Fregnir - 01.03.2005, Page 16

Fregnir - 01.03.2005, Page 16
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða tilfelli almenningsbókasafha eða bóka- safnsfræðinga í upplýsingaþjónustu í til- felli upplýsingabókasafnsfræðinga. Enn aðrir gætu hins vegar einfaldlega verið að reyna að koma sér og sínum persónulegu hugmyndum á framfæri. Eftir að þú hefur ákveðið markhópinn, tilgang bloggsins og meginskrif þess þarftu að ákveða hvaða möguleika þú vilt að bloggið bjóði upp á. Blogg-hugbúnað- inum fylgir alls kyns auka möguleikar. Nokkrir slíkir eru: „GeymslusafnF Bloggið er sett í viku- legt, mánaðarlegt eða árlegt „geymslu- safn“. Mismunandi er hvað hentar hverju bloggi fyrir sig. Þeir sem eru með margar færslur á viku vilja sennilega láta setja upp geymslusafn sem hefur allt í senn vikulegt, mánaðarlegt og árlegt safn. Efnisflokkar: Gott fyrir þá sem vilja flokka efnið sitt niður eftir efnissviðum (líkt og gert er á bókasöfnum). Leit: Getur komið sér vel þegar leita þarf í eldri færslum. Samskiptamöguleikar: Gerir lesendum mögulegt að koma með athugasemdir og hafa samskipti við bloggarana. RSS (Really Simple Syndication): Viltu að aðrar vefsíður vísi á þína bloggsíðu? Þetta er gott tæki til þess. Hvernig getur blogg nýst? Það eru ýmsar leiðir fyrir bókasöfn/stofn- anir til að nota blogg. Sú augljósasta er að sjálfsögðu að setja inn fréttir og uppfæra þær reglulega. Aðrar leiðir eru t.d.: > Að auglýsa þar uppákomur og at- burði sem eru í gangi á safni/stofnun og ná þannig til þeirra sem ekki eru reglulegir lesendur síðunnar. Gott er að setja upp RSS og segja sem flest- um að þeir megi vísa á síðuna. > Blogg gæti verið góð leið til að vekja athygli á sérstöðu safns/stofnunar. Láttu bloggið þitt standa upp úr með sérstöku efni sem vekur áhuga les- enda, t.d. væri hægt að hafa „spak- mæli dagsins“, rithöfund dagsins eða bók dagsins. Hafa getraun á hverjum föstudegi eða taka stutt viðtal við ein- hvem einu sinni í viku. Gerðu bloggið að þínu eigin og þróaðu þinn eigin stíl í hvaða formi sem hann kann að vera. > Stuðningur við notendur er mikil- vægur og blogg gæti hjálpað þama. A mörgum heimasíðum bókasafna em ný aðföng auglýst. Gaman gæti verið fyrir almenningssöfn að setja nýtt efni í lista eftir efnissviðum, t.d. nýjar ástarsögur, glæpasögur, barnabækur, vísindaskáldsögur o.s.frv. A háskóla- og sérfræðisöfnum gæti verið sniðugt að flokka aðföng niður eftir deildum innan stofnunar. > Blogg getur sýnt að við emm með á nótunum. Settu nýja bókagagnrýni og bókmenntaverðlaun á síðuna. Bjóddu lesendum að koma með athugasemdir og gagnrýni og láttu þá mæla með ákveðnum bókum. > Bókasafnsfræðingar em alltaf að leita leiða til að bjóða notendum góða þjónustu. Það væri t.d. möguleiki að bjóða einhverja sérstaka þjónustu eða tilboð á blogginu og þannig ná til nýs hóps á sama tíma. > Ef þú ert að reyna að ná til nýs hóps á alþjóðlegum markaði væri hægt að bjóða upp á bloggið á öðm tungu- máli. Ef þú ert að reyna að ná til t.d. kennara væri möguleiki að hafa vefrit sem eingöngu er ætlað kennslu og kennurum. Þar væri hægt að einblína á þá þjónustu sem kennarar fá, ný gögn og gagnasöfn sem þeir gætu nýtt sér og bókalista og vefsíður sem gætu vakið áhuga þeirra. Eins og sést getur markaðssetning bóka- safns/stofnunar orðið mun auðveldari og skemmtilegri með bloggi. Gott bókasafns- blogg þarf þó að innihalda þrennt: Inn- blástur, áhuga og tileinkun. Það þarf inn- blástur til að fá góðar hugmyndir. Ahuginn er orkan sem við notum til að koma þess- um góðu hugmyndum í framkvæmd. Til- einkunin er síðan það sem kemur næst, vinnan sem felst í því að halda blogginu gangandi og uppfæra það reglulega. Blogg í bókasafnsfræðigeiranum Eins og ég einhvem tímann nefndi á Skruddu hófst áhugi minn á bloggi á bóka- söfnum þegar ég var í námi í Bandaríkjun- um fyrir næstum tveimur ámm síðan. 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 16

x

Fregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.