Frjáls verslun - 01.12.1972, Blaðsíða 36
og eru þar framleidd stálgrinda-
hús, eða efniviður í þau. Til
marks um vinsældir þeirra má
nefna að á síðasta ári voru
reist 20 slik, en um 50 í ár.
Hús þessi eru nú notuð í marg-
víslegum tilgangi og þykja
hentug, einkum vegna þess að
engar stoðir eru inni í þeim.
Sumir steypa eða hlaða milli
veggbita, en Héðinn hefur á
boðstólnum klæðningarjárn,
frábrugðið bárujárni, með inn-
brenndri málningu.
í Garða-Héðni er einnig vél,
sem hreinsar allt ryð af járn-
stykkjum, og skilar þeim með
varnarhúð úr sér.
Annar þáttur starfssemi Héð-
ins er verzlun. Verzlar fyrir-
tækið með yfirleitt allar vör-
ur til járniðnaðar, auk hvers
konar hitastillitækja. Má þar
nefna Danfoss hita- og kæli-
tækin.
Meðal helztu framtíðarverk-
efnanna má nefna ísvélina, sem
áður er getið, og aukna fram-
leiðslu stálgrindahúsa.
Forstjóri Héðins nú er Sveinn
Guðmundsson, og Gunnar
Magnússon er fulltrúi fyrirtæk-
isins.
Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar 100 ára
Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar, ein stærsta og
elzta bókaverzlun í Reykjavík
og jafnvel á öllu landinu, verð-
ur 100 ára um þessar mundir,
og af því tilefni verður útgáfu-
starfsemi verzlunarinnar auk-
in verulega, einkum í barna-
bókum, en hún hefur að und-
anförnu einskorðað sig við út-
gáfu kennslubóka.
Saga fyrirtækisins er í stuttu
máli sú, að Sigfús Eymundsson
stofnaði bókaverzlun árið 1872
á horni Lækjargötu og Aust-
urstrætis. í auglýsingu sem
birtist þá um jólin í Göngu-
Hrólfi, auglýsir hann bækur,
ritföng, útvegun bóka og ýmsar
aðrar vörur sem nú eru ekki
lengur á boðstólum í bóka-
verzlunum.
Árið 1876 fór verzlunin svo
að gefa út bækur, og hefur
gefið út síðan. Sigfús rak verzl-
unina til ársins 1909, að Pétur
Halldórsson keypti hana og rak
til ársins 1935, en þá varð hann
borgarstjóri.
Árið 1919 flutti Pétur verzl-
unina af Eymundssonarhorn-
inu, sem svo var jafnan
nefnt, í Austurstræti 18, þar
sem verzlunin er enn. Björn
Pétursson tók við rekstri verzl-
unarinnar er faðir hans varð
borgarstjóri. Rak hann hana þar
til að Almenna bókafélagið
keypti hana árið 1959. Var þá
byggt nýtt hús og var verzl-
unin á meðan til húsa í Aðal-
stræti 6.
Á síðasta ári jók verzlunin
svo við sig húsnæði um helm-
ing, og er gólfflötur hennar nú
á fimmta hundrað fermetrar.
Blaðið ræddi fyrir skömmu
við Baldvin Tryggvason fram-
kvæmdastjóra Almenna bóka-
félagsins, en félagið á og rek-
ur verzlunina undir stjórn Ein-
ars Óskarssonar.
Sagði hann að verzlunin
skiptist aðallega í þrennt. Fyrst
og fremst væri deild íslenzkra
bóka, og væru þar um þrjú
þúsund bókatitlar á boðstól-
um. Væri það sennilega mesta
úrval íslenzkra bóka í bókabúð
hérlendis, enda væri sérstök á-
herzla lögð á fjölbreytni þar.
Þá er í kjallara ritfangadeild,
og deild erlendra bóka, en sú
síðarnefnda hefur stækkað og
aukizt verulega eftir að verzl-
unin jók við sig húsrými. Eru
þar nú á þriðja þúsund bóka-
titlar, auk þess sem bækur eru
útvegaðar eftir pöntun hvaðan-
æva að.
Einnig má nefna að verzlunin
fær daglega fjölda dagblaða fró
Evrópu, og hefur sérstaklega
lagt áherzlu á að hafa fjölbreytt
úrval landakorta.
Um stöðu bókaverzlana á ís-
landi í dag, sagði Baldvin, að
sér virtist að grundvöllurinn
36
FV 12 1972