Frjáls verslun - 01.05.1975, Side 71
Sígljái á bíla
Fyrirtækið Gljáinn hf. kynnir japanska
tækninýjung hér á landi
Gert í samvinnu við Toyotavarahlutaumboðið
Fyrirtækin Gljáinn hf. og
Toyotavarahlutaumboðið hf.,
kynntu fyrir skömmu japanska
tækninýjung frá fyrirtækinu
Chitose Technology Co. í með-
ferð bifreiðalakks. Hér er um
að ræða EVERIDA- hitar og
efnamqðferðina, sem hlotið hef-
ur íslenzka heitið BRYN-
GLJÁA-efnameðferðin, til að
varna tæring'u bifreiðalakks og
jafnframt gefa bifreiðinni lang-
varandi sígljáa þannig, að hún
virðist sem ný um ára.bil.
Þess eru dæmi í Bretlandi og
Japan, að bifreið, sem fór í
gegnum BRYNGLJÁA-efna-
meðferðina var sem ný í allt að
36 mánuði, án þess að bónkiút-
ur kæmi nokkru sinni nálægt
iakkinu. Tíminn einn getur
leitt í ljós, hvort BRYNGLJÁA-
efnameðferðin fær staðfzt ís-
lenzka veðráttu svo lengi, en
það er álit þeirra, sem að kynn-
ingunni standa, að ástæða sé til
bjartsýni um að svo verði, og
að tryggt megi teljast, að hún
dugi í lágmark 18—26 mánuði
við venjulegar íslenzkar að-
stæður.
MEÐFERÐIN GERIR
BIFREIÐINA SEM NÝJA Á
AÐ LÍTA
BRYNGLJÁA- ef nameðf erðin
kom fyrst á markaðinn í Japan
árið 1972 eftir 3 ára umfangs-
miklar og strangar tilraunir og
rannsóknir í efnafræði- og til-
raunastofnun Chitose-fyrirtæk-
isins og hefur breiðst hratt um
lönd heims, einkum eftir að
orkukreppan skall yfir og sala
á nýjum bifreiðum minnkaði
til muna, jafnframt því sem
bifreiðaeigendur fóru að ieggja
áherzlu á beíra viðhald bifreiða
til að lengja endinguna.
Það var forseti Chitosefyrir-
tækisins, Isamu Kimura, efna-
verkfræðingur að mennt, sem
var upphafsmaðiur í BRYN-
GLJÁA-efnameðferðinni. Hann
hafði tekið eftir því á tíðum
ferðum sínum til Bandaríkj-
anna og Evrópu, að miklu
meira af 5—7 ára gömlum bíl-
um voru þar í umferð en í
Japan. í Japan var algengt, að
menn skiptu um bíla á 2—3 ára
fresti, þar eð hið súlfasýru-
mengaða regn í landinu, meng-
að af útblástri ökutækja og
reyk frá iðnaðarverksmiðjum,
var mikill tæringarvaldur á
lakki bifreiðanna, þannig að
það missti allan gljáa, tók að
ryðga og þar með málmurinn
undir. Kimura taldi, að það
hlyti að vera hægt að finna upp
efni, sem gæti hamlað gegn
þessari tæringu og jafnframt
gefið lakkinu á bifreiðinni lang-
varandi sígljáa, hinn sama og
er á nýrri bifreið, er kaupand-
in tekur við henni. Þetta tókst
sem fyrr segir.
Starfsmenn Gljáans hf. hafa
gert ýmsar tilraunir til að
kanna endingu þessarar með-
ferðar, því að þeim fannst eins
og ýmsum mun sjálfsagt finn-
ast, ótrúlegt, að BRYNGLJÁA-
meðferðin gæti verið svo end-
ingargóð. Hafa þeir notað til
þessara tilrauna ýmis sterk
efni, sem nær öll hafa reyrnzt
algerlega áhrifalaus, ef máln-
ingaþynnir er undanskilinn.
ÚTI Á LANDI LÍKA
Framkvæmdastjóri Gljáans
hf. er Pálmi Jónsson, en starfs-
menn eru 4 og geta afkastað
5—6 bifreiðum á dag.
í undirbúningi er að setja
upp fleiri stöðvar úti á lands-
byggðinni, m. a. Akureyri og
Keflavík.
FV 5 1975
71