Fregnir - 01.03.2005, Qupperneq 4
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
fæmi þátttakenda haustið eftir. Foreldrar
hafa þó komið og sagt okkur að bömin
hafi sýnt meiri áhuga á lestri. Það sem ekki
er síður ánægjulegt er að þau börn sem
koma í Sumarlesturinn verða oft „okkar“
krakkar. Þau koma frekar í bókasafnið,
þekkja starfsfólkið og kunna vel við sig í
bókasafninu.
Sögustundir vom vinsælar en nú er svo
komið að engin böm mæta með móður eða
föður sínum í sögustund og því hafa þær
verið felldar út af dagskránni í bili. Hvers
vegna mætir enginn í sögustund lengur?
Astæðumar em vafalaust nokkrar en sú
helsta er breytingin í samfélaginu og þjóð-
félaginu öllu. Foreldrar vinna báðir úti
allan daginn og bömin komast strax að í
leikskólum. Til þess að ná til þessara
yngstu lesenda er samstarf milli bóka-
safnsins og leikskólanna. Boðið er í heim-
sókn í bókasafnið og þar er komið við þeg-
ar farið er í göngutúra. Bókasafnið býður
leikskólunum upp á sérstaka bókakassa að
láni og er hver kassi merktur sínum
leikskóla. Starfsmenn leikskólanna geta
komið og valið bækur í bókakassana þegar
þeir vilja. Reyndar er svo komið að leik-
skólamir kaupa miklu minna af bókum en
áður en nýta þess í stað bókakostinn í
bókasafninu sínu sem sparar peninga en
það er mjög vinsælt þessa dagana. Ár-
veknipóstur er sendur í leikskóla og gmnn-
skóla. Það er póstur sem er sendur á starfs-
menn og þar segir frá nýjum bókum og
tímaritum í bókasafninu, oftast á sviði
uppeldis- og menntamála. Einnig er dag-
skrá bókasafnsins kynnt hverju sinni á
þennan hátt.
Laugardaginn 2. apríl 2005 verða 200 ár
liðin frá fæðingu okkar ástsæla ævintýra-
höfundar H.C. Andersen. í tilefni þeirra
tímamóta verður Leikbrúðuland með sýn-
ingu í bókasafninu á sögunum Fjöðrin sem
varð að fimm hœnum og Pápi veit hvað
hann syngur eftir H.C. Andersen.
Áhugi er á því að starfa nánar með
grunnskólunum á svæðinu og þá sérstak-
lega með unglingum.
Information de Islande!
Bæjar- og héraðsbókasafnið er vel staðsett
í góðu húsnæði í hjarta Selfossbæjar og
við þjóðveg 1. Því var ákveðið vorið 2001
að koma Upplýsingamiðstöð Árborgar
(UÁ), sem er upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn, fyrir í bókasafninu. Opið er frá
lokum maímánaðar til ágústloka og veitir
UÁ upplýsingar um Árborg, Ámessýslu og
Suðurland. Þar vinna yfir sumarmánuðina
tveir starfsmenn með þekkingu á ferðamál-
um og góða tungumálakunnáttu, í sem
samsvarar 120% stöðu. Yfir vetrarmán-
uðina er allur tölvupóstur áframsendur til
Upplýsingamiðstöðvar Suðurlands sem
einnig svarar öllum símtölum sem berast í
síma UÁ. Bókaverðir sinna upplýsinga-
þjónustu við ferðamenn eftir því sem kost-
ur er yfir vetrarmánuðina. Kort og upplýs-
ingabæklingar em aðgengilegir gestum allt
árið. Sveitarfélagið Árborg greiðir allan
rekstur UÁ. Þegar horft er til baka og staða
upplýsingamiðstöðvar í bókasafni metin þá
er niðurstaðan sú að þessi rekstur á vel
saman, eykur fjölbreytnina og styður hvort
annað. Ferðamenn vilja kynnast menningu
á hverjum stað og hvar er hægt að komast
nær henni en í almenningsbókasafni. Auk
þess að fá upplýsingar um landið hafa þeir
möguleika á að komast á Netið, lesa blöð
og fá sér kaffisopa. Nota salemisaðstöðu,
kaupa bækur um ísland og þýddar íslensk-
ar skáldsögur og að lokum skoða sýningar
í Listagjá og útlánasal.
Starfsfólk bókasafnsins
Fjölmenning
Þróunin hefur orðið sú að starfsemi og
þjónusta er orðin fjölbreyttari en var fyrir
15 ámm. Bókmenningin er ekki það eina
sem boðið er upp á. Fleiri tegundir safn-
kosts eru til útlána, s.s. tímarit, tónlist,
myndbönd og DVD. Listir og ýmsar teg-
undir menningar em í boði fyrir þá sem
það vilja þiggja. Bókakynningar em helst á
öðrum árstímum en í desember. Þeir sem
vilja, og em eldri en 18 ára, geta fengið
30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 4