Frjáls verslun - 01.12.1972, Blaðsíða 13
I STIJTTU MALI...
# Verzlunarfloti lieíuiwius
Ivöfaldasl á 11 árum
Allur verzlunarflotinn er talinn nema um
268 millj. hrúttórúmlestum. i 1. sæti er Lí-
bería, síðan Japan, Bretland, Noregur, So-
vétríkin og Grikkland. Um 39.2% flotans eru
olíuskip. Sem kunnugt er láta margir skipa-
kóngar skrá skip sín undir Líberíufána af
hagkvæmnisástæðum, enda þótt þau séu í
reynd gerð út frá öðrum löndum.
# Keunsla í fjölmiölun?
Fyrir þinginu liggur þingsályktunartillaga
þess efnis, að tekin verði upp kennsla í fjöl-
miðlun við Háskóla Islands. Fr bún lmgsuð
fyrir blaðamenn, starfsmenn við hljóðvarp
og sjónvarp, auglýsingastofur, hugsjóna-
stofnanir og stjórnmálaflokka, svo og ])laða-
fulltrúa. 1 tillögunni er m.a. gert ráð fyrir,
að báskólinn reki sína eigin útvarpsstöð.
Hvað gerist?
# llýraljów
Björn á Löngumýri lét ljós sitt sldna ný-
lega í þinginu og lagði m.a. til að viðskipta-
deild háskólans yrði lögð niður aðallega
í sparnaðarskyni. Honum láðist að athuga,
að hún er ódýrasta deild skólans á nemanda
reiknað. Sennilega hefur Skjónumálið sann-
að honum ágæti lögfræðinga.
# lasíei^iiamarkiiöiiriiin
Ekki mun fjarri lagi að íbúðaverð (á
eldra húsnæði) hafi tvöfaldazt í Reykjavík
frá árinu 1965. Vísitala byggingarkostnaðar
hefur þó stigið enn meira, eða rösklega tvö
og hálffa'ldazt. Vísitala byggingarkostnaðar
hefur stigið öll árin, en söluverð lækkaði
hcinlínis árin 1967 og 1968, eins og þjóðar-
tekjur. Þær mildu hækkanir, sem orðið hafa
á fasteignamarkaðnum undanfarin 2—3 ár
má sennilega rekja til þessa, og minni ný-
bygginga á þessum árum. Einnig á senni-
lega verðstöðvunin hér hlut að máli, því að
„umframkaupgetan“ leitar á þennan mark-
að í ríkum mæli. Síðast en ekki sízt hefur
hin almenna þcnsla aukið eftirspurnina,
l)æði beint og óbeint, þar sem þenslunni
fylgir verðbólga og spákaupmennska, eða
kaup til að reyna að tryggja sig gegn verð-
bólgunni.
# TrTí»«íðm* í báða enda
Segja má með nokkrum rétti, að ríkið
hal'i einna mest upp úr hinni lögboðnu vinnu-
tímastyttingu. Þeir, sem vinna meiri yfir-
vinnu en áður, verða að greiða hærri skatta.
Þeir, sem taka út styttinguna með því að
gera sér glaðan dag, leggja einnig sitt af
mörkum í rildskassann. Er því ríkissjóður
tryggður í báða enda.
# Milliliðir ó|iar£ir‘?
Engir liafa talað af meiri fjálgleika um ó-
þarfa milliliði og afætur þjóðfélagsins en
ýmsir Alþýðubandalagsmenn. Nýjustu öfug-
mælin eru Sölustofnun lagmetisiðnaðarins og
félagsmálaskrifstofur út um allt land. Það
skyldi þó aldrei vera, að sala væri nauð-
synleg starfsemi?
# Yenið 10% ylir
Efnahagsþróun í Japan er undantekning
frá flestum viðurkenndum reglum. Hagvöxt-
ur hefur verið meiri þar en annars staðar,
þrátt fyrir að eigið fé l'yrirtækja sé mjög ht-
ið. Skattar eru tiltölulega lægri á mann, en
verðbólga meiri. Nýjasta dæmið er, að Jap-
anir eru að reyna aðdraga úr útflutningi, sem
vcx hratt, þrátt fyrir gengishækkun ekki alls
fyrir löngu. Og eins og er, selst yenið allt að
10% yfir formlegri skráningu gagnvart doll-
ar. Talið cr, að ný gengishækkun verði ekki
umflúin.
# GATT liraíí
Fyrirímgað er að hefja viðræður í GATT
á næsta ári um allsherjar tollalækkanir milli
EiBErlanda, Japans og Bandaríkjanna og
fleiri aðildarrikja G-AIT. Bandaríkjamenn og
Japanir láta í vcðri vaka, að þeir vilji af-
nám allra tolla. Fáir trúa því, að þeim sé
alvara, því að hjá báðum hafa lcngi verið
liáir vcrndartollar á ýmsum vörum. EBE-
löndin liafa tekið harðari afstöðu og vilja
miða við einhvern sameiginlegan vtri toll.
Undirbúningur viðræðnanna er það skammt
á veg kominn, að ógjörningur er að spá
um árangur þeirra.
FV 12 1972
13