Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1975, Side 49

Frjáls verslun - 01.05.1975, Side 49
Plastiðjan: Það er arðbær fjárfesting að einangra vel Plasteinangrun frá Plastiðjunni hefur nú verið notuö á íslandi í meira en fimmtán ár. Hún heldur enn fullu ein- angrunargildi, jafnvel í fyrstu húsun- um, sem hún var sett í. í nágranna- löndum okkar er þegar fengin þrjátíu ára góö reynsla af plasteinangrun, sem tryggir gæði og endingu. ÓDÝR MIÐAÐ VIÐ EIN AN GRUN ARGILDI Plasteinangrun er miklu ódýrari en önnur einangrunarefni, sem hafa sama einangrunargildi. Þá hefur hún þann stóra kost, að einangrunarlagið verður ekki þykkt, vegna þess hve mikið ein- angrunargildi er í hverjum sentimetra. Hún verður því ekki til að gera veggi þykkari. Plasteinangrun er mjög ódýr, þegar hún er borin saman viö kynd- ingarkostnað. NOTKUN VIÐ MARGVÍSLEGAR AÐSTÆÐUR Plasteinangrun er notuð í meginWuta allra íbúða, sem byggöar eru hér á landi. Hún er notuð í gólf, loft og veggi. Þá er hún mikiö notuð í iðnaðarhús- næði og öðru atvinnuhúsnæði, þar á meðal útihúsum í sveit. Plasteinangr' *i er notuð við kæligeymslur, svo sem frystiklefa í frystihúsum, kartöflu- geymslur og kæliklefa verzlana. MÖRG STÓR VERKEFNI Á undanförnum fimmtán árum hef- ur Plastiðjan séð um einangrun í mörg af stærstu mannvirkjum á land- inu. Þar sem Plastiðjan er stærsti framleiðandi á húsaeinangrun í land- inu, á hún hægast með að tryggja af- hendingu á miklu magni í senn. Löng reynsla í að sinna stórum verkefnum er mikils virði. MARGVÍSLEG ÞJÓNUSTA Plastiðjan hefur alltaf ástundað þjón- ustu við viöskiptavinina, sem hefur oft haft í för með sér tilraunastarfsemi til að reyna nýja notkun á einangrunar- plasti. Eins og fyrr hefur fyrirtækið af- greiðslu á tveimur stöðum, aðra á Eyr- arbakka og hina í húsi Korkiðjunnar að Skúlagötu 57 í Reykjavík. Hringið til aö afla ykkur allra upplýsinga um notkun á plasteinangrun og til að kynna ykkur verð. Plastiðjan hf. Eyrarbakka SÍMI 23200 EYRARBAKKA SÍMI 99-3116 FV 5 1975 49

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.