Frjáls verslun - 01.01.1991, Blaðsíða 48
irtæki hefur gert á þessum vettvangi.
Þessir samningar við Hagvirki hf.
hafa í reynd ekki aðeins náð til okkar
svæðis í Smárahvammi því bæjaryfir-
völd fóru þess á leit við okkur að við
önnuðumst gatnagerð í nærliggjandi
hverfum, m.a. um 2000 íbúða hverfi í
Kópavogsdal. Þá er lóð Hagkaups,
IKEA og BYKO í þessu gatnakerfi,
en þar hyggjast þau fyrirtæki reisa
eitt stærsta verslunarhús landsins
innan fárra ára. Ekki er að efa að sú
uppbygging mun hafa jákvæð áhrif á
þróun Smárahvammsbyggðar.“
Eins og fram kom hjá Hallgrími
skiptist svæði Frjáls framtaks hf. í tvo
hluta, en í heild spannar það 17.500
fermetra lands. Atvinnusvæðinu hef-
ur verið lýst en hvað með íbúðasvæð-
ið?
„Þar er um að ræða hluta af næsta
fjölbýlishúsareit í Kópavogi, en á okk-
ar lóðum verða byggðar um 500 íbúð-
ir. Hús á þessum reit verða allt frá
tveimur hæðum upp í átta hæðir og í
skipulaginu er mikil áhersla lögð á fal-
legt umhverfi. Þar má nefna að mörg
bílastæði verða neðanjarðar, m.a. til
að nýta jarðvegsdýpt sem er á hluta
lóðanna en einnig hefur Ormar Þór
Guðmundsson arkitekt tengt græna
svæðið umhverfis mjög skemmtilega
viðbyggingarreitina. íbúðahverfið er
staðsett í jaðri 60 ha útivistarsvæðis í
Kópavogsdal, en þar er m.a.
sandgrasvöllur, upphitaður knatt-
spyrnuvöllur, hlaupabrautir og annað
sem tengist íþróttum og útivist. Loks
er verið að undirbúa byggingu
stærsta íþróttahúss á íslandi, sem
m.a. mun hýsa heimsmeistarakeppni
í handknattleik árið 1995. Öll þessi
útivistar- og íþróttaaðstaða er
steinsnar frá svæðum Frjáls framtaks
hf og ætti að bjóða upp á mikla mögu-
leika fyrir þá sem kjósa að setjast þar
að með heimili eða atvinnufyrirtæki."
HJÓLIN FflRIN AÐ SNÚAST
Eftir óvenjulangt erfiðleikatímabil í
íslensku atvinnuh'fi bendir ýmislegt til
þess að þrengingum fari að ljúka og
uppbygging hefjist í auknum mæli á
ný. Er Hallgrímur T. Ragnarsson,
framkvæmdastjóri Frjáls framtaks,
bjartsýnn á framtíðina varðandi sölu á
atvinnuhúsnæði í Smárahvammi?
„Vissulega hafa síðustu þrjú ár
verið býsna erfið því mikil vinna hefur
farið í að kaupa þetta land, skipuleggja
það, vinna við gatnagerð og síðast en
ekki síst að markaðssetja hluta þess.
Allt hefur þó gengið samkvæmt áætl-
un, en í samningum við Kópavog-
skaupstað töldum við mögulegt að
ljúka allri uppbyggingu á árinu 1995.
í dag er ég bjartsýnn á að þetta
takist að mestu. Hjól atvinnulífsins
eru farin að snúast á ný og mörg teikn
á lofti um að mikil þörf verði á nýju og
sérhönnuðu húsnæði fyrir skrifstofur
og þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. í
því samþandi nægir að horfa á spár
um aðflutninga til suðvesturhornsins
og væntanlega byggingu álvers á
Keilisnesi, sem mun án efa hafa mjög
örvandi áhrif á atvinnulíf þessa svæð-
is.
Síðast en ekki síst er Smára-
hvammur afar vel í sveit settur, því
sem næst í miðju höfuðborgarsvæð-
isins, en á sama tíma eru önnur at-
vinnusvæði á jöðrum þess, m.a.
norður við Kollafjörð og suður í
Hellnahrauni. Með þennan saman-
burð í huga er ég bjartsýnn á að
Smárahvammur muni byggjast upp
innan þeirra tímamarka sem að var
stefnt,“ sagði Hallgrímur T. Ragnars-
son að síðustu.
48