Frjáls verslun - 01.11.1998, Qupperneq 17
VIFILFELL SELT
□ ífilfell hefur haft einkaleyfi á
framleiðslu og sölu á Coca-
Cola á íslandi frá 1941. í lok
nóvember var tilkynnt að fyrirtækið
Coca-Cola Nordic Beverages myndi
kaupa Vífilfell og er búist við að endan-
legum samningi verði lokið í ársbyijun
1999.
Coca-Cola Nordic Beverages er
eigu Coca-Cola Company í Atlanta sem
á 49% og Carlsberg samsteypan í Dan-
mörku á 51%. Þetta fyrirtæki hefur ver-
ið að yfirtaka verksmiðjur Coca-Cola á
hinum Norðurlöndunum og má segja
að þegar skrifað verður undir samning-
ana við Vífilfell verði því ferli lokið.
Vífilfell velti rúmlega 2,3 milljörðum ár-
ið 1997. Þar vinna um 150 starfsmenn.
Frá vinstri: Svend I. Petersen, forstjóri Coca-Cola Nordic Beverages, Pétur Björnsson, fráfarandi
forstjóri og aðaleigandi Vífilfells, og Þorsteinn M. Jónsson, framkvœmdastjóri Vífilfells, sem mun
halda áfram um stjórnvölinn fyrir nýja eigendur.
FV-mynd: Geir Olafsson.
Þorsteinn M. Jónsson verður áfram
framkvæmdastjóri Vífilfells og mun
annast rekstur fyrirtækisins fyrir hina
nýju eigendur. Hann sagðist reikna
með svipaðri veltu á yfirstandandi ári
en nú væri hluti rekstrarins kominn í
önnur fyrirtæki og því ekki um sam-
bærilegar tölur að ræða.
„Það standa vonir til þess að gengið
verði frá samningum endanlega um
miðjan febrúar. Þá lýkur ferli viðræðna
sem staðið hefur frá í febrúar á þessu
ári,“ sagði Þorsteinn M. Jónsson í sam-
tali við Frjálsa verslun.
Coca-Cola Nordic Beverages keypti
hlutabréfin í Vífilfelli en aðeins þann
hluta starfseminnar sem lýtur að fram-
leiðslu og dreifingu á afurðum Coca-
Cola Company. Sól-Víking, sem einnig
er í eigu Vífilfells og hefúr framleitt
bjór og drykkjarvörur, verður áfram í
eigu Péturs Björnssonar, fráfarandi
stjórnarformanns Vífilfells, og fjöl-
skyldu hans. Sama gildir um sælgætis-
innflutning á vegum Þórðar Sveinsson-
ar ehf. Hvort tveggja var undanskilið í
kaupunum. Sól-Víking hefur m.a.
framleitt ávaxtasafa auk Víking og
Thule bjórs og Carlsberg frá miðju
þessu ári.
,Aðilar voru sammála um að gefa
ekki upp verðið en segja má að það sé
ásættanlegt fyrir báða aðila,“ sagði Þor-
steinn. Bestu heimildir Frjálsrar versl-
unar segja það hafa verið 30 milljónir
dollara eða um 2,1 milljarða ísk. króna.
f ‘ ' '......
Stálslegið öryggi
Bedco & Mathiesen ehf
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími 565 1000
Öryggisskáparnir frá Rosengrens
eru traust geymsla fyrir peninga,
skjöl, tölvugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem enj í hæsta
gæðaflokki fást í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.
17