Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 9

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 9
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða Listasalur Nýr listasalur innan safnsins var vígður við opnunina með samsýningu iistamanna í Mosfellsbæ. Salurinn er mikill stuðningur við mynd- og tónlistarlíf í bænum. Þetta er ijölnota salur og verður nýttur í uppákomur fýrir börn og fullorðna sem bókasafnið mun standa fýrir. Salnum er einnig ætlað að hýsa myndlistarsýningar, tónlistarflutning og aðra menningartengda viðburði, fræðslufundi af ýmsu tagi og móttökur bæjarins svo eitthvað sé nefnt. Myndlistarmenn og kennarar Tónlistar- skólans hafa lýst sérstakri ánægju með að- stöðuna. Samvinna er við Tónlistarskólann og hefur flygill í eigu skólans verið fluttur í salinn. Margir hafa sýnt salnum og sam- starfi við safnið áhuga og verður spenn- andi að vinna úr þeim hugmyndum. „Heitur reitur“ Samið var við Og Vodafone um uppsetn- ingu á þráðlausu neti, eða svokölluðum heitum reit, í safninu. Safngestir eiga þess nú kost að koma með eigin fartölvur og tengjast netinu í safninu án endurgjalds eða fá aðgang að ákveðnum borðtölvum í eigu safnsins. Atthagadeild Sérstök átthagadeild er í safninu og er spennandi verkefni framundan við áfram- haldandi þróun hennar, þar sem Nóbel- skáldið skipar að sjálfsögðu heiðurssess. Menningarmálanefnd færði safninu margmiðlunardisk um fomleifauppgröftinn að Hrísbrú og sérstakan tölvubúnað til sýningar á honum, sem fyrirtækið Gagarín hannaði. Starfsfólk bókasafnsins Metnaður bœjaryftrvalda Bæjaryfírvöld í Mosfellsbæ hafa ætíð skilið mikilvægi þess að Mosfellsbær eigi gott bókasafn og núverandi bæjarstjóm hefur nú opnað nýja menningarmiðstöð þar sem Mosfellingar geta notið menn- ingar og bókmennta, mynd- og tónlistar og leitað upplýsinga - eða hitt mann og ann- an. Marta Hildur Richter forstöðumaður Bókasafns Mosfellsbæjar Bókasafnið í Hveragerði í nýtt húsnæði Hveragerði er ört vaxandi bær, íbúar komnir yfír tvö þúsund. Umhverfið er fagurt og margir fallegir staðir og göngu- leiðir þar, en það sem vekur hvað mesta athygli er bókasafnið. Bókasafnið flutti úr 170 fermetra húsnæði að Austurmörk 2 síðastliðið haust í 300 fermetra glæsilegt húsnæði í nýrri verslunar- og þjónustumiðstöð við Sunnu- mörk 2. Formleg opnun var fímmtudaginn 18. nóvember 2004 og margt um manninn því spenningur var búinn að vera mikill vegna opnunarinnar. Orri Hlöðversson bæjarstjóri ávarpaði viðstadda en auk hans töluðu Hlíf S. Am- dal forstöðumaður safnsins og Pálína Snorradóttir bókavörður. Hlíf afhenti leik- skólastjómm bæjarins dagatöl frá IBBY samtökunum sem Aslaug Jónsdóttir hann- aði. A þeim em myndir og textar úr bama- bókum. Tilgangurinn er að auka áhuga bama á lestri góðra bóka. Margir, sem sækja safnið heim, hafa áhuga á hljóðbókum svo það var sérstak- lega ánægjulegt þegar Alda Jónsdóttir af- henti bókasafninu að gjöf kr. 75.000 til hljóðbókakaupa frá Kvenfélagi Hveragerð- is. Áður hafði kvenfélagið gefíð væna ijár- hæð í sama tilgangi. Starfsfólk safnsins hefúr alið með sér þá ósk að koma á laggimar tónlistardeild. Pálína Snorradóttir fékk ágæta hugmynd, þegar henni var gefinn geisladiskur með Sóleyjarkvœði eftir Jóhannes úr Kötlum. Þar sem hann er einn af Hveragerðis- skáldunum fannst Pálínu upplagt að bóka- safnið eignaðist diskinn. Ásamt því að gefa safninu diskinn skoraði hún á for- mann menningarmálanefndar, Kristin Harðarson að gefa efni til tónlistardeildar- innar og láta síðan boltann rúlla því hún er viss um að Hvergerðingar og aðrir lands- 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 9

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.