Fregnir - 01.03.2005, Side 10

Fregnir - 01.03.2005, Side 10
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða menn hafa margir hverjir áhuga á að efla tónlistardeildina. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. A sjálfan opnunardaginn kom Helga Baldursdóttir og færði safninu bókina Almenna söngfrœði handa byrjend- um í og utan skóla eftir Sigfus Einarsson, útgefm 1932. Bókina hafði Louisa Ólafs- dóttir frá Amarbæli átt og gefið Helgu. Louisa sagði að þessi bók hefði verið hennar skóli. Hún var síðan organisti í Ölfusi og Hveragerði í sextíu ár. I desember komu listamenn og lásu úr verkum sínum. Rut Gunnarsdóttir, sem ný- lega er flutt í Hveragerði, las gullfalleg ljóð sem er að finna í nýútgefínni bók eftir hana: Orðin sem liggja í loftinu. Ung stúlka, Guðrún Helga Sigurðardóttir, sem er fædd og uppalin í Hveragerði, las fmm- samda smásögu og sýndi að þar fer upp- rennandi Hveragerðisskáld. Það var ekki einungis hugsað um að næra hugann, heldur líka boðið upp á glæsilegt hlaðborð með grænmeti og ávöxtum (eða eins og Þórarinn Eldjám nefnir það: grannmeti og átvextir). Starfs- fólkið í Kjöt og kúnst í Hveragerði sá um framreiðsluna af miklu listfengi. Daginn eftir, þann 19. nóvember, var safnið opnað fyrir útlán og var þá margt um manninn. Akveðið var að halda sameiginlega opnunarhátíð í verslunarmiðstöðinni þar sem fleiri fyrirtæki vom að opna um sama leyti og bókasafnið. Það var gert með miklum myndarbrag 4. desember. Ymsar uppákomur vom á göngum Verslunarmiðstöðvarinnar. A bókasafninu lásu listamenn úr verkum sínum, má þar nefna Þorgrím Þráinsson, Kristínu Bjama- dóttur, Pjetur Hafstein Lámsson, Þorstein Antonsson og Rut Gunnarsdóttur sem auk þess að lesa úr eigin verkum kynnti verk Gunnars Dal. Magnús Þór Sigmundsson, sem býr í Hveragerði, flutti eigið lag við ljóð eftir Gunnar og gerði það eftirminni- lega. Fólk talar enn um hve vel hafí tekist að gera daginn skemmtilegan. Áfram var haldið að kynna nýjar bækur þann 11. desember. Mæðgumar Jóhanna Kristjónsdóttir og Elísabet, dóttir hennar, komu og lásu. Auk Hvergerðinga komu nemendur og nokkrir kennarar úr bóka- safnstækni í Borgarholtsskóla. Vom það miklir aufúsugestir. Síðan safnið opnaði hefur heimsóknum fjölgað og margir nýir lánþegar bæst í hópinn. Mikið er um að ferðamenn komi til þess að skoða jarðskjálftasprungu sem liggur þvert í gegnum bókasafnið. Gler er yfír spmngunni og til þess að auka og ýkja dálitið er hún upplýst og neðst er sem hrauneðja renni eftir henni. Þeir sem vilja sjá bókasafn, í tveimur heimsálfum eru því velkomnir í Bóka- safnið í Hveragerði. Anna Kristín Guðmundsdóttir Flutt í nýtt húsnæði í byrjun september síðastliðinn flutti Bókasafnið í Neskaupstað í nýtt húsnæði í Nesskóla. Á björtum degi þann 5. mars fór fram vígsla á nýbyggingu Nesskóla ásamt breyt- ingum á eldri byggingum. Eftir þessa stækkun em þrjár stofnanir staðsettar í Nesskóla þ.e. gmnnskóli, tónskóli og al- menningsbókasafn en það og bókasafn gmnnskólans hafa nú verið sameinuð. Bókasafnið er á fyrstu hæð Nesskóla og gengið inn frá Nesgötu og er aðgengi mjög gott fyrir alla notendur safnsins. Á þriðju hæð Nesskóla er stór salur búinn viðeigandi búnaði sem er ætlaður til afnota fýrir gmnnskólann, bókasafnið og tónskól- ann og á fyrstu hæðinni er tölvuver gmnn- skólans en allt þetta getur stutt starfsemi hvers annars. Svipmynd úr bókasafninu Almenningsbókasafnið var áður staðsett í félagsheimilinu Egilsbúð í 70 m2 húsnæði en þar hafði það verið staðsett síðastliðin 40 ár. Eins og gefur að skilja þá var hús- næðið þar orðið allt of lítið og það fyrir löngu síðan. Á nýja staðnum er heldur 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 10

x

Fregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.