Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1972, Qupperneq 39

Frjáls verslun - 01.12.1972, Qupperneq 39
Um heima og geima Litli Bill kom með miklum bægslagangi inn á krá í Villta vestrinu og öskraði: — Hver hefur málað hest- inn minn grænan? Stórt og afar fyrirferðarmik- ið vöðvafjall stóð upp frá borði og svaraði: — Það gerði ég og hvað mcð það? — Ekkert, svaraði Litli Bill. Ég ætlaði bara að láta hig vita, að hann er orðinn þurr og klár fyrir aðra umferð. Gestur á hóteli þurfti að fara á salernið. Allt í einu var barið í vegginn og spurt: — Fyrirgefið, en þér hafið víst ekki neitt umfram af toilet-pappír? — Nei, því miður. Ég er bú- inn með rúlluna. Tveggja mínútna þögn. Svo var aftur barið í vegginn: — Afsakið, mér þykir þetta mjög miður. En það er víst ekki gamalt dagblað í her- berginu yðar? — Því miður. Hér er ekkert dagblað. Aftur tveggja mínútna þögn og enn var barið í vegginn: — Segið mér, þér getið víst ekki skipt þúsund króna seðli? Þau sátu hamingjusöm í bílnum í Ólafsfjarðarmúlanum og horfðu á miðnætursólina. — Ég elska miðnætursólina, sagði Norðlendingurinn. — Æ, það geri ég ekki, svaraði vinkona hans. — Hún minnir mig svo á manninn minn, stór og rauð — og svo allt þetta næturdroll. Hann sat skjálfandi og ná- fölur í stólnum hjá lækninum. •— Nú gengur þetta ekki lengur, læknir. Ég er að verða vitlaus af þessari martröð, sem angrar mig hverja einustu nótt. — Segðu mér frá þeirri síð- ustu. — Jú, í nótt voru konan mín og krókódíll á harðahlaup- um á eftir mér. Þau voru á hælum mér, yfir holt og hæð- ir, fen og opnar sléttur. Draum- urinn var svo raunverulegur, ég sá bókstaflega þessi ísköldu, grænu augu, gular, hvassar tennurnar og þetta ógurlega gin . . . og hrjúfa húðina . . . — Hvert þó í þreifandi. — Þetta er nú ekki neitt, læknir. Svo var það þessi ægi- legi krókódíll . . . — • — Meistarinn var af gamla skólanum og kunni alls ekki vel við breytta og frjálslegri starfsháttu á verkstæðinu. Dag nokkurn talaði hann einslega við nýja lærlinginn og sagði óhress í bragði: — Hefði þetta verið fyrir fimmtán áriun myndi ég hafa tekið svona svefngengil eins og þig og lúbarið. — Það var þér líkt, svaraði lærlingurinn, því að þá var ég bara tveggja. Stjáni litli kom grátandi í skólann og mjög miður sín. Kennarinn vildi hughreysta hann og spurði, hvað amaði að honum: — Það er hann pab'bi. Hann er búinn að drekkja kettling- unum mínum . . . öllum átta. — Það var reglulega ljótt af pabba þínum, sagði kennarinn. — Já. Huuuu. Hann var bú- inn að lofa, að ég fengi að gera það sjálfur. Það var á heræfingu: Liðsforinginn: — Áður en ráðizt er til atlögu gegn óvininum er kallað: „Sjálf- boðaliðar lilaupi af stað.“ — Hvað gerir maður þá, 87? 87: — Gengur eitt skref til hliðar, svo að sjálfboðaliðarnir komist framhjá. FV 12 1972 39

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.