Fregnir - 01.03.2005, Qupperneq 17

Fregnir - 01.03.2005, Qupperneq 17
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða Bókasafnsfræðingar þar tóku strax virkan þátt í þessari nýjung þegar hún kom fram á sínum tíma. Mörg söfn og einstaklingar blogga reglulega og eru þessi blogg að sjálfsögðu jafn misjöfn og þau eru mörg. Sum innihalda fræðilegt, áhugavert og gagnlegt efni á meðan önnur eru dagbókar- færslur viðkomandi einstaklings og ekki eins gagnlegar fræðilega séð eins og hinar. Við getum að sjálfsögðu ekki lesið öll blogg sem til eru, um 9.000.000, í Banda- ríkjunum einum t.d. en yfirleitt finnur fólk sér ákveðin blogg sem það les reglulega. Þau blogg sem ég reyni að lesa reglulega eru blogg sem mér fínnst áhugaverð og eru með fræðilegt efni sem ég tel að geti hjálp- að mér í stafi mínu sem bókasafnsfræðing- ur. Hér fyrir neðan koma dæmi um nokkur þeirra: Library Stuff - www.librarvstuff.net/ Steven M. Cohen er bókasafnsfræðingur hjá stórri lögfræðistofu í New York í Bandaríkjunum. Hann heldur úti bloggi þar sem hann fjallar aðallega um Netið, nýjungar á því og hvemig við getum nýtt okkur það í starfi. Librarian.net - www.librarian.net/ Jessamyn West er bókasafnsfræðingur á almenningsbókasafni í Norður Karólínu í Bandaríkjunum. Hún leggur áherslu á það sem er að gerast í bókasafnsfræði- heiminum hverju sinni og er bloggið hennar bæði fræðandi og skemmtilegt. The Laughing Librarian - www.laughinglibrarian.com/ Brian Smith heitir maðurinn á bak við þetta blogg. Eins og Librarian.net fræðir þetta blogg okkur um það sem er að gerast á skemmtilegan og fræðandi hátt. The Shifted Librarian - www.theshifted librarian.com/ Jenny Levine er bókasafnsfræðingur og netþróunarstjóri fyrir bókasafnskerfi í Illinois í Bandaríkjunum. Bloggið henn- ar fjallar nær eingöngu um Netið og upplýsingatækni. The Teaching Librarian - www.teach inglibrarian.org/weblog/blogger.html Stephen Franceour er bókasafns- fræðingur í New York í Bandaríkjunum. Hann leggur áherslu á upplýsingatækni og notendafræðslu. Áhugaverð blogg em mörg og að sjálf- sögðu ekki eingöngu að finna í Banda- ríkjunum. Hægt er að nálgast lista yfir blogg bókasafna í öllum heiminum á Netinu á slóðinni: www.libdex.com/ weblogs.html Það væri gaman ef fleiri í fræðunum hér heima myndu taka bókasafnsfræðinga er- lendis sér til fyrirmyndar og byrja að blogga. Að mínum mati er blogg gott tæki fyrir okkur til að halda okkur vakandi fýrir nýjungum og bæta við þekkingu okkar í starfi. Það er þó með blogg eins og annað, það eru ekki allir sem aðhyllast notagildi þess eins og dæmið í Bandaríkjunum í byrjun greinar sýndi. Lísa Z. Valdimarsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur Fréttir frá NordlNFOLIT Stýrihópur um norrænan samstarfsvett- vang á sviði upplýsingalæsi hélt sinn fyrsta fund í janúar síðastliðnum eftir að ákveðið var að verkefnið yrði ekki lengur starfrækt undir formerkjum NORDINFO. Á fundin- um var ákveðið að halda starfseminni áfr- am og helstu breytingar sem það hefur í för með sér er að verkefnin verða að standa undir sér í framtíðinni þar sem við fáum ekki lengur íjármagn frá NORD- INFO. Þetta hefur í för með sér meiri kostnað fyrir þátttakendur og að sækja verður um styrki annarsstaðar. Stýrihópur- inn heldur áfram en án verkefnisstjóra. Lögð verður áhersla á að halda vefsetrinu gangandi og hefur Annette Skov, fulltrúi Dana í hópnum, tekið að sér að uppfæra og skrá inn nýjar upplýsingar á vefinn. Hægt er að senda henni póst (as@db.dkf um við- burði og áhugaverð verkefni.1 Starfsemi sem þegar er hafinn undir- búningur að eru norræni sumarskólinn um upplýsingalæsi og Creating Knowledge IV ráðstefnan (vorið 2006 í Kaupmannahöfn). Áfram verður unnið að norrænum viðmið- unarreglum eða verkramma um upplýs- ingalæsi þar sem ástralski staðallinn um upplýsingalæsi er hafður til hliðsjónar.2 Ola Pilerot frá Háskólanum í Skövde í Sví- þjóð mun skrifa formála að verkinu en hann hefur haldið úti heimasíðu um upp- lýsingalæsi sem er mjög áhugaverð.3 Sum- 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 17

x

Fregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.