Frjáls verslun - 01.12.1972, Blaðsíða 21
hjartakvillar koma fram á
slíkri mynd.
NÝJUNGAR Á SVIÐI
FATAGERÐAR
Vísindamenn unnu árum sam-
an að því að fjarlægja öll eld-
fim efni úr stjórnklefum geim-
skipa og framleiða í þeirra stað
önnur, sem ekki geta brunnið.
Árangur þessa var svokallað
Beta-trefjaefni. Það brennur
ekki og gefur ekki frá sér eitr-
aðar gastegundir við hæsta hita.
Þægindi og fjölbreytileiki
voru mönnum líka ofarlega í
huga í þessu sambandi og Beta-
trefjarnar reyndust leysa mál-
ið. I örlítið mismunandi formi
er þetta efni nú ofið í geim-
búninga, nærföt geimfara og
klæðningu innan í stjórnklefa
geimskipa. En úr efninu má
líka sauma óeldfiman hlífðar-
fatnað handa slökkviliðsmönn-
um og börnum, svo að dæmi
séu nefnd, eða þá gluggatjöld
fyrir skrifstofur.
Svokölluð „geimaldarteppi“
eru önnur framleiðslutegund,
sem er rétt í þann mund að
komast á markað. Þau eru gerð
úr plastþynnum, sem síðan eru
þaktar örþunnu lagi úr áli, og
gefur þetta ágæta vörn gegn
bæði hita og kulda.
MATVÆLI Á GEIMÖLD
Ýmsar nýjungar hafaorðiðtil
vegna geimferðanna. Sérfræð-
ingunum var falið, að útbúa
handa geimförunum fæðu, sem
væri næringarrík, létt, auðmelt,
bragðgóð og gæti auk þess enzt
von úr viti.
Þá fundu sérfræðingarnir
upp nýjar matvælaumbúðir og
aðferðir til að gera fæðunaend-
ingargóða án þess að spilla
bragði eða næringargildi.
í mörgum verzlunum er t.d.
þegar að finna mjög næringar-
ríka matarstauta og tilbúinn
ávaxtasafa, sömu tegundar og
geimfarar hafa notað á ferðum
sínum.
Síðar munu bætast við á
þennan matseðil alls kyns ann-
að góðgæti, sem reynzt hefur
vel í geimferðunum.
Það þótti líka afrek í sjálfu
sér að finna upp umbúðir um
brauðsneið, þannig að hún
geymdist jafnfersk í 14 vikur.
Þetta var gert með algjörlega
loftþéttum plastpoka. Þegar
brauðsneiðin var í hann kom-
in, var svolitlu magni af köfn-
unarefni dælt í hann. í undir-
búningi er að nota þessa að-
ferð við frágang matvælaum-
búða fyrir hinn almenna neyt-
endamarkað í Bandaríkjunum.
VARNIR GEGN MENGUN
Nauðsynin á að halda hreinu
loftinu, sem geimfarar hafa
andað að sér í geimskipinu,
hefur með óvæntum hætti kom-
ið að haldi í baráttunni gegn
mengun andrúmsloftsins.
Eitt af tækjunum sem geim-
tæknimennirnir framleiddu, er
ódýr mengunarmælir, minni en
skjalataska, sem á augabragði
getur sagt til um, hvort efna-
samsetning andrúmsloftsins á
viðkomandi stöðum sé hættu-
leg. Þetta tæki má bera um
götur stórborganna til að
mæla útblástur frá bílum og
því má líka koma fyrir á reyk-
háfum verksmiðjanna, svo að
þar verði stöðugt eftirlit með
því, hvers konar efni það eru,
sem frá þeim blandast saman
við andrúmsloftið.
Bandaríska geimferðrstofn-
unin, NASA, beinir kiöftum
sínum að lausn orkuvandamáls-
ins. Vísindamenn hennar fundu
upp plútóníum-orkugjafa fyr-
ir ferð Apollos 17, en með
honum á að knýja litla vísinda-
stöð árum saman á tunglinu.
Stofnunin hefur líka látið gera
tilraunir með fljótandi málm-
kæli, sem nú er notaður í hin-
um fullkomnari kjarnakljúfum.
HÚS OG HÍBÝLI
Geimtæknirannsóknirnar
hafa nú þegar haft veruleg og
bein áhrif á hinn almenna hús-
ráðanda og byggjanda. Eldvarn-
armálning og byggingarefni
sem ekki brenna, eru þau af-
sprengi tæknitilraunanna, sem
náð hafa mestri útbreiðslu á
ney tendamarkaði.
Annað nýmæli, sem líklegt
er til að ná útbreiðslu er nýtt
raflagnakerfi.
í staðinn fyrir að gera göt
í veggi og leggja leiðslur innan
í þá að fyrirferðarmiklum dós-
um, hefur geimferðastofnunin
látið gera tilraunir með flatar
leiðslur, sem hægt er að líma
á veggi eins og límband. Eftir
að veggurinn hefur verið mál-
aður er erfitt að greina leiðsl-
urnar á honum. Fróðir menn
telja, að þetta fyrirkomulag
geti lækkað kostnað við raf-
lagnir í byggingar eða viðgerð-
ir á eldra kerfi um helming.
Rústfríir aðalvalsar
í roðfletti-
vélar.
\ arahlutir í fisk-
vinnsluvélar.
Rennismíði.
Nýsmíði.
Viðgerðir.
S.S Gunnarsson h.f.
SÚÐARVOGI 18.
SÍMI 8-50-10.
REYKJAVÍK.
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásaia
Einar Farestveit & Co Hf
Bergstaðastr. 10A Slmi 16995
FV 12 1972
21