Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1972, Blaðsíða 15

Frjáls verslun - 01.12.1972, Blaðsíða 15
Island Hallgrímskirkja: liosiar 25 milljónir að gera kirkjuskipið fokhelt Flyzt biskupinn í kirkjuturninn? Til byggingar Hallgríms- kirkju í Reykjavík hefur verið varið 35 milljónum króna frá því í desember 1945 til árs- loka 1971, en þá er ekki tekið tillit til gildisrýmunar pen- inga. Þó er þess að gæta, að sjóðir voru tiltölulega litlir framan af, en hin síðustu árin hafa 3-5 milljónir verið fjár- festar í hinu nýja guðshúsi ár- lega. Samkvæmt upplýsingum Hermanns Þorsteinssonar, gjaldkera kirkjubyggingar- nefndar Hallgrímskirkju, munu 60% af kostnaði hafa verið greidd með frjálsum framlögum einstaklinga og fé- laga, 20% hafa komið frá rík- inu og 20% úr kirkjubygginga- sjóði Reykjavíkur. MARGAR OG MIKLAR GJAFIR Meðal stærstu gjafa, sem Hallgrímskirkju hafa borizt, eru 4 milljónir til kaupa á klukknaspili, sem ýmsir ein- staklingar, félög og fyrirtæki stóðu að. Má þar nefna m. a. Vinnuveitendasambandið og Múrarafélag Reykjavíkur. Samband ísl. samvinnufélaga gaf hins vegar þrjár aðalklukk- urnar í turni kirkjunnar. Kirkjubyggingasjóður Reykjavíkurborgar var stofn- aður 1953 með einnar milljón króna framlagi, en að undan- förnu hafa 500 þúsund krón- ur runnið úr honum árlega til þeirra kirkna, sem í byggingu hafa verið á hverjum tíma. Hefur Hallgrímskirkja notið góðs af um árabil, en auk þess gaf Reykjavíkurborg hálfa milljón sérstaklega til kaupa á stundaklukkum, sem settar hafa verið á turninn. Þá hafa gjafir einstaklinga ekki reynzt síður mikilvægar og þær orðn- ar fjölmargar. REYNT VERÐUR AÐ LJÚKA BYGGINGUNNI 1974 Árið 1963 gerði Verkfræði- skrifstofa Sigurðar Thorodd- Hallgrímskirkjuturn hefur ver- ið umdeildur. Verður hann stolt Reykvíkinga og allra landsmanna. sen áætlun um byggingu Hall- grímskirkju og var í henni gert ráð fyrir að framkvæmd- um lyki árið 1974. Ekki hefur tekizt að halda áætlunina alveg í einstökum byggingar- áföngum, en að sögn Her- manns Þorsteinssonar verður öll áherzla lögð á að gera kirkjuskipið fokhelt og ganga frá kirkjunni að utan á árinu 1974. Er búizt við, að 25 millj- ónir þurfi til þess að ljúka því verki. Þar er að sjálfsögðu ekki reiknað með innanstokksmun- um eða orgeli, sem t. d. eitt sér mun kosta milli 10-12 millj- ónir. FLYZT SKRIFSTOFA BISKUPS í TURNINN? Um þessar mundir er verið að taka niður vinnupalla, sem verið hafa utan á turni Hall- grímskirkju. Er timbrinu jafn- óðum slegið upp fyrir efsta hluta veggja á kirkjuskipinu og þaki þess. Má gera ráð fyr- ir, að turninn verði fullfrá- genginn að utan nú fyrir ára- mótin. Þá er unnið að innréttingum á hinum ýmsu hæðum turns- ins. í turnvængnum, sem teyg- ir sig í áttina að safni Einars Jónssonar, verður kapella i framtíðinni, um 180 fermetrar að stærð. Önnur hæðin, sem segja má að sé á við þrjár hæðir í venjulegum skilningi, verður notuð fyrir orgelpípur. Næstu fjórar hæðirnar verða svo líklega aðsetur biskups- embættisins og fara viðræður um það mál nú fram við full- trúa kirkjumálaráðuneytisins. Auk biskups myndu fulltrúar FV 12 1972 15

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.