Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1998, Side 28

Frjáls verslun - 01.11.1998, Side 28
MAÐUR ARSINS auðvitað að hafa verður mjög skýrt skipulag á hlutunum. Það er hins vegar ekki markmið að kúltúrinn hjá Flugleiðum verði sá sami og hjá Eimskip. En mismunandi kúltúr í fyrirtækjum á hins vegar að leiða til sömu niðurstöðu í rekstri. Það hafa orðið gífurleg umskipti og framþróun hjá Flugleiðum á síðustu tíu árum. Þetta er að ílestu ieyti mjög nútímalegt og vel þróað fyrirtæki. Rekstrarum- hverfi þess er að breytast mjög hratt og við erum enn að móta reksturinn í takt við þessar breytingar á umhverfinu. Eg tel að kúltúr í fyrirtækjum endurspegli stil stjórnenda þeirra á hverjum tíma. Eg skipti mér ekki af rekstri Flugleiða frá degi til dags. Sem stjórnarformaður tek ég þátt í að móta markmið, stefnu og aðaláherslur félagsins. Það er verk- efni okkar í stjórn félagsins að fylgja því eftir að félagið skili eins góðum árangri og hægt er að ná á hverjum tíma.“ - Ertu ánægður með þann árangur sem stjórnendur Flugleiða hafa náð? „Þær breytingar sem hafa verið gerðar á starfsemi Flugleiða undanfarin ár hafa allar miðað að því að skapa félaginu framtíð. Félagið hefur verið endurnýjað, það hefur náð betri skilningi og stöðu á markaðnum og öll stjórnun hefur verið bætt. An þessara breytinga væri flugþjónusta til og irá Islandi allt önnur og rýrari - og afkomumöguleikar Flugleiða sömuleiðis. Þennan árangur er ég vitaskuld ánægður með. Þessar breytingar hafa gerst á mesta umbrotaskeiði í flugsögunni og þótt vel hafi verið unnið hefur félagið ekki náð þeim rekstrarárangri sem stefnt hefur verið að. Hvorki stjórn félagsins né stjórnendur sætta sig við þann ávinning sem náðst hefur. Við viljum og ætlum lengra - um það er enginn ágreiningur!" - Ertu með öðrum orðum að segja að Flugleiðir eigi mikið inni, eins og sagt er. Það sé búið að sá þar til betri tíðar seinna? „Fyrirtækið hefúr aldrei verið betur í stakk búið til að ná viðunandi árangri. En sem eitt smæsta fyrirtækið á þessum mark- aði eigum við enn eftir að ná meiri árangri. En það er hluthöfum Flugleiða alveg ljóst að þetta er áhætturekstur; hann er hins vegar mjög þýðingarmikill fyrir íslenskt samfélag." - Þú tókst við starfi forstjóra Eimskips árið 1979. Getur þú borið þáverandi rekstrarumhverfi saman við það sem nú ríkir? „Við störfum í algjörlega öðru viðskiptaumhverfi. Þá einkenndist efnahagslífið af mikilli verðbólgu, pólitískri óvissu, miklum afskiptum stéttarfélaga af efnahagsmálum og mjög virkri þátttöku ríkisvaldsins í atvinnulífinu. Fyrirtæki slógust stöðugt við verðlagsyfirvöld og virkur verðbréfa- og hlutabréfamarkaður var ekki til. Þetta hefúr allt gjörbreyst. Við störfum núna í mjög markaðssæknu umhverfi og það er í aðalatriðum að verða sambærilegt við það sem best þykir í löndunum í kringum okkur. Rekstur Eimskips var erfiður þegar ég kom hingað. Ég og mínir samstarfsmenn réðumst í að horfa á málin í öðru ljósi og breyta fyrirtækinu. Að hluta til var það gert með því að ljúka ferlinu við að koma upp gámaflutningum og halda áfram að byggja upp vöruflutninga- höfnina í Sundahöfn. En það var lika gert með því að breyta skipulaginu í fyrirtækinu og nálgast markaðinn og samkeppnina á annan hátt. Okkur tókst að lækka kostnaðinn og fyrir vikið gátum við lækkað flutnings- gjöldin stórlega. Allar þessar breyting- ar hafa gert félagið samkeppnishæfara og sterkara." - Hvernig Iýst þér á framtíð íslensks atvinnulífs og framtíðarmögu- leika Eimskips? „Við munum alltaf lifa við nokkrar sveiflur í okkar efnahagsmálum og til skemmri tíma litið á ég von á að einhver samdráttur kunni að gera vart við sig, jafnvel á næsta ári. Það er ekkert sem við eigum ekki að geta ráðið auðveldlega við. Hins vegar er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því að leiðin liggur ekki alltaf upp á við. Til lengri tíma litið er ég bjartsýnn á möguleika Islendinga og íslensks atvinnulífs. Ég tel raunar að möguleikarnir séu núna betri og meiri en nokkru sinni fyrr. Bæði er það að aðstæður hér á landi i efnahagsmálum - og sú umgjörð sem atvinnulífið býr við - hefur tekið miklum framförum og svo hitt; að almennt eru fyrirtæki og stjórnendur þeirra að ná betri tökum á rekstrinum - þeim er að aukast kjarkur til að sækja fram af meiri ákveðni, t.d. á erlendum mörkuðum. Stækkun rekstrareininganna mun halda áfram og við erum að færast nær umheiminum. Við munum nálgast Evrópu enn meira á næstu árum. I þessu umhverfi ætti Eimskip að eiga góða möguleika bæði sem flutningaþjónustufyrirtæki og sem vaxandi þátttakandi í öðrum atvinnurekstri. Fyrirtækið mun halda áfram að breytast og ég vona að það muni áfram gegna mikilvægu hlutverki í atvinnulífinu og megi eiga sinn þátt í að tryggja sterka sam- keppnisstöðu þjóðarinnar í byrjun næstu aldar.“ - Þú hefur verið i erilsömu starfi hjá Eimskip í bráðum tutlugu ár. Hvernig slakar þú á í erli dagsins til að safna kröftum? „Ég eyði að sjálfsögðu mínum fritíma að verulegu marki með fjölskyldu minni. Það geri ég auðvitað með ýmsum hætti. Við Aslaug höfum l.d. afar gaman af því að ferðast, bæði heima og erlendis. Oft hefur það nú verið þannig að til að komast í trí höfum við farið til útlanda — oft með mjög skömmum fyrirvara. I þau nálægt tuttugu ár, sem ég hef starfað hérna, hef ég þó aldrei verið lengur Ijarverandi en í tvær vikur í senn. Við förum stundum út að aka og það getur til dæmis verið afar uppbyggilegt að skreppa austur í Vík í Mýrdal og fá sér kaffisopa. Stundum fær maður býsna góðar hugmyndir þegar komið er austur yfir Þjórsá og aðrar víddir eru komnar upp á sjóndeildarhringinn. Við eigum lítið hús austur í Fljótshlíð og kunnum afskaplega vel við okkur þar, skiptir þá í sjálfu sér engu hvort það er sumar eða vetur, rigning, sólskin eða bylur. Það er líka búið að kenna mér að Hörður er viðskiptafrœðingur frá Háskóla Islands og einn þiggja íslendinga sem lokið hafa MBA námi frá elsta og virtasta viðskiþtaháskóla Banda- ríkjanna, Wharton-háskólanum í Pennsylvaníu. 28

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.