Frjáls verslun - 01.01.1991, Blaðsíða 20
VIÐHORF
VIÐHORF TIL ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA:
FLUGLEIÐIR NJÓTA MESTRA VINSÆLDA
Spurt var: „Getur þú nefnt mér
1-4 íslensk fyrirtæki sem þú hef-
ur jákvætt viðhorf til?“
Eins og í fyrri könnunum okkar var
dreifing svara talsverð því mikill fjöldi
fyrirtækja fékk tilnefningu. En niður-
staðan varðandi efstu fyrirtækin er
engu að síður mjög afgerandi og þrjú
efstu fyrirtækin skáru sig nokkuð úr.
Röð 21 efsta fyrirtækisins er sem
hér segir, en röð þeirra frá árinu á
undan er sýnd í sviga:
1. (2) FLUGLEIÐIR
2. (1) HAGKAUP
3. 13) SÓL
4. (4) EIMSKIP
5. (6) BÓNUS
6. (12) RÍKISÚTVARÐIÐ/ SJÓNVARP
7. (71 SÍS
8-9. (5) VÍFILFELL
8-9. (-) KAUPFÉLÖG ALMENNT
10. (9) ÚTGERÐARFÉLAG AKUREYRINGA
11. (-) MJÓLKURSAMSALAN
12. (-) STÖÐ2
13-15. (16) FJARÐARKAUP
13-15. (-) ÍSLANDSBANKI
13-15. (-) OLÍS
16. (-) OSTA & SMJÖRSALAN
17. (10) MIKLIGARÐUR
18-21. (11) BYKO
18-21. (18) KEA
18-21. (-) PÓSTUROGSÍMI
18-21. (-) SAMHERJI, AKUREYRI
Átta ný fyrirtæki koma inn á þenn-
an lista sem ekki voru þar fyrir einu
ári. En eftirtalin fyrirtæki falla út af
listanum: Amarflug, ÍSAL, Húsa-
smiðjan,Landsbankinn og Álafoss.
Margar athyglisverðar vísbending-
ar má lesa út úr listanum. T.d. það að
Sól hf. skuli halda velli þriðja árið í röð
sem eitt af þremur efstu fyrirtækjun-
um þrátt fyrir ýmsa erfiðleika í
rekstri. Árangur Bónus verslananna
er merkilegur því fyrirtækið hefur
aðeins starfað í 18 mánuði. Eins má
nefna að íslandsbanki er efstur af
bönkunum þó svo hann hafi aðeins
starfað í eitt ár. Tvö sjávarútvegsfyr-
irtæki komast nú á blað og þrjú fyrir-
tæki sem starfa á Akureyri eru nú á
listanum.
VIÐHORF TIL ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA:
ENN ANDAR KÖLDU í GARÐ SÍS
Spurt var: „Getur þú nefnt mér
1-4 íslensk fyrirtæki sem þú hef-
ur neikvætt viðhorf til?“
Að venju voru svör við þessari
spurningu mjög dreifð og mun færri
eru tilbúnir að nefiia þau fyrirtæki,
sem þeir hafa neikvæð viðhorf til,
heldur en hin sem þeir hafa jákvæð
viðhorf til. Engu að síður eru svörin
afdráttarlaus varðandi efstu sætin.
SÍS hlaut langflestar tilnefningar eins
og undanfarin ár, en þó nokkru færri
en í fyrri tvö skiptin. Meira en tvöfalt
fleiri voru neikvæðir í garð SÍS en
Flugleiða sem lentu í öðru sæti með
einni tilnefningu fleira en Eimskip
sem er í þriðja sæti. Þessi þrjú fyrir-
tæki skáru sig úr, því talsvert bil er í
fyrirtækið sem lenti f fjórða sæti.
í síðustu könnun birtum við ein-
ungis nöfn þriggja fyrirtækja en fjölg-
um þeim nú í sex að þessu sinni því
dreifmg tilnefninga er ekki eins mikil
og síðast:
1. (1) SAMBANDIÐ
2. (2) FLUGLEIÐIR
3. 13) EIMSKIP
4. (-) VÍFILFELL
5. (-) RÍKISÚTVARPIÐ/ SJÓNVARP
6. (-) SANITAS
20