Fregnir - 01.03.2005, Page 5

Fregnir - 01.03.2005, Page 5
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða jólapakka að láni með sér heim um jólin. I hverjum jólapakka sem fenginn er að láni er bók úr safninu sem pakkað hefúr verið inn í jólapappír. Það er því spuming um heppni hvort lánþeginn hefur lesið bókina eða ekki eða hvort hún fellur honum í geð. Sýningar hafa löngum verið í útlána- salnum, oftast ýmis einkasöfn og þar kenn- ir ýmissa grasa. Vorið 2003 á menningar- hátíðinni Vor í Árborg var tekinn í notkun sýningarsalur eða sýningarrými í kjallara bókasafnsins fyrir framan lesstofúna, sem hlaut nafnið Listagjáin. Þar er ný sýning opnuð einu sinni í mánuði. Lærðir lista- menn og listamenn götunnar geta sýnt þar sér að kostnaðarlausu. Þetta rými mætir ákveðinni þörf þar sem enginn listasalur eða listasafn er lengur staðsett á Selfossi. Hræðsla var við að skemmdarverk yrðu unnin á verkunum í kjallaranum en það hefur ekki borið á því og sýnir að virðing er borin fyrir listinni. I samstarfi við Sundhöll Selfoss hefur bókasafnið staðið fýrir Ljóði i lauginni um páskana síðastliðin ár. Sundlaugargestir geta lesið ljóð og liðkað kroppinn í leið- inni. Ljóðalestur á þennan hátt hefur vakið lukku og miklar og heitar umræður í heitu pottunum um efni og innihald ljóða. Yfir árið eru margir viðburðir sem Bæjar- og héraðsbókasafnið tekur þátt í eins og Norrœn vika, alþjóðlegur bangsa- dagur, kosning bestu barnabókarinnar, getraun mánaðarins og hvað sem kemur upp í hendumar hverju sinni. Bæjar- og héraðsbókasafnið er í sam- starfi við bókasöfnin á Stokkseyri og á Eyrarbakka sem eru rekin sem útibú. Bókasafnið á Stokkseyri hefur verið með Ljóð í lauginni, ljósmyndasýningar og Sumarlestur fyrir böm og Bókasafnið á > Eyrarbakka mun taka þátt í menningar- hátíðinni Vor I Arborg í lok maí með verk- efni sem kallast Lesið á Ijósastaura. Ljóð, brot af sögu Eyrarbakka og kaflar úr skáld- sögum sem tengjast Eyrarbakka með ein- um eða öðmm hætti verða hengd á ljósa- staura. Þannig geta þeir sem fara í göngu- túr eftir ákveðinni leið fræðst um skáld og bókmenningu. Starfsfólk Bæjar- og héraðsbókasafns- ins á Selfossi lítur björtum augum til fram- tíðar og hlakkar til að takast á við breyt- ingar, þróun og þjónustu við gesti safnsins. Þegar litið er til ársins 2009 þegar safnið verður 100 ára er vonast til þess að bóka- safnið hafi fengið aukið húsnæði, sem er möguleiki á þeim stað sem það er í dag. Að bama- og unglingastarf verði öflugt og spennandi, að kennsla og aðstoð í upplýs- ingalæsi verði markviss og að lokum að gestir geti gengið að besta fáanlega tækni- búnaði á sviði upplýsingatækni. Margrét I. Asgeirsdóttir forstöðumaður Af hverju vill fólk stafræn bókasöfn? Mel Collier, yfírbókavörður Háskólabóka- safnsins í Leuven, flytur fýrirlestur í Kenn- araháskóla íslands kl. 10 föstudaginn 29. apríl næstkomandi á vegum Menntasmiðju KHÍ og Upplýsingar. Fyrirlesturinn nefnir hann Why do people want digital libra- ries og byggir hann á nýjum rannsóknum sínum á viðskiptaáætlunum um stafræn bókasöfn. Mel Collier hefúr gegnt fjölda starfa á undanfömum ámm. Hann hefur verið yfír- bókavörður í Leuven frá 2004, var fram- kvæmdastjóri Library and Information Services í Tilburg-háskóla í Hollandi á ámnum 2001 til 2003 og þar áður prófess- or við háskólann í Northumbria. Fyrirlesturinn verður nánar auglýstur á Skruddu og Bókinni. Kristín Indriðadóttir Intemational Issues in Library and Infonnation Science Dagsráðstefna á Hótel Sögu, Reykjavík - 23. ágúst 2005 This conference presents a unique oppor- tunity for people in Iceland to meet two Presidents of IFLA (the Intemational Fed- eration of Library Associations and Insti- tutions) and other intemational experts. Upplýsing and the Library and Informa- tion Science Department at the University of Iceland are organising this one-day meeting, to follow the 2005 IFLA World 30. árg. - I. tbl. 2005 - bls. 5

x

Fregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.