Frjáls verslun - 01.05.1975, Blaðsíða 65
Heinz - fyrirtækið :
Framleiðir í 12 löndum og selur
vörur sínar tii 150 landa
Bakaðar baunir frá Heinz seldar hér ■ auknum mæli
IVIeir en milljón dósir af þeim seljast daglega í Bretlandi
Heinz-fyrirtækiÖ stundar nú
framleiðslu í 12 löndum og
markaður þess nær til 150
landa. Tegundirnar eru mikl'u
fleiri en nafnið „57 Varieties“
gefur til kynna. Stofnandanum,
Henry John Heinz hefur verið
lýst sem snillingi í auglýsinga-
starfsemi og markaðskipulagn-
ingu. Hann valdi þessa töfra-
tölu „57“ þó að tegundirnar
væru raunverulega fleiri. Síðan
hefur hún orðið aðalsmerki
Heinz-vara um allan heim-
Fyrirtækið H. J. Heinz var
stofnað 1869 og fór hægt af
stað- Allmörgum árum áður
hafði unglingurinn Henry
Heinz ræktað grænmeti í garð-
inum við heimili fjölskyidunn-
ar í Sharpesburg i Pennsylvan-
íu og selt nágrönnum umfram-
framleiðslu. Sextán ára hafði
hann bæði notað körfu og hjól-
börur til að flytja grænmetið
sitt í verzlanir í Pittsburgh, og
hafði reyndar tekið enn stór-
virkara flutningatæki í notkun
hestvagninn, til að flytja af-
urðirnar 8 kílómetra leið niður
með ánni.
BYRJAÐI MEÐ HREÐKUR
Fyrsta grænmetistegundin
sem Heinz sendi á markað, voru
hreðkur, sem áunnu sér miklar
vinsældir í nærliggjandi byggð-
arlögum. Fram að þeim tíma
hafði tíðkazt að selja hreðkur í
lituðum glerflöskum til að
halda öðrum tegundum til upp-
fyllingar, eins og t. d. rófum,
leyndum fyrir kaupandanum.
Heinz setti hreðkurnar sínar
aftur á móti i kristaltærar gler-
krukkur svo að enginn þyrfti
að efast um að hann væri að
selja ósvikna vöru. Fyrirtækið
WE1N2
BAKED
BEANS
II s' J
Brautryðjandinn Henry Heinz, sem byrjaði að selja nágrönn'iim
sínum grænmeti ,ungur að árum. — Til hægri: Aðalsöluvaran í
dag, bakaðar baunir.
Framleiðsla
sett á lager í
verksmiðju
Heinz f
Kitt Green
í Lancashirc
í Bret-
landi.
FV 5 1975
65