Frjáls verslun - 01.12.1972, Side 29
Verzlunarhús Breiðholtskjörs að kvöldlagi um það leyti sem jólaösin var að hefjast. Gólfflötur
verziunarinnar er 420 fermetrar og kjallari fyrir vörulager er 480 fermetrar.
dæmi ,því að í þeim er lagt
miklu meira upp úr meðferð
vörunnar og þjónustunni en
verður í kjörbúð. Þó hefuv
orðið áberandi breyting hvað
snertir kjötdeildirnar í kjör-
búðunum að því leyti til, að
vöruvöndunin er orðin miklu
meiri en áður. Þetta er verzl
unareigendunum sjálfum að
þakka, en svo má heldur
ekki gleyma þætti þeirra, sem
slátra og kjötiðnaðarmönnun-
um. Meðferð öll á kjöti hefur
stórum batnað.
— Er kjötvaran á markað-
inum hér á nvkkurn hátt sam-
hærileg við það. so:v bekkist
erlendis?
— Hér er hægt að tá gcCt
kjöt. Þnð hefur marg.-knis
verið sagt, að jafnvel úr
,,belju“ eins og menn nefr.a
það, mætti gera prýðiskjrt með
því að láta það hanga rétt,
í vissu hitastigi, ákveðinn
tíma. Þannig má fá mjög got.t
kjöt. En jafnvel bezta hráefn:
má gjöreyðileggja með rang i
meðhöndlun í sláturshúsi eðs
í verzlun. Við látum nauta
kjötið, sem selt er yfir borðið
alltaf hanga ákveðinn tíma i
réttum hita svo að það fái að
brjóta sig. Svona nákvæm
meðferð verður auðveldari hjá
mér en mörgum öðrum kaup-
mönnum, því að ég starfræki
kjötvinnslu í sambandi við
Breiðholtskjör og hef einn
kjötiðnaðarmann, sem lagar
allt kjötfars, kindabjúgu,
kindakæfu og lifrarkæfu og
álegg.
— Kemur þetta betur út en
að kaupa vöruna tilbúna frá
kjötvinnslustöðvum?
— Já. Vinnslan borgar
upp ýmsa rýrnun, sem kemur
fram annars staðar í verzlun-
inni. Þetta er reynsla fleiri að-
ila, sem við kjötvinnslu hafa
fengizt .
— Verða einhverjar vissar
kjöttegundir undir í sam-
keppni með auknu úrvali eða
bitnar aukin fjölbreytni á
kjötmarkaði fyrst og fremst á
fisksalanum?
— Ég held. að fólk borði
minna af fiski fyrir bragðið.
Aður fyrr hafði fólk fisk á
borðum fjóra daga vikunnar á
mörgum heimiium. En nú er
hægt að fá kjötfars á sama
verði og fiskinn og' við sjá-
um æ fleiri dæmi um að 1 örn
vilja alls ekki fisk. í K tmið-
stöðinni hafði ég fisk tii sö'.:
og þó að það væri eingöner
verkaður fiskur var lyktin ott
svo mikil, að ég sannfærðist
um, að fiskurinn ætti ekki
samleið með kjötinu. I Breið-
holtskjöri leigi ég út hluta af
verzlunarhúsinu fyrir fiskbúð.
Ég veit, að erlendis, eins og
í Danmörku og Þýzkalandi, er
fiskur seldur í kjörbúðum,
jafnvel lifandi upp úr kerjum,
en slíkar tilraunir getum við
ekki lagt út í vegna verðlags-
ákvæðanna, sem gilda jafnt á
fiski sem öðrum vörum.
— Það er forvitnilegt að
heyra, hvernig verzlunin hef-
ur gengið í hverfi á við Breið-
holt, þar sem er vissulega
hærri hlutfallstala af efna-
minna fólki en víða 1 eldri
hverfum, þar sem fólk stendur
ekki lcngur í húsbyggingum
og er búið að koma sér vcl
fyrir .
— Ég byrjaði sem kaupmað-
ur í Samtúninu og mjög marg-
ir við.ikiptavinirnir voru efna-
lítið fólk úr Höfðaborginni. En
þetta fólk gerði öll sin við-
skipti í búðinni hjá mé.', Það
hafði ekki efni á að fara í
heildverzlanirnar að kaupa
hveitisekki eða appelsínukassa
heldur keypti allar neyzluvör-
ur í smásöluverzluninni. íbú-
ar Höfðaborgarinnar höfðu
peninga til að verzla fyrir og
kannski var ástæðan sú, að
þeir þurftu litla sem enga
húsaleigu að greiða í bæjar-
húsnæðinu.
í Breiðholti njóta hinir efna-
minnstu fyrirgreiðslu opin-
berra aðila varðandi húsnæði
og hafa því í mörgum tilfellum
ekki eins miklar peninga-
áhyggjur og þeir, sem sjálfir
standa í að byggja. Þetta fólk
fer ekki að rembast við að
kaupa bíla eins og margir
inna, þó að stórskuldugir séu
f að er ánægt með húsgögnin
sín og sjónvarpið en veitir sér
aftur á móti oft meira til dag-
legra þarfa en hinir, eins og til
dæmis í mat.
— Hvað er þetta stórt hús-
næði, sem Breiðholtskjör er í?
— Á jarðhæðinni eru 420
fermetrar og í kjallaranum 480
fermetrar. í honum er nú
vörulager en átti upphaflega
að vera vörumarkaður. Verzl-
unin liefur orðið miklu meiri
en ég gerði ráð fyrir sam-
kvæmt þeim tölum, sem ég
fékk útreiknaðar frá borgaryf-
irvöldum á sínum tíma. íbúa-
fjöldinn er miklu meiri og
kaupgeta fólksins líka. í Breið-
holti I sem er markaðssvæði
mitt og annarrar verzlunar,
verða um 1000 fleiri íbúar en
reiknað hafði verið með, a!5
ég hygg, og þess er líka að
gæta, að Breiðholt III. hefur
verið í byggingu hálft annað
FV 12 1972
29