Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1998, Side 82

Frjáls verslun - 01.11.1998, Side 82
FÓLK af sér, bæði íyrir nemendurna og ekki síður fyrir fyrirtækið. Sólveig vinnur náið með 19 stöðvarstjórum Skeljungs við þjálfun starfsfólks og segir það stöðugt keppikefli fyrirtækisins að halda í gott starfsfólk en undanfarna mánuði hefur verið nokkur hreyfing á vinnuafli á markaðnum. „A markaðssviðinu ríkir góð samvinna og reynt er að nýta hæfileika hvers og eins eftír verkefnum hveiju sinni.Við látum reglulega gera þjónustu- og markaðskannanir, m.a. í samvinnu við Gallup. Niðurstöður þjónustukannana notum við til þess að endurbæta og þróa þjálfun starfsfólksins. Aldrei hefur verið nauðsynlegra en í dag að veita góða þjónustu, en stefna okkar er að reyna ávallt að hafa forskot á keppinautana, ekki síst á því sviði. Við notum markaðskannanir til að kortleggja þarfir viðskiptavinanna og niðurstöður slíkra kannana eru ávallt bornar saman við samskonar kannanir sem Shell lætur gera í nágrannalöndunum." Skeljungur hefur nýlega opnað fjórðu Select verslunina í Reykjavík en slíkar verslanir selja meðal annars mat og eru opnar allan sólarhringinn sem viðskiptavinum hefur fallið afar vel. Sólveig varð stúdent úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla og starfaði sem sölumaður hjá Plastprenti í nokkur ár eftír það. Síðar var hún starfsmaður AUK, Auglýsingastofu Kristínar, en lauk prófi í viðskiptafræði frá HÍ 1994. Með náminu starfaði hún hjá Hvíta húsinu og Skeljungi. Hún segist hafa lært mjög mikið í sölutækni í starfi enda skiptí þjálfun mjög miklu máli við að gera einhvern að góðum sölumanni. „Mér var síðan boðið starf hér þegar ég útskrifaðist og var hér rekstrarstjóri fyrst en hef Sólveig Hjaltadóttir er markaðsfulltrúi hjá Skeljungi en kennir einnig sölutækni í Viðskipta- og tölvuskólanum. FV-mynd: Kristín Bogadóttir. SOLVEIG HJALTADÓTTIR, SKEUUNGI Bg starfa í markaðsdeild og mín helstu viðfangsefni eru starfs- mannaþjálfun og sölu- og markaðsmál. Skeljungur rekur 19 sölustaði og ég sé um þjálfun starfs- fólks og hvatningu varðandi sölumál. Einnig hef ég umsjón með markaðs- málum týrir eldsneyti og smurolíur. Helstu verkefni eru t.d. tenging Ferrari-liðsins í Formula 1 kappakstr- inum við Shell Helix oliur en Shell er einn helstí auglýsingaðaðili Ferrari- liðsins og Formula 1 nýtur sívaxandi vinsælda hér á landi,“ segir Sólveig TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON Hjaltadóttir, markaðsfulltrúi hjá Skeljungi. Sólveig sér auk þessa m.a. um Fríkortið sem Skeljungur er aðili að og auk þess um Skeljungskortið sem viðskiptamönnum Skeljungs gefst kostur á að kaupa og nota við öll viðskipti sín við Skeljung. Sólveig kennir auk þessa sölutækni íViðskipta-ogtölvuskólanum oghefur gert undanfarin sjö ár. Hún segir að það sé ákaflega skemmtilegt verkefni sem myndi sterk tengsl og gefi margt gegnt núverandi starfi frá þvi snemma árs 1997.“ Sólveig er gift Sigurði Braga Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Sigurplasts hf, og þau eiga tveggja ára son en Sólveig á þrettán ára dóttur íýrir. Sólveig segir að starfið, kennslan og heimilið geri það að verkum að lítill tími gefist til reglulegra áhugamála. „Við hjónin eigum pínulítinn kofa í óbyggðum þar sem njótum þess að vera. Við förum of sjaldan þangað en stundirnar þar eru mér ofarlega í huga í lok hvers árs. Ég stunda líkamsrækt til þess að vera í formi til þess að fara á skiði þá sjaldan að tími gefst til þess.“ SS 82

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.