Fregnir - 01.03.2005, Síða 11
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
rýmra um okkur eða 310 m2 þar af 45 m2 í
geymslupláss.
Safnið er allt búið bókasafnsbúnaði frá
Eurobib í Svíþjóð sem er afar sveigjanleg-
ur og vandaður. Skrifstofustólar og stólar í
leshomi em frá Kinnarp en stólar og borð í
nemendarými em af sömu gerð og em í
grunnskólanum en þau em frá SIS leaming
a/s í Svíþjóð.
Tölvur em í safninu til notkunar fýrir
almenning og er það nýlunda því vegna
þrengsla var enginn möguleiki til þeirrar
þjónustu á gamla staðnum. Við vígsluna
vom um 500 manns og í ljós kom að al-
menn ánægja ríkir með nýja húsnæðið.
Það sem af er þessu skólaári hafa skóla-
börnin og kennaramir óspart notfært sér
þessa bættu aðstöðu á safninu og hefur
aðsókn bama og fullorðinna að safninu
aukist til muna. Við horfum því björtum
augum til framtíðarinnar í bókasafns-
málum.
Margrét Björnsdóttir
forstöðumaður
Ráðstefna um áhrif við-
skiptasamninga á bókasöfn
Dagana 2.-3. mars sat ég fyrir hönd Upp-
lýsingar ráðstefnuna „Trading in know-
ledge? The World Trade Organisation and
Libraries" í Cambridge í Englandi. Það
voru EBLÍDA og SCONCUL (Society of
College, National and University Li-
braries) í Englandi sem stóðu fyrir þessari
ráðstefnu. Ráðstefnuna sóttu um 30 manns
frá níu Evrópulöndum auk Kanada.
Að undanfömu hafa viðskipta- og arð-
semissjónarmið þrengt sér æ víðar inn á
ýmis svið samfélagsins þar sem samfélags-
leg sjónarmið hafa verið ríkjandi, svo sem
í menntamálum og heilbrigðismálum. Það
er álit margra að Alþjóðaviðskiptastofnun-
in (WTO), sem tók til starfa 1995, hafí ýtt
mjög undir þessa þróun auk Alþjóðabank-
ans, Alþjóðagjaldeyrisjóðsins og ýmissa
viðskiptabandalaga. Bókasafnafólk er víða
farið að hafa áhyggjur af að þessi þróun
ógni samfélagslegu hlutverki bókasafna og
upplýsingamiðlunar.
Fram að þessu hefur einna helst verið
litið til áhrifa GATS-samningsins sem er í
þróun á vegum WTO. í þeim samningi er
þjónusta sett í 13 flokka með undir-
flokkum. Einstök ríki geta síðan sett fram
skuldbindingar um einstaka flokka eða
undirflokka sem þýðir að viðkomandi
þjónusta er sett á markað sem er opinn
aðilum í öllum aðildarlöndum WTO.
Varðandi nánari upplýsingar um þetta vís-
ast til ítarlegra greina í Bókasafninu 2004.
Það hefur vakið athygli að ísland var
eitt 13 ríkja sem opnuðu þjónustuflokkinn
„bóka- og skjalasöfn, safnastofnanir og
önnur menningarþjónusta“ strax við stofn-
un WTO árið 1995 en síðan hafa fímm
bæst við. Fyrir utan Bandaríkin, Japan,
Flong Kong og Singapúr em flest þessi
lönd fremur fátæk þróunarríki.
Kanadísk samtök bókavarða og bóka-
safna urðu einna fyrst til að taka við sér
varðandi þetta og létu gera ítarlega skýrslu
um hugsanleg áhrif GATS á bókasöfn og
kom hún út vorið 2001. IFLA setti fram
afstöðu sína til viðskiptasamninga WTO
árið 1999 og sendi fulltrúa á ráðherrafund
WTO í Seattle þá um haustið. Þetta var
Paul Whitney, núverandi borgarbókavörð-
ur í Vancouver, og var hann meðal fyrir-
lesara á ráðstefnunni í Cambridge. Whit-
ney gerði IFLA-þinginu í Jerúsalem í ágúst
2000 grein fyrir þessum málum ásamt
Frode Bakken formanni norska bókavarða-
félagsins en Bakken tók svo sæti í ráð-
gjafanefnd EBLIDA um GATS og sá um
skipulagningu þessarar ráðstefnu ásamt
fleimm.
Ráðstefnan hófst með erindi George
Monbiot en hann hefur skrifað mikið um
hnattvæðingu og einkavæðingaferlið, aðal-
lega fyrir Guardian og er þekktur fyrir
bækur sínar, Captive State, the Corporate
Takeover of Britain og The Age of Con-
sent. Hann fór vítt og breytt yfír þessa þró-
un sem á ensku hefur verið kölluð „the
corporate takeover", þ.e. hvemig einkafyr-
irtæki leitast við að taka yfír sem flesta al-
mannaþjónustu sem á einhvern hátt er
hægt að hafa að féþúfu.
Dale Honeck, starfsmaður WTO og
ráðgjafí um menningarlega þjónustu í
GATS-samningnum, gaf ráðstefnugestum
greinargott yfirlit yfír saminginn en hafði
óneitanlega nokkuð aðra sýn en aðrir, öllu
jákvæðari. Hann var einn þriggja starfs-
manna WTO sem átti fund með fulltrúum
IFLA og EBLIDA í desember 2002. Þrátt
30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 11