Frjáls verslun - 01.03.1992, Qupperneq 18
FORSIÐUGREIN
HVAÐ SEGJA SAMFERDARMENN UM LÝÐ FRIÐJÓNSSON?
SKAPMIKILL OG DUGLEGUR EN
ALLT AD ÞVÍ HROKAFULLUR
- MJÖG HÆFUR MARKAÐSMAÐUR MEÐ VÍÐTÆKA ÞEKKINGU
Yfirleitt ná menn ekki miklum
árangri í viðskiptum nema ein-
hverjir verði fyrir hnjaski. Þess
vegna er auðvelt að eignast óvild-
armenn. Með góðu samstarfi og
traustri framkomu eignast menn
líka vini í gegnum viðskipti. Það er
talið einkenna Lýð Friðjónsson að
hann sé vinur vina sinna en eigi
erfitt með að fyrirgefa þeim sem
hann lendir í andstöðu við.
Hann er hreinskilinn og gagnrýninn ef
því er að skipta. Ágúst Valfells lýsir hon-
um svona: „Lýður og ég höfum átt sæti
saman í stjómum Félags íslenskra iðn-
rekenda, Steypustöðvarinnar hf. og
Handsals hf. Hann er greindur og vel
menntaður, óhræddur við að viðra skoð-
anir sínar og fús til umræðna og ávallt á
efnislegum grundvelli. Hann er hreinn og
beinn."
Öllum, sem blaðið ræddi við, ber saman
um að hann sé harðduglegur og vinnusam-
ur — stundum jafnvel svo að hann sjáist
ekki alltaf fyrir því metnaðurinn er mikill.
Davíð Scheving Thorsteinsson hjá Sól/
Smjörlíki/Íslensku bergvatni hefur átt í
samkeppni við Vífilfell á mörgum sviðum:
Á innlenda drykkjarvörumarkaðnum, í út-
flutningi á vatni og um tíma í smjörlíkis-
gerð þegar Vífílfell keypti Akra og hóf
samkeppni við fyrirtækið. Við báðum
Davíð að segja álit sitt:
„Það leikur ekki nokkur vafi á því að
Lýður er hörkuduglegur og útsjónarsam-
ur framkvæmdastjóri. Það sést á þeirri
umbyltingu sem hann gerði á Vífilfelli,
bæði í rekstri og á markaðssviðinu.
En það, sem hefur háð honum, er van-
þroski í samskiptum við annað fólk og það
hefur örlað á hroka sem e.t.v. stafar af
minnimáttarkennd. Vonandi losnar hann
við minnimáttarkenndina eftir því sem
þroskinn eykst og sjálfstraustið vex.“
Hallgrímur Tómas Ragnarsson við-
skiptafræðingur gegndi starfi markaðs-
stjóra hjá Vífílfelli og átti þá mikið samstarf
við Lýð. Hann segir að dugnaður og metn-
aður einkenni Lýð og að hann sé glöggur á
aðalatriðin. Látum Hallgrím hafa orðið:
„Enginn vafi leikur á því að mikill árang-
ur náðist á mjög mörgum sviðum hjá Vífil-
felli á meðan Lýður starfaði þar. Hann
beitti sér mjög fyrir ýmsum nýjungum,
framleiðsluvörum fjölgaði og veltan jókst.
Á hinn bóginn hafði metnaður hans það í
för með sér að hann réðst í of mörg verk
og uppskar ekki alltaf sem skyldi. Lýður
gerði sér grein fyrir þessu og hætti flestu
sem tengdist ekki beint rekstri og hags-
munum Vífilfells.
Það, sem ég get helst gagnrýnt Lýð
fyrir er starfsmannastjómin sem mér þótti
stundum allt að því klaufaleg og í öðrum
tilvikum einkennast af hörku og tillitsleysi.
Hann sagði þetta vera hluta af stjómunar-
stíl sínum. Vegna þessa var starfsandinn í
fyrirtækinu ekki sem skyldi þrátt fyrir vel-
gengni og gott starfsfólk. Rétt er að taka
fram að Lýður var í erfiðri stöðu meðan
deilur stóðu um eignaraðild hluthafa.
Lýður gerði miklar kröfur til sín og ann-
18