Frjáls verslun - 01.07.1975, Qupperneq 53
hefur allt í íbúðina
íhúðin -
Einn af þeim sem eru að vinna sig upp í viðskiptalífinu á Akur-
eyri er Ingvar G. Ingvarsson. Hann verslar með ýmsar vörur sem
þörf er á til lokafrágangs á íbúðum, en verslun hans heitir cinmitt
Íbúðiii og er til húsa við Strandgöt'u 13 b.
Ingvar G.
Ingvarsson,
eigandi
verzlunar-
innar
íbúðin.
í stuttu viðtali við Frjálsa
verslun, sagði Ingvar að það
hefði verið nánast tilviljun að
hann leiddist út í verslun. Hann
hafði verið að leita sér að teppi
á eigin íbúð og fundið út að
best væri að kaupa heila rúllu.
En áður en rúllan komst á gólf-
ið hafði hann selt hana alla.
Svo jókst þetta smám saman
þar til hálfgerð verslun vai'
komin upp í kjallaranum heima
hjá Ingvari.
— Þá sá ég að annað hvort
þyrfti ég að flytja fjölskylduna
út eða viðskiptin, sagði Ingvar,
— og þá var ég svo heppinn að
detta niður á þetta húsnæði. Ég
flutti verslunina hingað sl.
haust og síðan hafa viðskiptin
gengið svo hratt fyrir sig að ég
hef varla mátt vera að því að
setjast niður og meta hvernig
ég stend í dag.
ÍSLENSKAR IÐNAÐAR-
VÖRUR
Að mati Ingvars vill fólk
gjarnan hafa 3—4 staði til að
fara á og velja á milli nokkurra
tegunda af vörum.
— Ég hef lagt áherslu á að
hafa vörur sem aðrar verslanir
hafa ekki, sagði Ingvar, — og
mest þykir mér gaman að hafa
á boðstólnum íslenskar iðnað-
arvörur, sem standast sam-
keppni. Svo hef ég hérna smá
horn með vörum fyrir hesta-
menn, en þær fást ekki annars
staðar á Akureyri. Þær vörur
kaupi ég mest af innlendum
söðlasmiðum.
Við rekstur sem þennan eru
vitanlega margvíslegir erfið-
leikar. Verstur er þó skorturinn
á rekstrarfé að sögn Ingvars.
— Yfirleitt fæ ég engin rekstr-
ián, sagði Ingvar, — og það
Sömu sögu er að segja um
framkvæmdir einstaklinga við
íbúðarbyggingar. Þá höfðu
byggingaraðilar búist við bygg-
ingu 20—30 leiguíbúða skv. lög-
um þar um, en sú von virðist
verður til þess að ég get sama
og engan lager haft. Ég hef því
reynt að byggja starfsemina á
umboðssölu, en það vill oft
ganga erfiðlega að finna inn-
flytjendurna. Svo hef ég líka
reynt að komast í samband við
minni verkstæði á Akureyri til
þess að gera sameiginleg inn-
kaup fyrir þau, en það hefur
gengið treglega, sagði Ingvar.
LOKAFRÁGANGUR LÁTINN
BÍÐA
Eins og áður sagði hefur í-
búðin til söiu ýmsar vörur sem
þarf til lokafrágangs á íbúðum,
svo sem teppi, gólfdúka, vegg-
fóður, flísar og eitt og annað
smávegis.
— Þetta held ég að séu þær
vörur sem fyrst kemur sam-
flráttur í sölu á, sagði Ingvar.
Þegar fólk er búið að koma upp
husunum sínum, þá eru aur-
arnir oft búnir og síðasti frá-
gangurinn er þá látinn bíða.
Mér finnst ég verða var við
þetta núna. Þó jafn mikið sé
byggt af húsum og í fyrra, þá
er minna gert af því að full-
klára þau, sagði Ingvar Ingvars-
son að lokum.
nú að verða að engu. Frjáls
verslun hitti nýlega að máli
Tryggva Pálsson, framkvæmda-
stjóra Smárams hf. en það er
eitt af byggingaverktakafélög-
um bæjarins.
Bygginyar:
Verulegur samdráttur
Margt bendir til þess að verulegur samdráttur verði í vetur í
byggingariðnaði á Akureyri, eins og víða annars staðar. Byrjað
verður á mun færri byggingum en vonir stóðu (il og munar þar
mest um seinkun framkvæmda við sjúkrahúsbygginguna. Akur-
eyrarbær hcldur sínum framkvæmdum í lágmarki vegna slæmrar
fjárhagsstöðu og byggingarverktakar, sem hafa byggt stærstan
hluta íbúðarhúsnæðis í bænum síðustu árin halda að sér höndum
vegna sölutregðu og ónógrar lánafyrirgreiðslu.
FV 7 1975
53