Frjáls verslun - 01.07.1975, Blaðsíða 63
Möl og sandur hf.
Stærsta verkefnið er við
Kröfluvirkjun
Steypustöðin Möl og sandur hf. á Akureyri rekur umfangsmikla starfsemi. Stöðin selur lagaða stein-
steypu og framleiðir steinrör til frárennslis og holræsa um a.llt Norð'urland. Einnig tekur fyrirtæk-
ið að sér ýmiss stærri verk, svo sem uppsteypu á stórum einingum í hús, þ. e. strengjasteypuein-
ingum. En núna er fyrirtækið einmitt að vinna við að steypa upp þak á væntanlegt stöðvarhús við
Kröflu. Er það verk eitt upp á 13 milljónir krón a. Hjá fyrirtækinu vinna alls um 50 manns, þar af
15 í Strengjasteypu hf. sem er systurfyrirtæki Malar og sands.
Steypustöð
Malar og
sands.
Steypu-
salan fer
vaxandi
og voru
scldir 16
þús. rúm-
metrar af
steypu
í fyrra.
Framkvæmdastjóri Malar og
sands hf. er Hólmsteinn Hólm-
steinsson, en hann tók við
rekstri fyrirtækisins sl. vor af
föður sínum Hólmsteini Egils-
syni. Hólmsteinn yngri er að-
eins 24 ára gamall, en hann
lauk um áramótin sl. prófi sem
byggingatæknifræðingur frá
T.í. með rekstur og skipulagn-
ingu sem sérgrein. Frjáls versl-
un heimsótti fyrirtækið fyrir
skömmu og þá sagði Hólmr
steinn að samdrátturinn, sem
búist hafði verið við í bygging-
ariðnaðinum í sumar hefði enn
sem komið er ekki gert vart við
sig hjá þeim. Pantanir á tilbú-
inini steypu væru svipaðar og
sl. ár, en því miður hefði verk-
fallið í sementsverksmiðjunni
á Akranesi gert stórt strik í
reikninginn og tæki langan
Hólmsteinn Hólmsteinsson
tíma að vinna upp þær af-
greiðslutafir sem það olli.
MARGIR HLUTHAFAR
Möl og sandur hf. var stofn-
að árið 1946. Hluthafar i fyrir-
tækinu voru margir, en þeir
sem eru stærstir nú eru KEA,
Sverrir Ragnars og Hólmsteinn
Egilsson. Upphaflega var fyrir-
tækið staðsett í Glerárþorpi og
hafði aðeins grjótmulning á
dagskrá sinni, en um 1955 var
starfsemin flutt upp fyrir bæ-
inn og 1960 var hafin steypu-
sala samhliða grjótmulningn-
um. Sementið er keypt frá
Akranesi, en blandað í stöðinni
og selt um allt Eyjafjarðar-
svæðið. Steypusalan hefur far-
ir vaxandi með ári hverju og á
sl. ári voru seldir 16.000 rúm-
metrar af steypu frá stöðinni.
RÖRASTEYPA STÆKKUÐ
Stuttu eftir að steypusalan
hófst var farið að steypa stein-
rör til frárennslis og holræsa
og var sölusvæðið allt Norður-
land. Rörin eru framleidd í
stærðunum frá 10 sm—1.2 m. í
þvermál og eru Möl og sandur
eina fyrirtækið á landinu sem
er með öll rör fyrir gúmmí-
þéttingar. Nú stendur fyrir dyr-
um bygging 450 m- húsnæðis
fyrir rörsteypuna.
SYSTURFYRIRTÆKIÐ
STRENGJASTEYPA
Árið 1962 var systurfyrir-
tækið Strengjasteypa hf. stofn-
að og tekur það að sér að
steypa alls kyns stærri eining-
FV 7 1975
63