Frjáls verslun - 01.03.1973, Blaðsíða 49
Bandaríkjamarkaður:
Aukin umsvif Dana og Japana
komu mest á óvart
Áhrifin færast frá kaupendum til
seljenda — Sambandið kaupir fisk frá
fyrirtæki í Esbjerg
Ótrúlega liátt ver'ð hefur að
undanförnu fengizt fyrir þorsk-
blokk á Bandaríkjamarkaði og
er það framhald á afar hag-
stæðri verðlagsþróun, sem stað-
ið hefur um nokkurt skeið. Um
áramótin var verð á hverju
pundi af þorskblokk 48 cent í
Bandaríkjunum, en í haust
voru menn þegar farnir að spá
meiri hækkun og varð hún líka
núna eftir áramótin. Var
blokkarverðið komið upp í 55
cent á pund fyrir nokkru.
Verðlagsmálin á Bandaríkja-
markaði hafa vitaskuld höfuð-
þýðingu fyrir íslenzkan sjávar-
útveg og því spurðum við Guð-
jón B. Ólafsson, forstjóra
sjávarafurðadeildar SÍS, nánar
út í fáein atriði þessu viðvíkj-
andi. Fyrst lögðum við fyrir
hann spurninguna um það,
hvaða áhrif verðbreytingar um
1 cent til eða frá hafa á ís-
lenzka þjóðarbúið.
— Ef við tökum til viðmið-
unar útflutning á þorskblokk
til Bandaríkjanna árið 1971 frá
SÍS og SH, nemur hann um
40 milljónum punda og hækk-
un upp á 1 cent hvert pund
þýðir því 40 milljón króna
hækkun fyrir okkur á árs-
grundvelli. Séu teknar tölur yf-
ir verðlag fyrir og eftir síðast-
liðin áramót hækkar úflutn-
ingsverðmæti þorskblokkarinn-
ar um 280 milljónir á ársgrund-
velli miðað við það verð, sem
nú er borgað fyrir hana vestan-
hafs.
FRAMLEIÐSLUAUKNING
33% HJÁ SÍS-VERKSMIÐJ-
UM
— Má gera ráð fyrir, að
framhald verði um sinn á þess-
ari hagstæðu þróun, — að fisk-
verðið hækki áfram?
Markaðurinn hefur verið
mjög sterkur undanfarin tvö
ár og stöðug aukning á sölu
framleiddrar vöru úr verk-
smiðjunum, sem íslendingar
eiga í Bandaríkjunum. Þannig
seldi verksmiðja Sambandsins
í Harrisburg 15.300 tonn af
fiskréttum í fyrra, en 11.500
tonn árið 1971 og er það 33%
aukning. Fyrstu 8 vikur þessa
árs var söluaukningin hjá
verksmiðjunni miðað við sama
tíma í fyrra 37%. Á fyrstu 8
vikum ársins 1973 nam salan
1630 tonnum, en 1195 tonnum
í sömu vikum ársins 1972.
ÓVÆNT ÞRÓUN
Eftirspurn eftir fiski hefur
verið mjög vaxandi í Banda-
ríkjunum og verðlagið hækkað.
Þó hefur tvennt komið okkur
á óvart í sambandi við Banda-
ríkjamarkaðinn. Það er ný þró-
un, sem orðið hefur í fiskinn-
flutningi þar vestra. í fyrsta
lagi óvenjumikil útflutnings-
aukning þangað af hálfu Dana
og líka stórfelldur útflutningur
Japana á Kyrrahafsufsanum.
Árið 1971 var reynt að spá,
hverjir möguleikar Japana
myndu verða á síðasta ári í
þessu efni og gerðum við ráð
fyrir 10-15 þúsund tonnum af
Kyrrahafsufsa í blokk, en
reyndin varð sú, að þeir kom-
ust yfir hærra markið.
— I hverju eru þessi auknu
umsvif Dana fólgin?
— Danir tvöfölduðu útflutn-
ing á þorskblokk til Bandarikj-
anna í fyrra. Ég hef ekki ná-
kvæmar tölur um þann þátt,
en hins vegar fluttu þeir alls
til Bandarikjanna 25 þúsund
tonn af fiskblokk fyrstu 11
mánuði síðasta árs á móti
15.800 tonnum sömu mánuði
ársins á undan. Þarna er um
58% aukningu að ræða.
Segja má, að þetta hvort
tveggja hafi orkað sem hemill
á verðlagsþróunina, því að
verulegur skortur hefði orðið
á fiski í Bandaríkjunum ella
og hærra verð boðið í fáanleg-
an fisk þar af leiðandi.
Hlutur Japana er mjög at-
hyglisverður, því að þeir seldu
Bandaríkjamönnum 17.300 tonn
af blokk á fyrstu 11 mánuðum
í fyrra, en aðeins 1470 tonn
sömu mánuði árið þar á undan.
Samanlagt fluttu fslendingar
út 26.350 tonn af blokk til
Bandaríkjanna í fyrra, en
33.600 tonn árið 1971.
AUKIN FRAMLEIÐSLA í
FLAKAPAKKNINGAR
— Hvað er það, sem valdið
hefur þessum samdrætti hjá
okkur?
FV 3 1973
49