Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1998, Page 18

Frjáls verslun - 01.11.1998, Page 18
□ Hörður Sigurgestsson, 60 ára forstjóri Eimskips, er maður ársins 1998 í íslensku við- skiptalífi að mati Fijálsrar verslunar. Hann hlýtur þennan heiður fyrir fram- úrskarandi árangur og farsælan feril í störfum sínum fyrir Eimskip. Um þrett- án þúsund hluthafar í Eimskip geta hrósað happi yfir að hafa fengið Hörð til félagsins fyrir um tuttugu árum þegar á brattann var að sækja hjá því. Félagið hefur skilað góðum hagnaði flest árin á starfstíma hans. Arangur síðustu ára hefur verið sérlega ánægjulegur fýrir hluthafa Eimskipafélagsins; markaðs- verð þess hefur hækkað úr rúmum 5 milljörðum í yfir 23 millj- arða á tæpum fimm ár- um - og þannig hefur verðmætaauki hluthafa orðið umtalsverður. Fét- agið er það verðmætasta TEXTI: Jón G. Hauksson MYNDIR: Geir Ólafsson varð Hörður fyrir valinu. Þess má geta að Eimskip hóf á undan flestum öðrum félögum að ijárfesta í öðrum fyrirtækjum - og styrkja þar með atvinnulífið. IJta má á þær fjárfestingar sem frumkvöðlastarf- semi í ljárfestingum. Hörður segir að hann líti fyrst og fremst á útnefningu Fijálsrar verslunar sem viðurkenningu til stjórnar Eimskips og starfsmanna. „Það hafa margir lagt hönd á plóginn við að gera félagið sterkt; það er ekki verk eins manns.“ Hörður hefur engu að síður sýnt ótvíræða leiðtogahæfileika við rekstur félagsins og byggt upp hóp sterkra, vel menntaðra stjórnenda. Félagið hefur fyrir vikið beitt nútímalegustu aðferðum úr fræðum viðskipta og hagfræði við reksturinn - og haft þar ákveðið forskot á mörg önnur fyrirtæki hérlendis. á Verðbréfaþingi. Fijáls verslun óskar honum, konu hans, Aslaugu Ottesen, fjölskyldu og starfsmönnum Eimskips til hamingju með útnefninguna! Þetta er ellefta árið í röð sem Fijáls verslun útnefnir mann ársins í íslensku viðskiptalífi. Til þessa hefur það meg- insjónarmið ráðið ferðinni í vali á manni ársins að líta frekar til frum- kvöðla en atvinnustjórnenda. Núna ákvað blaðið að víkka skilgreininguna og horfa einnig til stjórnenda; þar með Hörður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Islands og aðeins einn þriggja Islendinga sem lokið hafa MBA námi frá einum elsta og virtasta viðskiptaháskóla Bandaríkj- anna, Wliarton skólanum í Pennsylvaníu. Afar erfitt er að fá inngöngu í skólann og setið er um nemendur úr honum. Skólinn hefur um árabil trónað í efsta sætí á lista tímaritsins Business Week yfir bestu viðskiptaháskólanna vestanhafs - en bæði nemendur og atvinnurekendur eru spurð- ir álits í könnun blaðsins. Skólinn er kunn- astur fyrir kennslu í ijármálum. Eiginkona Harðar er Áslaug Ottesen bókasafnsfræðingur. Hún hefur starfað í Landsbókasafni Islands um árabil. Þau kynntust í Háskólanum, hann var for- maður Stúdentaráðs og hún var skrif- stofustjóri ráðsins og starfsmaður bóksölu stúdenta. Þau gengu í það heilaga árið 1966 - og viku síðar flugu þau til Banda- ríkjanna þar sem Hörður hóf framhalds- nám við Wharton skólann en hún starfaði sem bókavörður á bókasafni listaskólans. Þau Hörður ogÁslaug eiga tvö börn, Ingu, sem er viðskiptafræðingur frá Háskóla Islands, og Jóhann Pétur, sem er nemandi í lagadeild Háskólans. Inga býr núna í Madrid með manni sínum, Vicente Sanch- es-Brunete lækni. Hún stundar MBA nám. Jóhann Pétur býr með unnustu sinni, Helgu Zoega, nema í stjórnmálafræði. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, 60 ára, er markaðsvirði félagsins hefur hœkkað úr rúmum 5 eiga bústað í Fljótshlíðinni. liliMilU Höröur Sigurgestsson, Eimskiþs Hörður safnar kröftum með því að iðka leikíimi tvisvar í viku - og sömuleiðis segist hann slaka vel á við lestur bóka og með því að fara í ökuferðir, og þá gjarnan austur í sveitir. „Eg hef verið þátttakandi í hópi manna sem kallar sig Afrekshóp Gauta Grétarssonar, 18

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.