Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1992, Page 45

Frjáls verslun - 01.03.1992, Page 45
veraldar — hrikalegt bákn sem gat stjórnað eftirspurn. Um næstu áramót sameinast stór hluti Evrópu í eitt markaðssvæði. Sameinuð er Evrópa stærri og þýð- ingarmeiri markaður fyrir tölvur en Bandaríkin eða Japan. Fall Sovétríkj- anna, aukið lýðræði í öðrum fyrrum kommúnistaríkjum og sameining þýsku ríkjanna hefur aukið þýðingu evrópska tölvumarkaðarins þótt erf- itt sé að mæla þá þýðingu á raunhæf- an hátt. Með hliðsjón af efnahagsástandinu í Bandaríkjunum má telja víst að auk- ist tölvumarkaðurinn á næsta áratug verði sú aukning í Evrópu. Japönsk fyrirtæki hafa þegar gert ráð fyrir þessu og hafist handa en þau banda- rísku, sem flest eiga í erfiðleikum, virðast ætla að verða svifaseinni. Þar sem búast má við að vöxturinn verði mestur næstu árin, þ.e. í sam- einaðri Evrópu, er staða IBM á mark- aðnum veikari en fyrirtækið á að venj- ast heima fyrir. í þessu samhengi er vert að hafa í huga að IBM hefur aldrei lifað á því að vera stórt heldur á því að selja með hagnaði og þörfin fyrir hagnað hefur aldrei verið meiri en nú. Annað atriði, eykur vandann, er að stærstur hluti hagnaðar IBM undan- farna áratugi hefur verið af sölu meg- intölva og af þjónustu við notendur þeirra. Á þessum sérhæfða markaði hefur IBM ráðið ríkjum í krafti tækni- þekkingar og þjónustukerfis. Sam- keppni hefur verið hverfandi miðað við það sem gerist á öðrum sviðum tölvumarkaðar. Nú hefur þróunin orðið sú að sum fyrirtæki, sem áður notuðu megin- tölvur, leysa þær af hólmi með mun ódýrari tölvum sem tengdar eru sam- an í neti. Sama þróun er á markaði fyrir miðlungstölvur sem nú má leysa af hólmi með nettengdum PC-tölvum sem margir telja hagkvæmari kost. Fyrir IBM þýðir þessi þróun, verði henni ekki snúið við, vaxandi tap: Fyrirtækið verður að draga úr áherslu á megintölvur, þar sem hagn- aðurinn hefur verið mestur, og auka áhersluna á miðlungstölvur, þar sem hagnaðarvon er minni í meiri sam- keppni, og á PC-tölvur (PS) þar sem hagnaðarvonin er hverfandi, eins og er, og samkeppnin út yfir allan þjófa- bálk. (Sameining IBM og Apple breytir engu í þessu samhengi því þegar á heildina er litið skiptir Apple ekki máli). Af þessu má draga ýmsar ályktanir sem m.a. er fjallað um í þessari grein. ENGIN AUKNING - HAGNAÐUR MINNKAR Samkvæmt upplýsingum IDC, en það er þekkt fyrirtæki sem fylgist með þróuninni á tölvumarkaðnum og miðlar upplýsingum til fjölmiðla, jókst PC-markaðurinn um 30% að meðal- tali á ári um miðbik 9. áratugarins. Um þessar mundir mun árleg aukning vera innan við 10% og jafnvel að stór- um hluta vegna undirboða. Samkvæmt upplýsingum IDC hef- ur meðalálagning PC-framleiðenda minnkað úr 25% að meðaltali 1985 í 6% 1991 og meðalálagning hugbúnað- arframleiðenda á PC-markaði úr 40% í 20% og sú álagning er sögð vera að mestum hluta fengin með sölu á kerf- um fyrir Macintosh. í sænska tímaritinu „Datornytt“ (6. tbl. 1991, bls. 26) er greint frá niðurstöðum könnunar IDC á mark- aðshlutdeild IBM og Apple á PC- markaðnum. Þar segir að hlutur IBM hafi minnkað úr 43,6% árið 1983 í 13% árið 1990. Á sama tímabili hefur hlut- ur Apple á PC-markaðnum, sam- kvæmt sömu heimild, minnkað úr 33% 1983 í 9% árið 1990. Þýðingar og textaráðgjöf »»- FYRIR FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGA -»« TJARNARGÖTU 4 • 101REYKJAVÍK • SÍMRITI 91-626884 ► Löggiltir skjalaþýðendur á og úr ensku ► Þýðingar á og úr Norðurlandamálum ► Þýðingar á og úr rússnesku ► Prófarkalestur Ellen Ingvadóttir, sími 91-626588 Páll Heiðar Jónsson, sími 91-627509 Löggiltir skjalaþýðendur og dómtúlkar 45

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.