Frjáls verslun - 01.03.1992, Qupperneq 13
FRETTIR
TJARNARGATA 4:
ÞÝÐINGAR- OG TEXTARÁÐGJÖF
Tveir löggiltir dóm-
túlkar og skjalaþýöendur
hafa tekið upp samstarf
um þýðingar og textaráð-
gjöf. Eru það þau Ellen
Ingvadóttir og Páll Heið-
ar Jónsson og eru þau
með skrifstofur að Tjarn-
argötu 4 í Reykjavík.
Ellen sagði í samtali
við Frjálsa verslun að
hún hefði auk blaða-
mennsku starfað mikið
fyrir opinbera aðila,
stjórnmálamenn og
einkafyrirtæki, að þýð-
ingum á ýmsu efni. Eftir-
spurn eftir slíkri þjón-
ustu hefði aukist að und-
anförnu og gæfi það til-
efni til bjartsýni um að
þörf væri á slíkri starf-
semi. Ellen starfaði áður
í stjórnmáladeild banda-
ríska sendiráðsins hér á
landi og hjá útgáfufyrir-
tækinu Fróða hf. Hún hef-
ur 12 ára reynslu í þýð-
ingum. Páll Heiðar er
kunnur útvarpsmaður og
hefur langa reynslu að
baki sem þýðandi.
„Við munum auk þýð-
inga aðstoða fólk við að
þýða og staðfæra kynn-
ingarefni íslenskum að-
stæðum, veita ráðgjöf
varðandi prentvinnslu,
vinna að textagerð um ís-
lensk málefni á erlend
tungumál o.fl.,“ sagði
Ellen í samtali.
Þau Ellen og Páll Heið-
ar þýða af og á ensku.
Jafnframt taka þau að sér
þýðingar af og á Norður-
Ellen Ingvadóttir löggiltur
dómtúlkur og skjalaþýðandi
hefur hafið samstarf um
rekstur skrifstofu að Tjarn-
argötu 4 ásamt Páli Heiðari
Jónssyni.
landamálin og hafa á sín-
um snærum þýðendur
hvað varðar önnur tungu-
mál, t.d. rússnesku.
RÁÐHÚSIÐ:
BAKKABÚÐIN
LEIGÐ ÚT
MUNTflKA 70 MANNS í SÍETI
Borgaryfirvöld hafa
ákveðið að hafa kaffiteríu
í Ráðhúsi Reykjavíkur
sem leigð verður út til
einkaaðila sem taka
munu að sér reksturinn.
Gert er ráð fyrir að
kaffiterían geti tekið allt
að 70 manns í sæti og
verði opin frá 12 á hádegi
til kl. 17.
Með þessu bætist við
enn einn veitingastaður-
inn sem Reykjavíkurborg
kemur upp og leigir síðan
út til samkeppni á hinum
löngu ofmettaða veit-
ingarekstrarmarkaði.
Þú getur treyst okkur.
Við lækkum kostnað í viðskiptaferðum.
Menn úr viðskiptalfflnu mega treysta því að Úrval-
Útsýn finnur ávallt hagstæðustu ferðamöguleikíuta.
í könnun ferðablaðs Morgunblaðsins hefur komið
berlega í ljós að sérfræðingar Úrvals-Útsýnar geta
sparað kaupsýslumönnum umtalsverðar fjárhæðir.
Hafðu reynsluna að leiðarljósi.
Lattu okkur skipuleggja næstu viðskiptaferð.
Ilafðu samband við söluskrifstofur Úrvals-Útsýnar,
íMjódd, sími 699300, ogvið Austurvöll, sínti
26900.
V:'
ÚRVALÚTSÝN