Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1972, Side 27

Frjáls verslun - 01.12.1972, Side 27
Samtíðarmaður Jón B. Þórðarson í Breiðholtskjöri: „Því miður hlytur fólk, sem kemur til vinnu í verzlun engan undirbúning undir starfið.” Hálfgert neyðarástand hjá Breiðholtskjöri vegna innbrota. Jón B. ÞórSarson, kaupmaS- ur í Reykjavík, rekur eina nýjustu og glæsilegustu verzl- un höfuSborgarinnar, BreiS- holtskjör. Fyrstu kynni sín af verzlun öSlaSist Jón þegar í barnæsku viS ýmis aSstoSar- störf í verzlun föSur síns, ÞórSar Bjarnasonar, kaup- manns á Akranesi. Eftir nokk- urra ára sjómennsku kom Jón í land og fór aS starfa sem af- greiSslumaSur í verzluninni Þrótti í Samtúni. ÞaS var áriS 1957 en fljótlega keypti Jón þá verzlun og seldi matvörur, þar á meSal kjötvöru. Næst lá leiSin í KjötmiSstöSina viS Laugalæk, sem Jón rak ásamt verzluninni Þrótti um skeiS. Nú var HeimahverfiS svokall- aSa í uppbyggingu og tók Jón þar verzlunina Heimakjör á leigu og rak hana í tíu ár eSa til ársins 1969, þegar BreiS- holtskjör tók til starfa. Jón B. Þórðarson hefur sem sé fylgt Reykjavíkurborg i vexti hennar austur á bóginn. Hann hefur átt að viðskipta- vinum fólk með mjög mismun- andi fjárhagsgetu og verzlun- ina hefur hann sjálfur stund- að í misstóru og misgóðu hús- næði. Er við hittum Jón að máli í miðjum jólaönnunum i verzluninni, vörpuðum við fyrst fram þeirri spurningu, hverjar honum þættu eftirtekt- arverðastar breytingar í verzl- uninni á þeim tíma, sem hann hefur verið beinn aðili að henni? — Mest áberandi er að sjálfsögðu vöruvalið, sem nú er á boðstólum, sagði Jón. Þegar ég var að byrja, höfð- um við ekki nema eina tegund af haframjöli, eina tegund af salti og tómatsósu, svo að nefnd séu dæmi, en núna eru fáanleg fimm eða tíu mismun- andi merki innan hvers vöru- flokks. Það var ekkert val áð- ur. Þekking viðskiptavinanna er líka orðin svo áberandi miklu meiri en áður. íslend- ingar ferðast mikið erlendis og kynnast þar matvælum ann- arra þjóða. Þetta hefur þau áhrif að fólkið er miklu vand- látara þegar heim er komið og gerir siauknar kröfur, bæði til hráefnisins og líka þess, sem fylgja skal svo að framreidd verði gómsæt máltíð. Áður var lambakjötið allsráðandi og kjúklingum til dæmis fleygt. Viðhorfið er gjörbreytt. — En er ekki kaupniaðurinn settur í talsverðan vanda, þeg- ar hann á að velja. úr öllum þessum tegundum við' innkaup fyrir verzlunina? — Tegundirnar skipta þús- undum og það er fyrir öllu að geta boðið sem mest úrval. Samt verður að sjálfsögðu að hafna einhverju og þá getur verið úr vöndu að ráða. Kaup- maðurinn þarf að þekkja vör- una og hygg ég, að innflytj- endur gætu til dæmis lagt stórum meiri áherzlu á kynn- ingu á sínum varningi með því að senda kaupmönnum sýnishorn af niðursuðuvör- um, til dæmis, og gefa þeim kost á að kynnast varningn- um, eða bjóða slíka þjónustu í eigin húsakynnum. — Kjötmiðstöðin við Lauga- læk var einvörðungu kjötverzl- un. Er enn grundvöllur fyrir rekstri slíkra sérbúða, ef svo má að orði komast? — Það er ekki grundvöllur fyrir einhliða kjötbúð í dag. Hins vegar finnst húsmæðrum skemmtilegt að koma í kjöt- búðir eins og þær gerast í Danmörku, svo að nefnt sé Jón: Sjónvarpskerfið í búðinni veitir mikið aðhald og minna er um hnupl en ella. FV 12 1972 27

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.