Fregnir - 01.03.2005, Side 18
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
arskólinn verður haldinn 27. júní til 1. júlí
næstkomandi í Tusby í Finnlandi. Kaisa
Sinikara forstöðumaður bókasafns- og
upplýsingaþjónustu Háskólans í Helsing-
fors leiðir fínnska undirbúningshópinn í
samvinnu við NordlNFOLIT. Þátttöku-
fjöldi takmarkast við 30 manns og eru
þátttökugjöld 1.100 EUR. Innifalið í verð-
inu eru m.a. námskeiðsgjöld, fjórar gisti-
nætur í einstaklingsherbergi, morgunmat-
ur, hádegisverður, kaffí/te og kvölddag-
skrá. Akveðið hefur verið að þeir Islend-
ingar sem taka þátt verði styrktir til farar-
innar. Tilkynningu um þátttöku skal senda
í tölvupósti til Sirkku Liukkonen, sirkku.
liukkonen@helsinki.fi, fyrir 30. apríl.
Endanleg dagskrá liggur ekki fyrir en
setning sumarskólans verður í Háskólanum
í Helsingfors þar sem byrjað verður á um-
fjöllun um stefnumörkun og áætlanagerð.
Kennslan fer m.a. fram í fyrirlestrum og
vinnuhópum og eins og fram kemur á vef-
síðu sumarskólans verður einnig fjallað
um:
• Aktiverande undervisning/aktiv inlám-
ing - kvalitetsvardering
• Samarbete mellan larare och biblio-
tekarie - ett problem eller en möjlighet?
• Nya vindar for IK-undervisningen - in-
spiration och motivation
Að lokum má geta þess að þar sem
NORDINFO hefur lagt niður starfsemi
sína var ákveðið að breyta nafni NORD-
INFOlit í NordlNFOLIT.
Astrid Margrét Magnúsdóttir
1) Sjá nánarpistil Christinu Tovoté, Vi for-
satter med vissa förándringar! á www.nord
infolit.org.
2) Bundy, Alan, ritstj'.: Australian and New
Zealand Information Literacy Framework.
Principles, standards and practice. 2. útg.
Adeleide: ANZIIL, 2004. Vefslóð: www.caul.
edu.au/info-literacv/InfoLiteracvFramework.
pdf
3) Sjá nánar http://www.his.se/bib/infolit.htm.
Nýtt á vef Landsbókasafns
Islands - Háskólabókasafns
Miðaldafræði. Landsbókasafn og stofnun
Áma Magnússonar hafa nýlega tekið
áskrift að tveimur samtengdum gagna-
söfnum í miðaldafræðum. Aðgangur að
þeim takmarkast við tölvur á háskólanet-
inu og þrjá samtímanotendur. Annars veg-
ar er um að ræða ritaskrána International
Medieval Bibliography Online með um
300 þúsund tilvísunum í tímaritsgreinar,
ráðstefnurit, bókarkafla o.fl. á ýmsum
sviðum miðaldafræða. Þar er m.a. vísað í
skrif um íslenskar fombókmenntir. Hins
vegar er uppsláttarritið Lexikon des Mittel-
alters, eitt helsta alfræðiritið á þessu sviði.
Tengingar eru á milli gagnasafnanna, sem
merkir að hægt er að fá bæði stuttar upp-
lýsingar og tilvísanir í skrif um sama efni
með einni uppflettingu og nokkrum músar-
smellum. Tenglar í þessi gagnasöfn em
undir Gagnasöfn á vef safnsins, www.
landsbokasafn.is.
Verkfræði. Gagnasafnið Compendex,
helsta gagnasafnið í verkfræði og skyldum
greinum, hefur nú verið opnað á landsvísu
en það var áður aðeins opið tölvum á há-
skólanetinu. Compendex vísar í efni um
5000 blaða og tímarita í verkfræði hvaðan-
æva úr heiminum. Vegna samninga á
landsvísu um aðgang að rafrænum tímarit-
um hafa íslenskir notendur beinan aðgang
úr Compendex í heildartexta ijölmargra
tímarita.
Ennfremur hefur safnið með tilstyrk
nokkurra fyrirtækja og stofnana samið um
aðgang á landsvísu að heildartextum 32
tímarita sem ASCE (American Society of
Civil Engineers) gefur út, 20 tímarita frá
ASME (American Society of Mechanical
Engineers) og um aðgang að heildartextum
allra útgáfurita ACM (Association for
Computing Machinery) frá upphafí, eða
allt að 50 ár aftur í tímann. Rit ACM eru
aðgengileg hjá ACM - Portal en aðeins á
tölvum á háskólanetinu. Tenglar í öll þessi
tímarit eru á vef safnsins, undir Blöð og
tímarit - Titlar A-Ö/Tdnet.
Tímaritaskrá. í ársbyrjun 2004 var tíma-
ritaumsjónarkerfið TDnet tekið í notkun á
vef safnsins og á vef landsaðgangs,
hvar.is, til þess að halda utan um rafrænar
tímaritaáskriftir. Landsbókasafn notar
kerfíð sem tímaritagátt sem þýðir að þar er
einnig aðgangur að Gegni og VestNord
(timarit.is). Á hvar.is er aðgangur að öllum
tímaritum sem eru í landsaðgangi. í skrá
Landsbókasafns eru auk þess séráskriftir
safnsins, upplýsingar um prentuð tímarit
30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 18