Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1998, Page 38

Frjáls verslun - 01.11.1998, Page 38
Sigurður Gísli Pálmason, forstjóri Hofs, er aöili aö Listasjóði atvinnulífsins. Hann hefur deilt á íslensk fyrirtoeki sem hann telur aö hafi skyldur aö rœkja á þessu sviði. Alls hafa fyrirtæki sem eru aðilar að sjóðnum keypt listaverk af 30 listamönnum frá árinu 1994. 40 fyrirtæki eru þátttak- endur í sjóðnum en til stendur að íjölga þeim og aðild er öllum opin. Sigurður Gísli Pálmason, oft kenndur við Hagkaup eða Hof, og Gunnar Dungal, forstjóri Pennans, eru meðal þeirra sem veita Iistasjóði atvinnulífsins forstöðu. Þeir voru spurðir hvort greina mætti kyn- slóðaskipti í hópi fyrirtækja sem eiga aðild að sjóðnum. „Ef eitthvað er þá eru yngri menn í hópnum óragari við að kaupa nútímalist en það er engin skýr aldursskipting í þessum hópi,“ sagði Sigurður Gisli. Hann sagði að snemma á nýja árinu yrðu kynntir breyttir starfshættir sjóðsins sem miðuðu að því að fyrirtækin keyptu fleiri verk og fýrirtækjum fjölgaði sem aðilar væru að sjóðnum. Sjóðurinn hefúr keypt listaverk af ýmsu tagi, málverk, höggmyndir, veflist og leirlist en málverk- in eru trúlega í meirihluta. .Ávinningurinn er umtalsverður og margþættur. í fyrsta lagi eignast menn nútímalist til þess að fegra umhverfi sitt. í öðru lagi eru þeir að gera góða íjárfestingu og síðast en ekki síst þá fá þeir leiðsögn í því að kaupa listaverk. Það er afskaplega gefandi að mínu viti að kynnast lista- mönnum og þeirra hugarheimi. Slík samskipti milli stjórnenda fyrirtækja og listamanna hljóta að vera gagnleg fyrir báða aðila,“ sagði Sigurður Gísli. Hann sagði að það hefði fyrst og fremst verið almennur áhugi á þessum málum sem varð til þess að Hof gerðist aðili að sjóðnum en ekki síður sú skoðun hans að fyrirtæki hefðu ákveðnum skyldum að gegna á þessu sviði. Það eru fimm listfræðingar sem veita sjóðnum ráðgjöf og gera það í sjálfboða- starfi vegna áhuga síns á málstaðnum. „Ef okkur tekst að hrinda í framkvæmd áætlunum okkar um aukin umsvif þá verður Listasjóður atvinnulífsins kominn í röð stærstu aðila sem kaupa nútímalist á Islandi og mun þá standa jafnfætis Kjar- valsstöðum og Listasafni Islands á því sviði,“ sagði Gunnar Dungal. Þeir félagar voru spurðir álits á þeirri staðhæfingu að fyrirtæki gerðu mikið af því að taka listaverk upp í skuldir. Sigurður kvaðst telja það ýkt en taldi einhver dæmi um vöruskipti þar sem listamenn létu verk í staðinn fyrir vöru eða þjónustu. .ýUmennt finnst mér vanta listaverk í íslenskum fyrirtækjum. Þó eru mörg gróin fyrirtæki sem eiga verðmæt verk sem þeir hafa eignast snemma á ferli listamannsins og eiga þar góða fjárfestíngu," segir Gunnar. Þeir félagar sögðu að margir góðir listamenn væru ekki duglegir að koma sér á framfæri og það væri eitt af markmiðum sjóðsins að draga þá fram í dagsljósið. En finnst þeim að umræðan um meintar falsanir á íslenskum málverkum hafi gert kaupendur taugaósfyrka? „Þessi umræða hefur áreiðanlega ekki haft góð áhrif en það er einn kosturinn við að vera aðili að Iistasjóðnum að menn eru alltaf að kaupa beint af listamönnunum sjálfum og þurfa þvi engar áhyggjur að hafa,“ sagði Sigurður Gísli. Þeir sem standa fyrir Iistasjóðnum ala með sér þann draum að standa fyrir yfirlitsssýningu á verkum sem sjóðurinn STIKKFRÍ Hér á landi snýr umræðan um fjárframlög til lista einatt að ríki og sveitarfélögum, fyrirtækin eru að miklu leyti „stikkfrí" - menn búast við litlu þaðan og gera því litlar kröfur. hefur keypt og er það sannarlega tilhlökk- unarefiii. Gunnar Dungal hefur nýtekið við sem formaður sjóðsins af Jóhanni Ola Guð- mundssyni sem gegndi því starfi frá upphafi en situr enn í stjórn. Aðrir í stjórn hans eru: Sigurður Gísli Pálmason, for- stjóri Hofs, Hildur Petersen hjá Hans Pet- ersen hf., Kristján Agnarsson í Kassa- gerðinni, Sólon Sigurðsson, bankastjóri í Búnaðarbankanum, og Helgi Jóhannsson hjá Samvinnuferðum-Landsýn. I listráði sjóðsins sitja listfræðingarnir Auður Olafsdóttir, Halldór B. Runólfsson, Hrafnhildur Schram, Eirikur Þorláksson og Olafur Gíslason. VERIÐ AÐ META VERK LANDSBANKANS Við gerð þessarar greinar hafði Frjáls verslun samband við Landsbanka Islands í leit að upplýsingum um listaverkaeign bankans og áætlað verðmæti hennar. I samtölum við starfsmenn bankans kom fram að gegnum tíðina hefur starfað 3 manna nefiid innan bankans sem hefur ákveðið innkaup á listaverkum. Um þessar mundir liggja öll listaverkakaup niðri í Landsbankanum og ekki ljóst með hvaða hætti þessum málum verður háttað í framtíðinni. Engar upplýsingar eru veittar um verðmæti listaverka í eigu bankans. Rúmlega 500 málverk og myndir munu vera í hans eigu og að sögn kunnugra eru mikil verðmætí þar vantalin. Um þessar mundir er sérfræðingur á vegum bankans að fara í gegnum safnið og endurmeta verðmæti þess jafnframt því að gæta að því hvort einhverjar falsanir gætu leynst í bunkanum. Það er trúnaðarmál innan bankans hver annast matið og hve langan tíma það tekur. Búnaðarbanki Islands hefur lengi keypt listaverk og er þekktur fyrir málverkasafii ÞEIR SÖFNUÐU LIST Viö þekkjum dæmi um ástríðufulla og afkastamikla listsafnara í stétt atvinnurekenda og er Þorvaldur heitinn Guömundsson í Síld og fisk án efa frægasta dæmiö. Margir vita að Sverrir Kristinsson fasteignasali safnar málverkum og það sama má segja um Sævar Karl klæðskera. Gunnar Dungal eiganda Pennans og þannig mætti eflaust telja áfram. Einnig mætti nefna Ragnar Jónsson í Smára, Markús ívarsson í Héöni og Sverri Sigurösson í Sjóklæðagerðinni. 38

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.