríkt.
Við höfum m. a. selt íslenzkar
fiskvinnsluvélar til Danmerk-
ur, Englands, Skotlands og ír-
lands, og hafa þær verið kynnt-
ar þar.
FV: Hvað finnst yður um
vörusýningar hér á landi, og
teljið þér, að þess sé að vænta,
að hér verði til dæmis haldnar
alþjóðlegar sjávarútvegssýning-
ar á nokkurra ára fresti?
ÁÓ: Ég gæti vel hugsað mér,
að hér gætu orðið nokkuð reglu-
legar alþjóðlegar sjávarútvegs-
sýningar, en þá yrði að sjálf-
sögðu að kynna og auglýsa
sýningarnar meira en nú er
gert. Of fáir aðilar erlendis vita
af þessum sýningum, og það
mundi auka áhrif sýninganna
geysilega, ef þær væru betur
auglýstar. Ég tel, að alþjóðleg-
ar vörusýningar eigi framtíð
hér á landi, því þótt þær séu
nokkuð kostnaðarsamar, þá er
ekkert vafamál, að þær eru
ekki einungis æskilegar heldur
nauðsynlegar.
Prýðið heimili yðar með
SANDERSON
vinyl veggfóðri
© Við bjóðum yður vinyl veggf’óður frá
SANDERSON með lími á bakhliðinni, það
léttir uppsetniugu.
• Innflutningur hafinn á SANDERSON glugga-
tjaldaefnum með sama mynstri og er á vegg-
fóðrinu.
Veggfóðrarinn hf.
Hverfisgötu 34 — Reykjavík — Símar: 13150 - 14484
20
FV 8 1971
FYLGIRIT