Frjáls verslun - 01.07.1975, Síða 39
að íbúar landsins tala bæði
frönsku og þýzku. Pólitískt séð
er Luxemborg mjög eindreginn
þátttakandi í evrópsku sam-
starfi og mikilvæg miðstoð
stofnana Efnahagsbandalags
Evrópu.
Luxemborg er í þriggja
klukkutíma fjarlægð frá ís-
landi. Þangað eru flugferðir
næstum alla daga ársins og
fleiri en ein daglega mikinn
liluta þess. Frá Luxemborg er
innan við klukkutíma akstur
til Belgíu, Frakklands og
Þýzkalands. Með járnbrautar-
lest má komast þaðan á nokkr-
um klukkutímum til allra
helztu ferðamannastaða megin-
iandsins og Luxair-flugfélagið
heldur uppi tíðum ferðum til
mikilvægustu borga í ná-
grannalöndum Luxemborgar.
• Fjölbreytilegt land
En lítum nú nánar á Lux-
emborg sjálfa, sem er aðeins
2587 ferkílómetrar á stærð. í-
búar landsins eru um 335 þús-
und og þar af búa um 100 þús.
í höfuðborginni Luxemborg,
sem er miðstöð samgangna,
verzlunar og viðskipta í land-
inu. Þriðjungur alls landsins
er skógi vaxinn en segja má,
að það skiptist í tvo hluta
landfræðilega: norðurhéruðin
með grösugum og fögrum hlíð-
um og hæðum Ardennafjall-
anna og svo „Góða landið“ í
suðri, aðallega ræktuð tún og
skóga, sem takmarkast í austri
af vínræktarlöndum Mósel-
dalsins.
Til þess að kynnast Luxem-
borg að einhverju marki er ef-
laust heppilegast fyrir útlenda
ferðamenn að leigja sér bíl
hjá bílaleigu. Skipulagðar hóp-
ferðir eru þó líka farnar og
má fara þá leið, sem hér
verður lýst á eftir í slíkri
dagsferð, sem kostar um 1600
krónur. Luxemborgarar sjálfir
myndu eflaust mæla með því.
að gestirnir tækju sér landa-
kort i hönd og löbbuðu síðan
af stað út í skóg með viðlegu-
búnað. Þetta gera þeir sjálf-
ir og hafa gönguleiðir um skóg-
ana vel merktar inn á landa-
kortin. Ökuleiðir eru sörnu-
leiðis greinilega merktar á
Ferðamennska
í 120 ár
„Hér í Luxemborg hefur ferðamennska verið stunduð í
meir en 120 ár og byrjaði raunar um sama Ieyti og járn-
brautarferðir á meginlandinu. Ibúum á iðnaðarsvæðununi
í nágrannalöndunum hér í kring hefur þótt tilbreyting í
að heimsækja Luxemborg, sem er eins og græn eyja á
milli þeirra.“
Þetta sagði Georges E.
Hausemer, forstjóri ferða-
málastofnunar Luxemborg-
ar í upphafi samtals við
F.V. Hann bætli því strax
við, að þróun ferðamála í
Luxemborg hefði engan
veginn verið jafnör og á
Spáni eða í Júgóslavíu, en
gisting í hótelum i Lux-
emborg hefði aukizt að
jafnaði um 6% árlega hin
síðustu ár.
RÚMLEGA 500 HÓTEL.
Gistinætur í Luxem-
borg eru nú um 1 milljón
á ári í hótelum, jafnmarg-
ar á tjaldstæðum, 100 þús.
á farfuglaheimilum og
jafnmargar í skátabúðum
og' öðrum unglingabúðum
Nú eru í landinu samtals
516 hótel af ýmsum stærð-
um, flest fremur lítil,
dreifð um landið allt. Að-
eins fjögur af þessum hó-
telum eru í eigu stærri
félaga. í höfuðborginni
sjálfri hafa gistinæturnar
verið 80.000 á ári og þar
af hafa Loftleiðir bókað
um 50.000 fyrir farþega
sína frá Bandarikjunum, a
hótelum eins og Hótel Aer-
ogolf rétt í útjaðri borgar-
innar og Hótel Avia inni
í miðborginni.
VERÐLAGIÐ.
Verðlag á hótelum í Lux-
emborg er nokkuð mismun-
andi eftir aðbúnaði og má
gera ráð fyrir að tveggja
manna herbergi kosti
400-550 franka yfir nótt-
ina, en gengi Luxemborg-
Georges E. Hausemer.
arfrankans er um kr. 4,20.
Góða máltið má fá fyrir
200 franka og utan höfuð-
borgarinnar væri hún þrí-
réttuð með víni fyrir þetta
verð. Enn lægra matarverð
er hægt að fá se hálfí fæði
keypt með gistingu eins
og algengt er.
Til þess að komast leiö-
ar sinnar um landið rná
nota mismunandi farartæki
eða tvo jafnfljóta, sen\ á-
gætlega henta á þeim
14000 kílómetra skógar-
stígúm, sem kortlagðir
hafa verið. Þjóðvegir an>
landið eru 5000 km og
bílaleigubíll til að ferðast
um þá kostar um 450
franka á dag, afgreiddur
með fullum benzíngeymi
en viðbótargjald er 5 fr. á
km. Fyrir300 franka má líka
fá járnbrautarmiða, se\n
gildir fyrir ótakmörkuö
ferðalög um landið í ivær
vikur.
FV 7 1975
39