Frjáls verslun - 01.03.1992, Side 46
TOLVUR
Þessar tölur koma heim og saman
við lýsingar á erfiðleikum margra ann-
ara PC-framleiðenda, einkum banda-
rískra, erfiðleikum sem hafa eflaust
átt þátt í að knésetja sum þeirra
mörgu íslensku fyrirtækja sem hafa
reynt fyrir sér á PC-markaðnum og
mistekist, ýmist hætt, sameinast
öðrum eða orðið gjaldþrota.
Það er athyglisvert hve lítil fjár-
munamyndun virðist hafa átt sér stað
í viðskiptum með PC-tölvur og hug-
búnað fyrir þær hérlendis. Upp úr
þessum viðskiptum virðist lítið sem
ekkert að hafa, ef dæma má af tapi
sumra fyrirtækja í greininni, en
áhættan er hins vegar mikil. Þetta er
svipað fyrirbæri og í matvöruverslun,
þ.e. lítill hagnaður en mikil áhætta.
Aðeins eitt stórt fyrirtæki á gömlum
grunni er eftir á íslenska PC-mark-
aðnum en tiltölulega stutt er síðan
það fyrirtæki snéri sér að tölvum.
Þegar megin- og miðlungstölvur,
eiga í hlut, en þar kepptu 3 aðilar við
IBM upp að vissu marki, virðist Wang
vera gleymt og grafið, DEC vera í
öldudal og grundvallarbreytingar að
verða á rekstrarformi IBM og
Hewlett-Packard hérlendis. Það
skyldi því ekki koma á óvart að sam-
keppnin á milli IBM, DEC og HP um
sölu á stærri kerfum á íslandi muni
brátt fara fram í Kaupmannahöfn.
Skipulagður niðurskurður kostnaðar
á öllum sviðum hjá þessum banda-
rísku fyrirtækjum er líklegasta orsök-
in og sá niðurskurður hefur síðan
þessi áhrif á íslandsverslun Dana.
TVEIMUR FAKTORUM FÆRRA
Það vakti athygli þegar IBM á ís-
landi, dótturfyrirtæki danska IBM,
skilaði myndarlegum hagnaði í fyrra.
Það vakti ekki síður athygli þegar til-
kynnt var að IBM á íslandi rynni sam-
an við nýstofnað fyrirtæki, Nýherja,
hlutafélag sem er, að meirihluta, eign
íslenskra aðila og verður umboðsaðili
IBM (í Danmörku). Næststærsti
hluthafinn (30%) er IBM í Danmörku.
í stjóm Nýherja situr m.a. Max Ros-
en, fulltrúi IBM í Danmörku: IBM er
því að hætta rekstri í eigin nafni á
íslandi þrátt fyrir hagnaðinn í fyrra.
Dótturíyrirtæki danska Hewlett-
Packard á íslandi er einnig hætt, eða
að hætta, eigin rekstri á íslenska
markaðnum. Stofnað hefur verið nýtt
fyrirtæki, HP á íslandi hf. sem er að
meirihluta í eigu íslenskra aðila og
verður umboðsaðili fyrir Hewlett-
Packard (í Danmörku). Á meðal
þeirra, sem sitja í stjóm nýja fyrir-
tækisins, er Jörgen H. Herlevsenfrá
Hewlett-Packard í Danmörku.
Það hefur farið í taugarnar á ein-
staka viðskiptavini að bandarísku
tölvuframleiðendurnir, IBM, Digital
(DEC) og Hewlett-Packard, skuli
eiga það sameiginlegt að viðskipti
þeirra við íslenska aðila hafa farið í
gegnum milliliði í Danmörku sem
m.a. veldur því að vél- oghugbúnaður
getur verið dýrari hér en í sérversl-
unum í Bandaríkjunum.
IBM AS/400: SÉRKAFLI
Þegar stjórnendur IBM hafa brýnt
starfsmenn að undanfömu hafa þeir
m.a. bent á að tæknilegir yfirburðir,
einir og sér, nægi ekki til þess að
rétta hlut IBM á markaðnum en að
tæknilegir yfirburðir hafi orðið til
þess að IBM sofnaði á verðinum, hélt
sig ekki þurfa að keppa við aðra en
sjálft sig. Dæmi, sem stundum er
nefnt „Microvaxmálið", segir sína
sögu:
Um miðjan síðasta áratug vann
DEC kúnna frá IBM án þess að það
fengi rönd við reist. Ástæðan var
DEC Microvax; vel hönnuð og vel
útfærð tölva sem notaði sama stýri-
kerfi (VMS), hvort sem kerfið var
stórt eða lítið. Umhverfið (VMS) var
það, sama hvort sem tölvukerfið var
AMERISKAR HAGÆÐATÖLVUR FRÁ:
Silicon\4lley Computers
SVC 80386 SX, 25 Mhz
40 Mb harður diskur
4 Mb minni
2 raðtengi, ] hliðtengi
1,44 Mb disklingadrif
1,2 Mb disklingadrif
Super VGA litaskjár
Tilboðsverð: 139.000,-
SVC 80386, 40 Mhz
64 Kb WB flýtiminni
120 Mb harður diskur
4 Ml) minni (70ns)
2 raðtengi, 1 hliðtengi
1,44 Mb disklingadrif
1,2 Ml) disklingadrif
Super VGA litaskjár
Tilhoðsverð: 179.000,-
SVC 80486, 33 Mhz
64 Kb WB flýtiminni
200 Mb harður diskur
4 Mb minni (70ns)
2 raðtengi, 1 hliðtengi
1,44 Mb disklingadrif
1,2 Mb disklingadrif
Super VGA litaskjár
Tilboðsverð: 245.000,-
SIMI 91 - 79444
FAX 91 - 79159
Bestu kaup miðað yið tækni og gæði!
KJARNI HF.
SMIÐJUYEGI 42 D
46