Fregnir - 01.03.2005, Síða 12

Fregnir - 01.03.2005, Síða 12
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða fyrir aðra afstöðu til WTO og GATS hafði hann skilning á áhyggjum ráðstefnugesta og sat alla ráðstefnuna og lagði ýmislegt gott til málanna í umræðum. í erindi sínu fór Susan Robertson, pró- fessor og sérfræðingur um hnattvæðingu og menntun við háskólann í Bristol, al- mennt yfir stöðu menntunar í þessu hnatt- væðingar- og einkavæðingarferli. Við þekkjum það að sífellt meiri áhersla er lögð á menntun í efnahagslegu tilliti. Það ætti því ekki að koma á óvart að í núver- andi arðsemis- og markaðsumhverfi er menntun orðin að gífurlegum „bísniss“ sem hefur ýmsar hliðar og sumar skugga- legar að áliti Robertson. Skuggahliðamar koma einkum fram í mismunun eftir efna- hag og félagslegri stöðu en einnig því að stórfyrirtæki hafa æ meiri áhrif á menntun- ina allt frá bamaskólum og upp í háskóla og fullorðinsfræðslu. Það em einkum Bandaríkin, Japan, Ástralía, Nýja-Sjáland og Singapúr sem hafa ýtt undir aukið markaðsfrelsi í menntun. Sú hætta sem fyrirlesararnir álitu að stafaði af WTO og öðmm viðskiptasamn- ingum snýr ekki bara beint að bókasöfnum í þröngri merkingu þess orð. Ef þau 18 lönd em undanskilin, sem hafa gengist undir skuldbindingar á safnasviðinu, snýr hættan frekar að allskonar sérstakri þjónustu bókasafnanna, bæði almennings- bókasafna og ekki síður sérfræðibóka- safna, þjónustu sem getur fallið undir aðra flokka, svo sem rannsóknar- og þróunar- þjónustu (Research and Development Services), menntunarþjónustu (Educa- tional Services) og boðskiptaþjónustu (Communication Services). Hér er til dæmis um að ræða fjarþjónustu, upplýs- ingaþjónustu gegnum Netið, aðgang að upplýsingum á Netinu, þjónustu við menntastofnanir og útlán tónlistar og myndbanda eða -diska. Paul Whitney lagði mikla áherslu á hlutverk bókasafna sem al- mannasvæðis og menningarlega fjöl- breytni sem og tengsl bókasafna- og upp- lýsingaþjónustu við ýmsa aðra þætti menn- ingarinnar og taldi nauðsynlegt að ríkið hefði möguleika á að setja reglur og höml- ur þegar ástæða væri til. Whitney taldi að í Kanada þyrfti ekki síður á næstu ámm að varast TRIPS-samn- inginn (Agreement on Trade-related As- pects of Intellectual Property Rights - samningur á vegum WTO um hugverkarétt í viðskiptum). Ruth Rikowski flutti sér- stakt erindi um TRIPS. Hún er bókasafns- fræðingur og hefur lengi rannskakað áhrif viðskipta á bókasöfn og upplýsinga- þjónustu og af fjölmörgum greinum henn- ar má sérstaklega nefna „The corporate takeover of libraries" sem birtist árið 2001 í tímaritinu Information for Social Change (http//:libr.org/ISC). Nú er rétt nýkomin út bók eftir hana um þessi málefni, Globali- sation, Information and Libraries (www. chandospublishing.com). GATS hefur beinni áhrif á bókasöfn en TRIPS, sem hefur frekar bein áhrif á upp- lýsingar og þekkingu, þótt báðir geti haft áhrif á bókasöfn og menningar- og menntaþjónustu almennt. Það sem fellur undir TRIPS-samninginn og kallast hug- verkaréttindi (intellectual property rights) var áður aðgreint í réttindi sem varða frek- ar iðnað, svo sem einkaleyfi, og hins vegar höfundarrétt á ritverkum og listaverkum og snýr hann frekar að bókasöfnum og upplýsingaþjónustu. Rikowski telur að TRIPS muni breyta upplýsingum, þekk- ingu og hugmyndum í eignarréttarbundna vöru sem hægt verði að versla með í al- þjóðlegum viðskiptum. TRIPS-samningur- inn snýst um þetta og er ónæmur fyrir gild- um almannaþjónustu og siðferðis- og mannúðarsjónarmiðum. Hún telur fulla ástæðu til að vera vel á verði gagnvart samningnum. Fram að þessu hefur verið lögð áhersla á ákveðið jafnvægi milli rétt- inda höfunda og þess að allir hafí sem jafnasta aðstöðu til að nálgast upplýsingar og menningu. TRIPS-samningurinn bjóði hins vegar upp á að eignarréttur á upplýs- ingum verði söluvara sem lendi í höndum stórfyrirtækja og bókasöfnin verði að borga fyrir að miðla þeim áfram og sá kostnaður muni lenda á notendum safn- anna. Það eru þó ekki bara samningar á veg- um WTO sem valda áhyggjum. Það er líka ástæða til að skoða ýmsa aðra viðskipta- samninga. Meðal annars var vikið að til- lögum að tilskipun Evrópusambandsins um þjónustu á innri markaði, svokallaðri Bolkestein-tilskipun en mikil mótmæli eru nú gegn henni víða í Evrópu. 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 12

x

Fregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.